Rými fyrir skapandi einstaklinga

Lista­senan í Reykja­vík árið 2020 blómstrar, það er alltaf eitt­hvað áhuga­vert í boði að sjá. Hill­billy fór á flakk um borg­ina og náði tali af nokkrum galler­istum og öðrum sem sjá um sýn­ing­ar­rými fyrir mynd­list. Það sem hún lærði var að gall­erí þjóna þeim til­gangi að miðla list­inni frá lista­mann­inum til sam­fé­lags­ins, þar sem fólk getur nálg­ast list sem það langar að skoða – eða eign­ast.

Rými fyrir skapandi einstaklinga

Þór­steinn Sig­urðs­son, galler­isti Núllsins við Banka­stræti 0, lítur á gall­erí sem stóra sviðið fyrir mynd­list­ar­menn, eins konar tón­leika mynd­list­ar­manns­ins. Ásdís Þula, galler­isti Þulu við Hjarta­torg, lítur á gall­er­íin sem forlögin, fram­leiðslu­fyr­ir­tækin, umboðs­menn­ina, og Ingi­björg, eig­andi Berg Contemporary, segir gall­erí vinna sem tengilið milli kaup­enda mynd­listar og lista­manna, miðla þekk­ingu og vekja áhuga almenn­ings á mynd­list. Gallerí og sýn­ing­ar­rými vinna mikið og oft óþakk­látt starf, en fyrir Hill­billy eru þau ómissandi í öllum sínum stærðum og gerðum. 

„Gallerí mynda árfar­vegi sem vökva jarð­veg­inn eftir óvæntum leiðum“

Mörg gall­erí og sýn­ing­ar­rými leit­ast við að sýna ákveðna teg­und listar, eins og til dæmis Gallerí Port, sem ein­blínir að mestu á að sýna yngri lista­menn, og Skyn­lista­safnið. Aðrir vinna ekki eftir slíkum reglum, að minnsta kosti ekki með­vitað. Hill­billy finnst allir galler­istar sem hún ræddi við sam­mála um gildi list­ar­innar í sam­fé­lag­inu, enda eru svör þeirra ýmist að ekk­ert sam­fé­lag lifir af án listar eða að lífið væri glatað án listar.

Hill­billy bað hvern galler­ista að velja þema­lag gall­er­ís­ins, sem Hill­billy finnst góð leið til að skilja and­rúms­loft gall­er­ís­ins og færir les­end­ann nær hjartarótum þess. Tilvalið væri að setja það inn á laga­list­ann sinn og spila í eyr­unum næst þegar gengið er inn í umrætt gall­erí.

ÞULA

Hinn 4. júlí 2020 opn­aði nýjasta gall­erí Reykja­vík­ur­borgar, Þula á Hjarta­torgi. Eigandi Þulu er Ásdís Þula sem hefur alltaf flögrað á milli blóma sem henni finnst spenn­andi í líf­inu. Hún hefur bæði verið á leik­svið­inu og bak við það en auk leik­listar hefur hún unnið hjá föður sínum og systur, mynd­list­ar­mönn­unum Tolla og Kristínu Morthens. Þá fann hún áhug­ann á mynd­list­inni, fann að hún vildi vinna með fleiri lista­mönnum og óhjá­kvæmi­lega var næsta skref að opna gall­erí.

Valdi sér sjálf nafnið Þula

Við búsetu erlendis tók Ásdís eftir því að oft voru gall­erí nefnd eftir galler­ist­anum. Þula er nafn sem hún valdi sér sjálf við ferm­ingu (borg­ara­lega) og er henni mjög kært. Ásdísi finnst nafnið lýsa sköp­un­ar­ferli, flæði, hlý­leika og ást, sem er einmitt það sem Ásdís vill að fólk finni fyrir þegar það heim­sækir Þulu. 

Fyrst samsýning, síðan fimm einkasýningar

Þula sýnir verk eftir sam­tíma­lista­menn, bæði lengra komna og upp­renn­andi. Sýn­ing­ar­flæði Þulu er þannig að fyrst er sam­sýn­ing þar sem kynntir eru til leiks fimm lista­menn sem halda síðan hver sína einka­sýn­ingu.

Málverkið er fullt af lífi

Ásdísi þykir engin ein stefna sam­eina lista­menn sem eru að störfum í dag á Íslandi, henni finnst mikið frjáls­ræði ríkja. „Þegar ég heyri orðin „mál­verkið er dautt“ get ég heils­hugar sagt að mál­verkið er fullt af lífi, því nú loks eru nýjar sögur og nýjar raddir að heyr­ast í þessum miðli sem hefur oftar en ekki verið frá­tek­inn fyrir hvíta, gagn­kyn­hneigða karl­menn,“ segir Ásdís. Henni þykir lista­menn vera bjart­sýnir, þó svo að fram­tíð lista­manns­ins sé oftar en ekki óráðin og aldrei að vita hvað bíður handan við hornið. Hún heldur að ástæðan fyrir þess­ari bjart­sýni sé að sjálfs­ástin sé að víkja fyrir enda­lausum kúltúr sjálfs­fórnar sem ein­kennt hefur listir af öllu tagi, sjarmi bóhemlífs­stíls­ins og hálf­tóma rauð­víns­glass­ins sé að renna sitt skeið.

Að berjast um brauðmola og njóta menningar

Ásdís telur að gildi mynd­listar fyrir sam­fé­lagið breyt­ist með tíð og tíma, alveg eins og sam­fé­lagið sjálft. „Ef sam­fé­lagið á Íslandi er skoðað þá vorum við sein að til­einka okkur, eða kannski leyfa okkur, að njóta mynd­listar. Ekki er langt síðan hér var barist um hvern brauð­mola og þótti ekki raun­hæft að eyða tíma eða pen­ing í list. Þrátt fyrir að það örli enn á  þessu í sam­fé­lag­inu, sem sést þegar úthlutun starfs­launa lista­manna hefst,“ segir Ásdís en hún telur hins vegar að þetta sé að breyt­ast. „Fyrir sam­fé­lagið er listin skrá­setn­ing á tíð­ar­anda og atburðum, per­sónu­legum upp­lif­unum og breyt­ingum. Hún vekur umræður, hug­hrif, hneykslun og bylt­ingar,“ bætir hún við og að mati Ásdísar glæðir mynd­listin bók­staf­lega sam­fé­lagið okkar lífi og lit.

„Mynd­listin bók­staf­lega glæðir sam­fé­lagið okkar lífi og lit“ 

Ásdís segir að þrátt fyrir að ævin­týri hennar í galler­ista­heim­inum sé rétt að byrja og margt sé enn ólært hafi hún lært skipu­lag og sam­skipta­færni, einnig að axla ábyrgð sína sem galler­ist­ans þegar kemur að sýni­leika lista­manna og fjöl­breyti­leika radd­anna sem fá að heyr­ast. 

Þemalag: Chelsea Morning með Joni Mitchell


Þula, Hjarta­torgi, gengið inn frá Lauga­vegi, 101 Reykja­vík

facebook.com/thula.gall­ery


NÚLLIÐ

Þór­steinn Sig­urðs­son, galler­isti í Núllinu, byrj­aði gall­er­í­rekstur sinn árið 2009 þegar hann og nokkrir strákar fóru inn í yfir­gefið hús á Hverf­is­götu. Þar tóku þeir til og bjuggu til sýn­ing­ar­rými og vinnu­stofu. Það rými fékk aðeins að lifa sum­arið en síðan þá hafði alltaf verið draumur að gera eitt­hvað nýtt í sömu mynd, að nýta það sem er ónýtt fyrir eitt­hvað skap­andi. Í des­em­ber 2018 fékk hann að nýta Núllið fyrir bóka­út­gáfu ljós­mynda­bókar sinnar, „Juvenile Bliss“, og eftir það var honum boðið að taka við rým­inu sem úr varð Núllið Gallerý.

Staðsett á Bankastræti 0

Núllið hefur alltaf verið Núllið, þar sem það stendur í Banka­stræti 0, í gamla herra-almenn­ings­sal­ern­inu. „Það var aldrei spurn­ing um neitt annað en að setja Gallerý fyrir aftan Núllið og halda fast í Núllið-hefð­ina,“ segir Þór­steinn. 

Núllið fyrir alla

Í Núllinu sýnir fjöl­breytt flóra lista­manna, byrj­endur sem og lengra komnir. „Rýmið er fyrir skap­andi ein­stak­linga, hvort sem það er tón­list, mynd­list, grafík, ljós­myndun, sviðs­list, gull­smíði og allt þar á milli,“ segir Þór­steinn og þykir honum mik­il­vægt að allir hafi vett­vang til að sýna sköpun sína og því fá nán­ast allir, sem sækja um, pláss, þess vegna er Núllið fyrir alla.

„Lífið væri frekar glatað ef það væri ekki skap­andi fólk í sam­fé­lag­inu“ 

Lífið væri glatað án listar

Þór­steini finnst liðs­heild ein­kenna lista­sen­una á Íslandi, það standa allir saman. Að hans mati væri lífið frekar glatað ef það væri ekki skap­andi fólk í sam­fé­lag­inu, það er svo margt sem teng­ist mynd­list og sköpun, beint og óbeint.

Þemalag: Autopilot með Russian.girls

Núllið, Banka­stræti 0, 101 Reykja­vík

facebook.com/nullidgall­ery


BERG CONTEMPORARY

Berg Contemporary var opnað í mars árið 2016. Ingi­björg Jóns­dóttir, eig­andi Berg, er mynd­list­ar­maður en einnig hefur hún unnið sem mynd­list­ar­kenn­ari og sýn­ing­ar­stjóri, auk þess að vera mynd­list­ar­safn­ari. Þessi fjöl­breytta reynsla nýt­ist vel í gall­er­í­rekstur. Ingi­björg taldi brýna þörf á fleiri gall­er­íum á Íslandi sem störf­uðu alþjóð­lega. „Ég elskaði að kenna mynd­list, þar sem sam­talið á milli nem­enda og kenn­ara var yfir­leitt mjög gef­andi og þegar best lét þrosk­andi á báða vegu,“ segir Ingi­björg og líkir hún saman kennsl­unni og því að vera umboðs­maður mynd­list­ar­manna, það er sams konar þráður. Fyrir Ingi­björgu var hlut­verk hennar sem kenn­ari að leiða nem­endur að dyr­unum en forð­ast að opna þær. Sem galler­isti hlustar hún og reynir að opna leiðir fyrir lista­menn­ina sína, en gætir þess að hver lista­maður fái svig­rúm til að stjórna sinni eigin veg­ferð.

Leitaði ljósum logum að húsnæði í miðborginni

Ingi­björg var mörg ár að und­ir­búa opnun Berg Contemporary. Hún leit­aði ljósum logum að hús­næði í mið­borg­inni, það skyldi vera hátt til lofts og vítt til veggja. Einnig hafði hún áhuga á að byggja sjálf sýn­ing­ar­sal. „Einn dag­inn gerð­ist krafta­verkið. Klapp­ar­stígur 16, sem var upp­haf­lega gler- og spegla­verk­smiðja, kom á sölu og með fylgdi Smiðju­stígur 10, sem var upp­lögð bygg­ing­ar­lóð. Á Klapp­ar­stíg 16 er mjög góður sýn­ing­ar­salur, skrif­stofu­að­staða og stór lager, sem geymir úrval verka eftir lista­menn gall­er­ís­ins og auk þess verk í umboðs­sölu eftir fleiri lista­menn,“ segir Ingi­björg.

Nýtt BERG-rými í byggingu

Nú er í bygg­ingu nýr sýn­ing­ar­salur sem verður við­bót við núver­andi rými. Í nýja salnum mun verða ann­ars konar and­rúms­loft en í þeim gamla. Nýi sal­ur­inn er hugs­aður fyrir verk sem eru stærri í sniðum, vídeó, inn­setn­ingar og mynd­list sem þarf mikla loft­hæð. Ingi­björg telur sal­inn vera góða við­bót við gall­er­íflór­una í Reykja­vík.

Berg á klöpp

Ingi­björg vildi íslenskt nafn sem væri jafn­framt auð­velt fyrir útlend­inga að bera fram. „Það sak­aði ekki að upp­hafs­stafur nafns­ins væri fram­ar­lega í staf­róf­inu og Contemporary-við­bótin er til að leggja áherslu á alþjóð­lega teng­ingu við list­heim­inn,“ segir Ingi­björg.

Senan og samfélagslegt gildi

Það sem Ingi­björgu finnst ein­kenna lista­sen­una í Reykja­vík er kraftur og fjöl­breyti­leiki. Henni finnst þó umhugs­un­ar­vert hvað margir lista­menn kvarta yfir fáum tæki­færum til að sýna verk sín, að það sé kannski vegna þess að það séu hlut­falls­lega margir lista­menn í land­inu. Hún segir listir hafa ómet­an­legt gildi í sam­fé­lag­inu. „List­irnar hlúa að mennsk­unni, næra manns­sál­ina og gera umhverfið áhuga­verð­ara og betra á allan hátt. Að lifa án listar getur ekk­ert sam­fé­lag, slíkt sam­fé­lag myndi ekki lifa af,“ segir hún og verður vör við að fólk almennt geri sér ekki grein fyrir því flókna starfi sem fer fram innan gall­ería, þá helst þeirra gall­ería sem eru með lista­menn á skrá og taka þátt í að byggja upp feril þeirra. Gallerí taka þátt í alþjóð­legum lista­messum sem eru, ásamt Fen­eyjat­ví­ær­ingnum, sterkasta aflið til þess að kynna íslenska mynd­list og lista­menn erlendis.

„Að lifa án listar getur ekk­ert sam­fé­lag“

Starfið er stöðugt nám eins og lífið sjálft 

„Hlut­irnir ger­ast ekki af sjálfu sér, þeir fiska sem róa. Sterk sýn, þraut­seigja og seigla er það sem þarf,“ segir Ingi­björg, „ásamt ómældri ástríðu fyrir mynd­list.“ Hún lítur á starfið sem lang­hlaup. Fyrir Ingi­björgu er það sam­starfið við lista­menn og starfs­menn gall­er­ís­ins sem glæðir dag­ana lífi og gefur kraft og löngun til að halda áfram.

Þemalag: Níunda etýða Philip Glass, sem Víkingur Ólafsson píanó­leik­ari flytur svo vel á hljóm­diski sínum.

Berg Contemporary, Klapp­ar­stíg 16, 101 Reykja­vík

bergcontemporary.is


i8

i8-ævin­týrið byrj­aði árið 1995, þegar Börkur Arnarson var nýfluttur heim frá London. Hann rak fyr­ir­tæki með félaga sínum í Ing­ólfs­stræti 8 sem hét Mynda­smiðja Aust­ur­bæjar. „Jóhann Sig­mars­son var með aðstöðu á hæð­inni fyrir neðan og gekk illa með fyrstu setn­ing­una í nýju kvik­mynda­hand­riti, þannig að mik­ill pappír fór í rusla­körf­una við hlið­ina á rit­vél­inni. Jóhann reykti mikið, sem fór ekki vel með öllu papp­írs­kuðlinu,“ lýsir Börkur. 

Nafnið festist á milli húsnæða

Þegar eld­ur­inn slokkn­aði tók Börkur við pláss­inu ásamt móður sinni, Eddu Jóns­dóttur, sem var farin að fá meiri áhuga á list ann­arra en sinnar eigin, að sögn Barkar, og stofnað var Gallerí Ing­ólfs­stræti 8. Nafnið fest­ist við gall­er­íið þegar það flutti á Klapp­ar­stíg 33 og hefur haldið því síðan á milli hús­næða. Börkur lýsir þeim sem fá að sýna í i8 ein­fald­lega með orð­unum „allir góðir ein­hvern tím­ann og flestir oft“.

Myndlistin skiptir miklu máli – og líka engu

Um gildi mynd­listar í sam­fé­lag­inu veltir Börkur fyrir sér til hvers þetta allt sé, „ef ekki fyrir það sem við skiljum ekki alveg, reynum að átta okkur á og lærum kannski stundum um okkur sjálf eða aðra í leið­inni“. Hann segir að mynd­listin skipti miklu máli – og líka engu. 

„Mynd­listin skiptir miklu máli – og líka engu“

Lærdómur rekstursins

Af gall­er­í­rekstr­inum hefur Börkur lært það að for­vitni fólks er marg­brotin og kemur úr ólík­leg­ustu áttum. „Magnaðir hlutir verða til, stundum sprottnir upp úr óvissu, óör­yggi og ýmsu því sem stöðugt er verið að segja fólki að forð­ast.“ Einnig hefur rekst­ur­inn kennt honum að horfa langt og lengi.

Þemalag: Ég lýg ekki að mömmu með Spaða­bani.

I8, Tryggva­götu 16, 101 Reykja­vík

i8.is


GALLERÍ PORT

Árni Már Erlings­son og Skarp­héð­inn Berg­þóru­son halda úti Gallerí Port við Laugaveg 23. Það kom til þeirra óvænt að þeim bauðst að nýta hús­næðið, en þeir höfðu hafið sam­starf nokkru áður þegar þeir voru að skipu­leggja sam­sýn­ingu sín á milli. Upp­haf­lega stóð til að nýta hús­næðið í þrjá til fimm mán­uði sem nú hefur teygst á fimmta árið og haldnar hafa verið 80 mynd­list­ar­sýn­ingar og við­burðir. Þeir hafa þó aldrei planað fram í tím­ann því þeir vita í raun ekki hve langt sé eftir. Sam­sýn­ing Árna Más og Skarp­héð­ins hefur hins vegar verið á ís allan þennan tíma, Hill­billy þætti upp­lagt að það yrði loka­við­burð­ur­inn þegar að því kemur. 

„Nafnið kom vegna þess að ganga þarf í gegnum port til að kom­ast að rým­inu, það var aug­ljóst og ekk­ert annað kom til greina,“ segja Árni og Skarp­héð­inn. 

Port aðallega fyrir upprennandi listamenn

Port hefur ein­blínt á sýn­ingar með yngri lista­mönnum, á fyrstu 10 árunum eftir útskrift eða þeim sem eru að taka sín fyrstu skref í sen­unni. Þeir segja að það sé þó ekki algilt og hafa þeir haldið bæði sýn­ingar og haft verk á sam­sýn­ingum eftir marg­reynda og þekkta lista­menn og lista­menn af eldri kyn­slóð­inni. 

Listamenn sæki sér tækifærin sjálfir

Árni og Skarp­héð­inn telja vera mikið sam­starf og hjálp­semi í íslensku lista­sen­unni og mikil sam­heldni meðal lista­manna af yngri kyn­slóð­inni í Reykja­vík. „Erlendis er meiri sam­keppn­is­hugur í fólki og aðilum oft troðið um tær. Hér á landi er áber­andi að mynd­list­ar­menn sæki sér tæki­færin sjálfir,“ segja þeir og bæta við: „Það er mikið sótt um að sýna hjá okkur, meira en við getum torgað.“

Gildi myndlistar er alls konar

Árni og Skarp­héð­inn telja mynd­list geta verið bæði fræð­andi og upp­lífg­andi fyrir fólk á erf­iðum tímum. Mynd­listin kynnir sam­fé­lagið fyrir nýjum hug­myndum, er feg­urð­ar­auk­andi en eins getur hún verið „af-því-bara“. Því það er svo gaman að sjá fjöl­breyttar sýn­ingar og því ástunda þeir einmitt fjöl­breytni í sínu gall­eríi.

„Mynd­listin er feg­urð­ar­auk­andi en eins getur hún verið „af-því-bara“.“

Í gegnum gall­er­í­rekst­ur­inn hafa Árni og Skarp­héð­inn fengið að sjá mynd­list­ina frá öðru sjón­ar­horni, „ekki sem starf­andi lista­menn heldur sem verka­menn og við höfum lært hell­ing á því“. Þeir hafa myndað alls konar sam­bönd og vin­áttu, öðl­ast ný tæki­færi þar sem þeir hafa kom­ist í sam­band við alls kyns safn­ara og áhuga­fólk um mynd­list. „Fyrir utan alla skemmti­legu furðu­fugl­ana sem eru dag­legir gestir í Galleríi Port,“ bæta þeir við.

Þemalag: Miami með Baxter Dury 

Gallerí Port, Lauga­vegi 23, 101 Reykja­vík

facebook.com/gall­eryport


Skynlistasafnið

Freyja Eilíf, eig­andi Skyn­lista­safns­ins við Berg­staða­stræti 25B, segir að hug­myndin um að halda utan um list­rænt við­burða­rými hafi gripið hana eins og eft­ir­vænt­ing barns sem grefur árfar­veg í mold fyrir vatns­streymi sem hellt er úr könnu. Hún seg­ist einnig vera haldin mik­illi fram­kvæmda­of­virkni.

Ekki séns!

Áður starf­aði Skyn­lista­safnið undir for­merkjum „Ekkisens“, sem var gam­alt blóts­yrði sem langamma Freyju mund­aði mikið en það var oft mis­skilið sem ekki séns og er Freyja ánægð með að hafa skilið við það nafn, „nú er rýmið starf­rækt sem við­burða­rými og vinnu­stofa og nýja nafnið var til komið frá eigin vinnu­lagi, þar sem ég beiti sam­an­t­vinn­uðum skyn­færum í leit að bæði svörum og spurn­ingum í óvissu­fræðum,“ segir Freyja. 

Kumpánleiki, galsi og óþekkt

Í Skyn­lista­safn­inu segir Freyja að sýni gott fólk, að innan sem og utan, og finnst henni kump­án­leiki, galsi, óþekkt og eyði­merk­ur­gróður ein­kenna lista­sen­una í Reykja­vík. „Sam­tíma­list er það fárán­leg­asta og fal­leg­asta í senn, það sem mað­ur­inn skapar, og listin er drátt­ar­klár­inn okkar í hug­mynda­bylt­ingum,“ segir Freyja.

Þakklæti 

Freyja segir starfið hafa kennt sér að vera þakk­lát öllum þeim stofn­unum og ein­stak­lingum sem starfa við utan­um­hald um mynd­list, sýn­ingar og við­burði. Að bera traust til sýn­ing­ar­stjóra og galler­ista og virð­ingu fyrir starfi þeirra. Einnig hefur hún lært ýmis­legt um upp­lýs­inga­gjöf og sam­skipti þar sem starfið felur í sér að vera almanna­teng­ill. Mikill snið­ugur lær­dómur hefur einnig komið henni til góða, svo sem tækni­at­riði í smíða­vinnu, pípu­lögnum, raf­magns­fræði, lista­verka­flutn­ingum, við­burða­stjórn og und­ir­stöðu­at­riði góðrar sam­vinnu. 

Þemalag: Journey into the Satchidananda með Alice Coltraine.

Skyn­lista­safnið, Berg­staða­stræti 25B, 101 Reykja­vík

skyn­lista­safnid.com


Hill­billy er hlið­ar­sjálf systr­anna Röggu og Möggu Weisshappel og tala þær ætíð um hana í kven­kyni, ein­tölu, 3. per­sónu og þannig tekur Hill­billy öll við­töl systr­anna. Viðtöl hafa verið birt á vef­síð­unni hill­billy.is síðan 2017 og lifa þau einnig í hljóð­bylgjum í hlað­varps­þáttum á Stund­inni. 
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár