153. spurningaþraut: Hver tók viðtalið fræga við Sigmund Davíð? og fleiri spurningar

153. spurningaþraut: Hver tók viðtalið fræga við Sigmund Davíð? og fleiri spurningar

Góðan dag. Hér er hlekkur á þraut­ina síðan í gær.

***

Auka­spurn­ing fyrri:

Úr hvaða kvik­mynd er myndin hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hver leik­stýrði kvik­mynd­unum Gull­sandur, Dansinn og Máva­hlátur?

2.   Hvað hét banda­ríski hæsta­rétt­ar­dóm­ar­inn sem and­að­ist á dög­unum?

3.   Hvaða emb­ætti gegnir núver­andi vara­for­maður VG?

4.   Inn í hvaða land gerðu Kín­verjar inn­rás árið 1951?

5.   Davíð Oddsson, Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, Jón Steinar Gunn­laugs­son og fleiri ungir sjálf­stæð­is­menn á átt­unda ára­tugnum mynd­uðu hóp, sem leit­að­ist við að skerpa hug­mynda­fræði Sjálf­stæð­is­flokks­ins í átt til frjáls­hyggju. Hvað kall­að­ist hóp­ur­inn í dag­legu tali?

6.   Í hvaða landi er borgin Kraká?

7.   Hvar er sá kafli á þjóð­vegi eitt sem er hæstur yfir sjáv­ar­máli, eða í um 600 metra hæð?

8.   Hver er fjöl­menn­asta borgin á Englandi sem hefur aldrei átt fót­boltalið í efstu deild karla­bolt­ans?

9.   Hvaða íslenski frétta­maður átti við­tal við Sigmund Davíð Gunn­laugs­son í apríl 2016, er end­aði með því að Sig­mundur Davíð rauk út og þurfti síðan að segja af sér?

10.   Hvað kallar Jorge Mario Bergoglio sig um þessar mundir?

***

Auka­spurn­ing síð­ari:

Hver er þetta, á þess­ari mynd ögn yngri en við­kmandi er núna?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Ágúst Guð­munds­son.

2.   Ruth Bader Ginsburg.

3.   Umhverf­is­ráð­herra.

4.   Tíbet.

5.   Eim­reið­ar­hóp­ur­inn.

6.   Í Póllandi.

7.   Í Langadal. Það dugar líka að segja Möðru­dalsör­æfi.

8.   Wakefield í Yorks­hire. Þar búa um 100.000 manns.

9.   Jóhannes Kr. Krist­jáns­son.

10.   Frans.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Kvik­myndin er 2001: A Space Odyssey, hin sæfæ mynd eftir Stanley Kubrick.

Hér til hliðar má sjá aðra útgáfu af því þegar far­þega­ferja PanAm nálg­ast geim­stöð á braut um Jörðu.

Og ungi pilt­ur­inn á neðri mynd­inni hét og heitir enn Lionel Andrés Messi.

Hann hefur bara ekk­ert breyst!!

***

Og loks er hér aptur hlekkur á þraut­ina síðan í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár