158. spurningaþraut: Íslenskt skáld, útlenskt skáld, íslenskur fugl, og fleira!

158. spurningaþraut: Íslenskt skáld, útlenskt skáld, íslenskur fugl, og fleira!

Góðan dag, hér er þraut gær­dags­ins.

***

Auka­spurn­ing sú hin fyrri:

Hver mál­aði mál­verkið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Íslenskt skáld lét heil­mikið að sér kveða bæði hér­lendis og einnig erlendis, þar sem skáldið kom meira að segja við sögu kon­unga. Skáldið var kennt við konu sem það unni eitt sinn. Hvað hét konan?

2.   Hver gaf út hljóm­plöt­una Biophilia?

3.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Víetnam?

4.   Hvað heitir stærsta íþrótta­fé­lagið á Seyð­is­firði?

5.   „Ég er æðsta hof­gyðjan, ég er Enhedúanna.“ Svo hefst ævafornt kvæði sem varð­veist hefur á leir­töflum í Mesópótamíu. Hvað er sér­stak­lega merki­legt við skáldið Enhedúönnu?

6.   Þrettán ára dóttir Capúlet-hjón­anna í Veróna­borg á Ítalíu er sögu­fræg. Hvað var hennar for­nafn?

7.   Guðrún Helga­dóttir barna­bóka­höf­undur sat í borg­ar­stjórn Reykja­víkur og á Alþingi fyrir ákveð­inn stjórn­mála­flokk. Hvaða flokkur var það?

8.   Hvaða íslenska leik­kona lék all­stórt hlut­verk í dönsku sjón­varps­þátt­unum Erninum fyrir 15 árum en þeir fjöll­uðu um danskan leyni­þjón­ustu­mann af íslenskum ættum?

9.   Hvaða íslenski fugl ber lat­neska fræði­heitið „corvus corax“?

10.   Hver gaf í fyrra út vin­sæla skáld­sögu í hinum ensku­mæl­andi heimi og bókin heitir The Testa­ments? Um er að ræða fram­hald af annarri, enn vin­sælli bók.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi kona?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Kolbrún. Skáldið hét Þormóður.

2.   Björk.

3.   Hanoi.

4.   Huginn.

5.   Enhedúanna er fyrsta nafn­greinda skáldið sem vitað er um. Hún var uppi fyrir tæpum 4.500 árum.

6.   Júlía.

7.   Alþýðu­banda­lagið.

8.   Elva Ósk Ólafs­dóttir. Föð­ur­nafnið er kannski óþarfi að þekkja.

9.   Hrafninn.

10.   Margaret Atwood.

***

Fyrir auka­spurn­ing:

Bush-hjónin

Mál­verkið á mynd­inni hér efst mál­aði Georg Guðni list­mál­ari.

Seinni auka­spurn­ing:

Á mynd­inni er Laura Bush, eig­in­kona Banda­ríkja­for­set­ans George W. Bush.

****

Hér er svo aftur hlekkur á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár