159. spurningaþraut: Mesta hafdýpið, ólympíuverðlaunahafi og fyrsta skáldsaga Arnaldar

159. spurningaþraut: Mesta hafdýpið, ólympíuverðlaunahafi og fyrsta skáldsaga Arnaldar

Hér birt­ist gær í frá spurn­inga­þraut­ina á hlekkur.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða frægri kvik­mynd er þetta skjá­skot?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvar á Íslandi var hin forna Hnappa­dals­sýsla?

2.   Hvaða frægur banda­rískur rit­höf­undur var fyrir fáeinum dögum á ferð á Siglu­firði?

3.   Hvað hét fyrsta skáld­saga Arnaldar Ind­riða­sonar?

4.   Frá hvaða landi kemur brag­ar­hátt­ur­inn „haíka“ upp­haf­lega?

5.   Uppi á hvaða fjalli fékk Móse boð­orðin tíu frá guði?

6.   Hvað hét fyrsta íslenska konan sem gaf út ljóða­bók?

7.   Í hvaða fjöllum eru ríkin Armenía og Aserbædjan?

8.   Marit Bjørgen er í 3.-4. sæti yfir þá íþrótta­menn sem unnið hafa flest gull­verð­laun á ólymp­íu­leikum. Á fimm ólymp­íu­leikum frá 2002 til 2018 vann Bjørgen til 15 verð­launa, þar af 8 gull­verð­launa. Í hvaða íþrótta­grein keppti hún?

9.   Hvað er mesta haf­dýpi á jörð­inni? Hér má muna 500 metrum til eða frá.

10.   Stytta af hverjum stendur á Aust­ur­velli í Reykja­vík?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Á Snæ­fells­nesi. „Vest­ur­land“ dugar ekki.

2.   Dan Brown.

3.   Synir dufts­ins.

4.   Japan.

5.   Sínaí.

6.   Júlíana Jóns­dóttir.

7.   Kákasus.

8.   Hún keppti á skíðum á vetr­ar­ólymp­íu­leikum. Reyndar í skíða­göngu, en skíði duga alveg. Vit­an­lega er hún norsk.

9.   10,984 metrar -- svo rétt telst vera allt frá 10.484 metrum til 11.484. Reyndar ætla ég að bæta 16 metrum við efri töl­una og úrskurða að 11.500 metrar sé líka rétt.

10.   Jóni Sig­urðs­syni.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Skjá­skotið er úr mynd­inni Awakenings eða Upp­vakn­ingar frá 1990, þar sem Robert de Niro og Robin Williams fóru með aðal­hlut­verk.

Á neðri mynd­inni er Joseph Robinette Biden.

***

Og hér er aftur á spurn­inga­þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár