Húsnæðisliðurinn verði ekki tekinn úr verðtryggingunni

Fjár­mála­ráð­herra segir vísi­tölu til verð­trygg­ingar hald­ast óbreytta að ósk verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Forseti ASÍ segir enga stefnu­breyt­ingu hafa orðið. Frumvarp um skref til afnáms verð­trygg­ingar var kynnt í tengslum við kjara­samn­inga fyrir rúmu ári en hefur ekki verið lagt fram.

Húsnæðisliðurinn verði ekki tekinn úr verðtryggingunni
Bjarni Bene­dikts­son Frumvarp fjár­mála­ráð­herra hefur ekki verið lagt fram rúmu ári eftir að til­kynnt var um það. Mynd: Geiri Pix / Pressphotos.biz

Rík­is­stjórnin hefur fallið frá lof­orði sem gefið var í tengslum við lífs­kjara­samn­ing­ana í fyrra um að ný neyt­enda­lán mið­ist við vísi­tölu án hús­næð­isliðar. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði að verka­lýðs­hreyf­ingin hefði fallið frá kröfum um þetta og því verði vísi­töl­unni ekki breytt eins og er.

Líkt og Stundin hefur greint frá mun laga­frum­varp um skref til afnáms verð­trygg­ingar ekki taka breyt­ingum eftir sam­ráðs­ferli frá því síð­asta sumar. Rúmt ár er liðið síðan frum­varpið var kynnt í tengslum við kjara­samn­inga, en það hefur ekki enn verið lagt fram á Alþingi.

Frum­varpið, sem kemur frá Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, felur í sér þrjár breyt­ingar á veit­ingu verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána. Óheimilt verður að veita þau til lengri tíma en 25 ára, nema ef lán­tak­endur eru ungt eða tekju­lágt fólk sem ætti í erf­ið­leikum með aukna greiðslu­byrði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár