Geta karlar verið femínistar?

Áskorun karl­kyns femínista felst í að skilja reynslu­heim kvenna og sam­þætta fem­iníska bar­áttu annarri rétt­inda­bar­áttu.

Geta karlar verið femínistar?

Það gleym­ist oft að femín­ismi miðar að því að brjóta upp marg­vís­leg valda­tengsl og mis­munun og leit­ast við að skapa sam­fé­lag sem er væn­legra fyrir okkur öll, sama hvað líður kyni eða öðru sem aðgreinir okkur. Þetta segir Þor­gerður Ein­ars­dóttir, pró­fessor í kynja­fræði við Háskóla Íslands. Við­mæl­endur mínir, nokkrir femínistar úr íslensku sam­fé­lagi, telja karla vel geta verið femínistar en áskorun karl­kyns femínista, og femínista almennt, sé að hlusta á reynslu­heim ann­arra, taka mark á honum og sam­þætta femíníska bar­áttu öðrum rétt­inda­bar­áttum. 

Sá sem sker, velur ekki

Fá, ef nokkur, segj­ast ekki styðja jafn­rétti og jafnan rétt fólks. Fólki greinir hins vegar á um merk­ingu þess að styðja þann jafna rétt. Sum segj­ast ekk­ert hafa á móti femín­isma en skil­greina sig jafn­rétt­is­sinna en önnur skil­greina sig skil­merki­lega sem femínista. Í athuga­semda­kerfi Stund­ar­innar er ekki óal­gengt að karlar fussi yfir femínískum skrifum og skil­greini sig ekki sem femínista. Oftast virð­ast þeir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Karlmennskan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár