160. spurningaþraut: Margar léttar og örfáar þungar spurningar um síðari heimsstyrjöld

160. spurningaþraut: Margar léttar og örfáar þungar spurningar um síðari heimsstyrjöld

Hér er fyrst hlekkur á þraut gær­dags­ins.

***

Að venju snú­ast allar spurn­ing­arnar um eitt og sama efnið þegar tala þrautar endar á núlli.

Það er síð­ari heims­styrj­öldin í þetta sinn.

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan sést ein af fræg­ustu orr­ustuflug­vélum síð­ari heims­styrj­aldar. Af hvaða teg­und er hún?

***

1.   Hvaða dag hófst síð­ari heims­styrj­öldin í Evrópu?

2.   Hvað er átt við með hug­tak­inu „þykjustu­stríðið“ eða „the pho­ney war“?

3.   Hvaða ríki réð­ist á Finnland síðla árs 1939?

4.   Hvað hét öfl­ugt þýskt orr­ustu­skip sem réð­ist út á Atl­ants­hafið sum­ar­byrjun 1941 með því að bruna með brugðnar byssur milli Íslands og Græn­lands en var nokkrum dögum síðar sökkt af Bretum, er það reyndi að kom­ast til Frakk­lands?

5.   Hvað nefnd­ist áætl­unin um inn­rás Þjóð­verja og banda­manna þeirra í Sov­ét­ríkin?

6.   Fyrir hvað varð breski flug­mar­skálk­ur­inn Arthur Harris frægur í stríð­inu, eða öllu heldur alræmdur?

7.   „I shall return,“ sagði banda­ríski hers­höfð­ing­inn Douglas MacArthur í ræðu í Ástralíu 20. mars 1942. Hann stóð við orð sín og sneri síðar aftur - en hvert?

8.   Hvar gerðu Banda­menn inn­rás í Frakk­land í júní 1944?

9.   Hvað nefnd­ist byrgið þar sem Adolf Hitler slapp naum­lega við bana­til­ræði í þeim sama mán­uði, júní 1944?

10.   Þann 9. ágúst 1945 var lág­skýjað yfir japönsku borg­inni Kokura og auk þess lá yfir henni reykj­ar­mökkur frá loft­árás sem Banda­ríkja­menn höfðu gert á nágranna­borg­ina Yahata dag­inn áður. Þetta lélega skyggni yfir Kokura hafði mjög afdrifa­ríkar afleið­ingar. Hverjar voru þær?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hestar komu minna við sögu síð­ari heims­styrj­aldar en fyrri stór­stríða og ridd­ar­ara­lið var að mestu úr sög­unni. En þessi reið­maður vakti þó mikla lukku hvenær sem hann sást í stríð­inu. Hver er hann og hvers vegna fagn­aði fólk honum svona?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   1. sept­em­ber 1939.

2.   Evr­ópustór­veldin Bretland og Frakk­land voru opin­ber­lega í stríði við Þjóð­verja allt haustið og vet­ur­inn 1939-1940 en nálega ekk­ert var barist á landi.

3.   Sov­ét­ríkin.

4.   Bismarck.

5.   Bar­barossa.

6.   Hann skipu­lagði og beitti sér fyrir ógur­legum loft­árásum á þýskar borgir, sem felldu ekki síst óbreytta borg­ara.

7.   Til Fil­ipps­eyja, sem Japanir lögðu undir sig í árs­byrjun 1942.

8.   Normandy.

9.   Úlfagrenið eða Úlfa­bælið, Wolfsschanze á þýsku.

10.   Banda­ríkja­menn ætl­uðu að varpa seinni kjarn­orku­sprengju sinni á Korkura, en vegna skyggn­is­ins var hennar varpað á Nagasaki í stað­inn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Flug­vélin er af gerð sem kölluð er Zero. Hún var japönsk.

Á neðri mynd­inni er Kristján Dana­kóngur 10., sem þótti standa uppi í hár­inu á þýsku her­námsliði í Kaup­manna­höfn með því að fara sinn reglu­lega reið­túr um borg­ina eins og ekk­ert hefði í skorist.

***

Loks er hér aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár