167. spurningaþraut: „Frankly, my dear, I don't give a damn.“

167. spurningaþraut: „Frankly, my dear, I don't give a damn.“

Klikkið hér og þá birt­ist – eins og fyrir töfra - þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing.

Skýr­inga­myndin hér að ofan sýnir eitt fræg­asta markið og glæsi­leg­asta markið sem skorað hefur verið í loka­keppni HM í fót­bolta karla. Þar end­aði glæsi­leg upp­bygg­ing með því að bak­vörð­ur­inn Carlos Alberto skor­aði með dúnd­ur­skoti. Hvaða ár var þetta mark skorað?

***

Aðal­spurn­ing:

1.   Í hvaða frægu kvik­mynd er loka­nið­ur­staðan þessi: „Frankly, my dear, I don't give a damn.“

2.   Og hvað heitir per­sónan sem er ávörpuð sem „my dear“ í þessu til­felli?

3.   Tígris­dýr og ljón eru stærstu núlif­andi katt­ar­dýrin. Hvaða katt­ar­teg­und er í þriðja sæti að stærð og þyngd?

4.   Hver var for­sæt­is­ráð­herra Breta þegar atkvæða­greiðslan um Brexit fór fram?

5.   Akkiles hét hetja ein í Grikk­landi hinu forna, eða svo herma sögur að minnsta kosti. Móðir hans hafði búið svo um hnúta að hann varð eigi vopn­bit­inn nema á einum stað á kroppnum. Hvaða staður var það?

6.   Marius hét róm­verskur póli­tíkus og her­for­ingi sem kom mjög við sögu í fyrstu umferð borg­ara­styrj­ald­anna í Róm á fyrstu öld fyrir Krist. Hann tald­ist full­trúi alþýð­unnar og átti í mik­illi keppni við auð­mann einn mik­inn, sem fór að lokum með sigur af hólmi og varð ein­ræð­is­herra um skeið. Hvað hét auð­maður þessi?

7.    „Black Widow“ eða „Svarta ekkjan“ heitir per­sóna ein sem birt­ist reglu­lega í amer­ískum ofur­hetju­myndum þessi árin. Hver leikur hana?

8.   Hvað heitir fjörð­ur­inn sem gengur inn úr Faxaflóa og nær í raun allt frá mynni Hval­fjarðar og að Reykja­vík og Sel­tjarn­ar­nesi?

9.   Linda Pét­urs­dóttir alheims­feg­urð­ar­drottn­ing 1988 fædd­ist á Húsavík en ólst að mestu upp á öðrum stað á land­inu. Hvar var það?

10.   Hvað heitir for­maður verka­lýðs­fé­lags­ins VR?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir kven­per­sónan sem sést á mynd­inni hér að neðan? Hún hefur oft verið túlkuð í bíói og sjón­varpi og sést hér í kvik­mynd frá Disney-fyr­ir­tæk­inu.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Á hverf­anda hveli, eða Gone With the Wind.

2.   Scarlett O'Hara.

3.   Jagúar. Hlébarði er að sjálf­sögðu ekki rétt, enda allt önnur teg­und þótt hlé­barðar og jagú­arar séu líkir í útliti.

4.   Cameron.

5.   Hællinn.

6.   Sulla.

7.   Scarlett Johansen.

8.   Kolla­fjörður.

9.   Vopna­firði.

10.   Ragnar Þór Ing­ólfs­son.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Carlos Alberto skor­aði sitt glæsi­lega mark árið 1970 í úrslita­leik HM í Mexíkó. Þetta var fjórða og síð­asta markið í 4-1 sigri Bras­il­íu­manna á Ítölum.

Á hlekknum hér að neðan má sjá hann spjalla um markið sitt:

Persónan er svo mærin Marían eða Maríanna sem Hrói höttur er ein­lægt svo skot­inn í.

***

Og aptur er hér hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár