165. spurningaþraut: Fyrsta vatnsklósettið, fyrsta kvennahljómsveitin og doktorspróf Goebbels

165. spurningaþraut: Fyrsta vatnsklósettið, fyrsta kvennahljómsveitin og doktorspróf Goebbels

Þraut gær­dags­ins? Jú, hér er hún.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan á mál­verk­inu hér að ofan, en mál­verkið er „byggt á sönnum atburðum“ eins og nú er sagt um bíó­myndir.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða nas­ista­for­ingi flaug til Bret­lands árið 1941? Hann mun hafa ímyndað sér að hann gæti samið frið millum Breta og Þjóð­verja.

2.   Fyrst minnst er á nas­ista­for­ingja: Joseph Goebbels áróð­urs­mála­ráð­herra Hitlers varð doktor aðeins 24 ára gam­all. Í hvaða fræði­grein?

3.   Í hvaða landi ger­ist Disney-myndin Mulan?

4.   Snemma árs 1981 til­kynnti söng­konan Ragn­hildur Gísla­dóttir að hún væri hætt í hljóm­sveit­inni þar sem hún hafði starfað und­an­farið og ætl­aði að stofna kvenna­hljóm­sveit. Þá fyrstu á Íslandi, svo ég viti til. Hvað nefnd­ist kvenna­hljóm­sveitin sem hún stofn­aði?

5.   En í hvaða hljóm­sveit hætti Ragn­hildur við þetta tæki­færi?

6.   Hvað heitir hæsti tindur Íslands?

7.   Hver lék aðal­hlut­verkið í kvik­mynd­inni Term­inator frá 1984?

8.   Hvað heitir léns­herr­ann á Vetr­ar­felli, þá við fyrst fréttum af þeim kald­rana­lega stað?

9.   Hver setti fram tregðu­lög­málið, sem snýst um að hlutur heldur annað hvort kyrru fyrir eða heldur áfram í sömu stefnu og á sama hraða, nema eitt­hvað utan­kom­andi verki á hlut­inn?

10.   Í hvaða núver­andi ríki hafa forn­leifa­fræð­ingar fundið elstu leifar af vatns­kló­settum sem vitað er um?

***

Og þá er það seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Rudolf Hess.

2.   Málfræði.

3.   Kína.

4.   Grýl­urnar.

5.   Brimkló.

6.   Hvanna­dals­hnjúkur.

7.   Arnold Schwarzenegger.

8.   Eddard eða „Ned“ Stark.

9.   Isaac Newton.

10.   Pakistan. 

***

Þá eru það svör við auka­spurn­ingum.

Á efri mynd­inni má sjá Charlotte Corday þegar hún hafði nýlokið við að myrða franska bylt­ing­ar­leið­tog­ann Marat þar sem hann sull­aði í bað­inu sínu. Myndina mál­aði Paul-Jacques-Aime Baudry með hlið­sjón af frægu mál­verki eftir David.

En á neðri mynd­inni má sjá Jacqueline Lee Bouvier. Hún gekk á full­orð­ins­árum að eiga til­von­andi Banda­ríkja­for­seta og nefnd­ist eftir það Jacqueline Kennedy, og enn síðar Jacqueline Onassis.

***

Þá er hér hlekkur á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár