164. spurningaþraut: Ljón í Asíu, maðurinn skotinn í Prag, hve þung eru egg?

164. spurningaþraut: Ljón í Asíu, maðurinn skotinn í Prag, hve þung eru egg?

Allt í lagi, eruði búin með þraut­ina frá í gær? Hér er hún!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá „lógó“ sam­taka, sem lík­lega eru ekki við lýði lengur. Hvað hétu þau? Auk hins opin­bera nafns, sem sam­tökin köll­uðu sig sjálf, dugar líka eins konar „gælu­nafn“ sem var oft notað um þau í fjöl­miðlum.

***

1.   Hvað heitir sú per­sóna fullu nafni sem Ólafur Darri Ólafsson leikur í sjón­varps­s­er­í­unum Ófærð?

2.   Hvað heitir sá ráð­gjafi Donalds Trumps Banda­ríkja­for­seta sem til­kynnt var að hefði smit­ast af kór­óna­veirunni rétt á UNDAN honum og konu hans, og gæti því hafa smitað þau hjónin?

3.   Maður nokkur var skot­inn til bana í bíl sínum þann 4. júní 1942 í Prag í Tékk­landi. Hvað hét hann?

4.   Hversu þungt er hænu­egg að með­al­tali? Skekkju­mörk koma í ljós í svar­inu.

5.   Hvað heitir for­sæt­is­ráð­herra Noregs?

6.   Hvar í Asíu lifa ljón ennþá villt?

7.   „Einhver hlýtur að hafa verið að ljúga ein­hverju upp á Jósef K., því einn morg­un­inn var hann hand­tek­inn án þess að hafa gert nokkuð af sér.“ Þannig hefst skáld­saga um martrað­ar­kennd rétt­ar­höld. Hver skrif­aði sög­una?

8.   Á fjórða ára­tugnum hófu Þjóð­verjar að fram­leiða Volkswagen, bíl sem átti að vera svo ódýr að allir hefðu efni á honum. Hver átti mestan þátt í að teikna og hanna þennan bíl?

9.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Japan?

10.   Við hvaða reiki­stjörnu er tunglið Gany­medes?

***

Og síð­ari auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Andri Ólafsson.

2.   Hope Hicks.

3.   Reinhard Heydrich.

4.   50-70 grömm.

5.   Erna Solberg.

6.   Á Indlandi.

7.   Franz Kafka.

8.   Porsche. Hitler setti nokkur skil­yrði en hann teikn­aði eða hann­aði ekk­ert.

9.   Tókíó.

10.   Júpíter.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Lógóið er merki þýsku hryðju­verka­sam­tak­anna Rote Armee Fraktion (Rauða her­deildin), sem oft voru kölluð Baader-Meinhof sam­tökin.

Konan er söng­stjarnan Miley Cyrus.

***

Og þá er ekk­ert eftir nema birta aftur hlekk á þraut­ina frá í gær!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár