166. spurningaþraut: Amerískur fótbolti, Harry Potter, Sadio Mané og Svínshöfuð

166. spurningaþraut: Amerískur fótbolti, Harry Potter, Sadio Mané og Svínshöfuð

Þrautin frá í gær er hér, ef þið eigið hana eftir!

***

Fyrri auka­spurn­ing.

Myndin hér að ofan sýnir mál­verk eftir þýska impressjónist­ann Max Lieber­mann (1847-1935). Hvað heitir karl­mað­ur­inn sem á mál­verk­inu sést?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hver er oft­ast sagður hafa verið fyrsti lög­sögu­maður íslenska þjóð­veld­is­ins, þótt hann hafi raunar ekki þulið lögin á sjálfum Þing­völlum?

2.   Nýlega var til­kynnt – fáeinum til mik­illar sorgar – að frum­sýn­ingu á nýrri James Bond-mynd yrði frestað fram í apríl á næsta ári vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Þá verða sex ár frá sýn­ingu síð­ustu Bond-myndar. Hvað hét Bond-myndin sem frum­sýnd var 2015?

3.   Snemma á 20. öld deildu tveir Banda­ríkja­menn hart um það hvor þeirra hefði unnið til­tekið afrek, fyrstur manna. Þeir hétu Frederick Cook og Robert Peary. Hvaða afrek deildu þeir um?

4.   Hinn svo­kall­aði „amer­íski fót­bolti“ mun vera vin­sælasta íþróttin í Banda­ríkj­unum. Hver leikur tekur 60 mín­útur en sífellt er verið að stoppa hann til að stilla upp á ný og skera úr um vafa­at­riði. Hversu lengi er bolt­inn í leik að með­al­tali í leikjum á hæsta kalí­beri? Hér má muna 4 mín­útum til eða frá.

5.   Í bók­inni Harry Potter og eld­bik­ar­inn eftir J.K.Rowling stendur hinn ungi Potter frammi fyrir þeirri þraut að kom­ast fram­hjá einum ógur­leg­asta dreka sem til er í töfra­ver­öld­inni. Honum tekst það en við hvaða Evr­ópu­land er drek­inn hræði­legi kenndur?

6.   Hver er háskóla­menntun Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra?

7.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Lux­emburg?

8.   Hver skrif­aði skáld­sög­una Svíns­höfuð?

9.   Frá hvaða landi er fót­bolta­mað­ur­inn Sadio Mané?

10.   Í námunda við hvaða þétt­býl­is­stað á Íslandi er fjallið Þorbjörn?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hvað heitir sú íslenska jurt sem ber þau blóm, er sjást hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Úlf­ljótur.

2.   Spectre.

3.   Þeir deildu um hvor hefði stýrt fyrsta leið­angrinum á norð­ur­pól­inn.

4.   11 mín­útur, svo rétt telst vera allt frá 7 mín­útum til 15.

5.   Ung­verja­landi.

6.   Hún er menntuð í almennum mál­vís­indum og íslensku. „Íslenska“ dugar alveg sem rétt svar. Svandís var í mörg ár við­riðin kennslu í tákn­máls­fræðum og -túlkun en hefur, eftir því sem best verður lesið af síð­unni alþingi.is, ekki sér­staka háskóla­menntun á því sviði. Þar eð hún var kennslu­stjóri í tákn­máls­fræðum við Háskóla Íslands í nokkur ár úrskurða ég þó að „tákn­máls­fræði“ telj­ist líka rétt.

7.   Lux­emburg.

8.   Bergþóra Snæ­björns­dóttir.

9.   Senegal.

10.   Grinda­vík.   

***

Svar við fyrri auka­spurn­ingu:

Hann heitir Samson. Myndin lýsir Bibl­íu­sög­unni um helj­ar­mennið Samson sem ját­aði á við­kvæmri stundu fyrir hasarkvend­inu Delælu að leynd­ar­málið um ótrú­legan styrk hans lægi í hár­inu. Hún var á snærum óvina hans Filistea og lét klippa af honum hárið þegar hann var sofn­aður.

Svar við seinni auka­spurn­ingu:

Blágresi.

***

Og lox aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár