161. spurningaþraut: Konurnar í Spaugstofunni, grænar ninjur, Miðnætursólborgin

161. spurningaþraut: Konurnar í Spaugstofunni, grænar ninjur, Miðnætursólborgin

Þrautin í gær sner­ist öll um síð­ari heims­styrj­öld­ina. Hér er hlekkur á hana.

***

Auka­spurn­ing sú hin fyrri:

Hvern er verið að drepa á teikn­ing­unni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Laust fyrir miðja 19. öld skrif­uðu Fjöln­is­menn – Jónas Hall­gríms­son og félagar – í blað sitt um atburði í Sléttu­manna­landi. Sléttu­manna­land var þýð­ing þeirra á heiti ríkis eins í Evrópu og reyndar er þýð­ingin út af fyrir sig rétt, því hið erlenda nafn lands­ins merkir „sléttu“. Sléttu­manna­land fest­ist þó ekki í íslenskri mál­hefð. Hvað er landið kallað?

2.   Hvaða dýr er talið nær öruggt að hafi verið fyrsta hús­dýr manns­ins?

3.   Árið 1989 kom út fyrsta skáld­saga nýs höf­undar og nefnd­ist hún Mið­næt­ur­sól­borgin. Höf­und­ur­inn hefur síðan skrifað ýmsar bækur en mesta athygli hafa vakið æskuminn­inga­bækur hans, þótt ekki sé hann hnig­inn að aldri. Hann hefur og feng­ist við margt annað en rit­störf, meira að segja komið nálægt póli­tík. Hver er höf­undur Mið­næt­ur­sól­borg­ar­innar?

4.   Eftir sam­ein­ingar bæja og sveit­ar­fé­laga er Fjarða­byggð fjöl­menn­asta sveit­ar­fé­lag á Aust­fjörðum. En hver af eft­ir­töldum byggða­kjörnum telst EKKI til Fjarða­byggðar: Breið­dalur, Eski­fjörður, Fáskrúðs­fjörður, Mjói­fjörður, Nes­kaup­staður, Reyð­ar­fjörður, Seyð­is­fjörður, Stöðv­ar­fjörður.

5.   Hversu margir búa ann­ars í Fjarða­byggð? Hér má muna 500 manns til eða frá.

6.   Árið 1984 komu fyrst fram á sjón­ar­sviðið í efni fyrir börn fjögur grein­leit dýr sem börð­ust gegn alls­konar ill­þýði og beittu við það ekki síst jap­anskri bar­daga­list. Dýrin voru gjarnan kölluð „ninjur“ en af hvaða teg­und voru þau?

7.   Spaug­stofan var í ára­tugi eitt­hvert vin­sælasta sjón­varps­efni lands­ins. Einn vet­ur­inn – 1998-1999 – brá svo við að auk karl­anna sem mynd­uðu hóp­inn voru komnar til liðs við þá tvær konur. Nefnið að minnsta kosti aðra þeirra.

8.   Fjórtán ára stúlka úr Kópavogi var valin íþrótta­maður Kópavogs árið 1975. Guðlaug Þor­steins­dóttir vann það ár öfl­ugt kvenna­mót í sinni grein, síðan varð hún Íslands­meist­ari kvenna og loks Norð­ur­landa­meist­ari. En í hverju keppti Guðlaug?

9.   Áður en Kringlan og aðrar versl­un­ar­hallir komu til sögu, hver var þá aðal versl­un­ar­gatan í Reykja­vík?

10.   Hvað heitir eyja­klasi milli Finn­lands og Sví­þjóðar, sem til­heyrir Finn­landi en nýtur sjálf­stjórnar?

***

Auka­spurn­ing sú hin síð­ari:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Pólland.

2.   Hund­ur­inn.

3.   Jón Gnarr.

4.   Seyð­is­fjörður.

5.   Í Fjarða­byggð búa því sem næst 5.000 manns, svo rétt er allt frá 4.500 til 5.500.

6.   Skjald­bökur.

7.   Erla Ruth Harð­ar­dóttir og Linda Ásgeirs­dóttir.

8.   Skák.

9.   Lauga­veg­ur­inn.

10.   Álandseyjar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin sýnir morðið á Lakóta-höfð­ingj­anum Tȟašúŋke Witkó árið 1877, en hann er frægastur fyrir að hafa stýrt her­flokki frum­byggja í Norður-Ameríku gegn banda­ríska hernum í orr­ust­unni við Little Big Horn.

Tȟašúŋke Witkó er ugg­laust þekkt­astur hér um slóðir undir enskri þýð­ingu á nafni sínu:

Crazy Horse.

Á neðri mynd­inni er kvik­mynda­stjarnan Audrey Hepburn, eins og glöggt má á mynd­inni hér til hliðar.

***

Svo er hér að nýju hlekk­ur­inn á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár