Brýnt að bæta þjónustu við ungt fólk með heilabilun

Í bígerð er að opna mið­stöð fyrir ungt fólk sem greinst hefur með heila­bilun. Á hverju ári grein­ast um 20 manns undir 65 ára aldri með heila­bilun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Áætlað er að rúm­lega hund­rað manns auk aðstand­enda myndu á hverjum tíma geta nýtt sér þjón­ustu­mið­stöð­ina, sótt þar meðal ann­ars félags­skap, jafn­ingja­stuðn­ing, þjón­ustu sál­fræð­ings og ann­arra sér­fræð­inga.

Brýnt að bæta þjónustu við ungt fólk með heilabilun
Sig­ur­björg og Vilborg Þær starfa hjá Alzheimersamtökunum og segja eitt brýn­asta verk­efnið þar að bæta þjón­ustu við ungt fólk sem grein­ist með heila­bilun. Mynd: Heiða Helgadóttir

Alzheimersamtökin hafa í bígerð að opna sér­hæfða mið­stöð, þangað sem ungt fólk sem greinst hefur með heila­bilun og aðstand­endur þeirra geta leitað. Þetta þykir nauð­syn­legt til að bregð­ast við þeirri stöðu að á hverju ári grein­ast um 20 manns undir 65 ára aldri með heila­bilun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Eins og staðan er núna er litla aðstoð fyrir þennan hóp að hafa og tóma­rúm ríkir í þeirra með­ferð, allt þar til sér­hæfð dag­þjálfun tekur við í fram­gangi sjúk­dóms­ins. „Eftir grein­ingu getur fólk verið „á göt­unni“ í allt að fimm ár. Miðað við hvað margir grein­ast árlega erum við því að tala um að minnsta kosti hund­rað mögu­lega við­skipta­vini auk aðstand­enda í hverjum mán­uði  og rúm­lega það,“ útskýrir Vilborg Gunn­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Alzheimersamtakanna, og bætir því við að fyr­ir­myndir séu að mið­stöð af þess­ari tagi erlendis sem gefið hafi góða raun. 

„Eftir grein­ingu getur fólk verið „á göt­unni“ í allt að fimm ár“

Þjónustu við þennan hóp er, að sögn Vil­borgar og Sig­ur­bjargar Hann­es­dóttur, verk­efna- og fræðslu­stjóra, mjög ábóta­vant og er það eitt af helstu bar­áttu­málum sam­tak­anna nú að bæta hana. „Í þessum hópi er fólk sem jafn­vel gengur á Esjuna og hleypur mara­þon. Það er kannski hætt að vinna en þarf á því að halda að við­halda sinni virkni og hafa nóg fyrir stafni,“ útskýrir Vilborg. Mið­stöð­ina mætti helst bera saman við Ljósið. Þangað gætu ein­stak­lingar komið, fengið sér kaffi­bolla og hitt aðra í sömu stöðu, þegið fjöl­breytta þjón­ustu, til dæmis frá sjúkra­þjálf­ara, félags­ráð­gjafa eða sál­fræð­ingi, og tekið þátt í fjöl­breyttu starfi, til dæmis tekið þátt í söng­tímum, göngu­ferðum og íþrótta­iðkun. Þörfin sé mikil og við henni verði að bregð­ast fljótt. „Fólk kemur eða hefur sam­band við okkur, nýgreint, og segir: „Ég var að fá grein­ingu í síð­ustu viku, hvað er í boði fyrir mig?“ en þá er fátt um svör hjá okkur. Ef þú ert of hress til þess að fara í dag­þjálfun ertu bara heima hjá þér.“

Hún segir að sú dag­þjálfun sem nú er í boði henti ekki þessum hópi, auk þess sem biðlistar séu eftir þeirri þjón­ustu og mörgum nýgreindum reyn­ist þar að auki erfitt að sjá fyrir sér að taka þátt í henni. „Það getur líka verið mjög erfitt að selja fólki þá hug­mynd að fara í dag­þjálfun. Þetta er kannski fólk um sex­tugt eða sjö­tugt, sem kemur þarna inn og sér bara hóp af full­orðnu fólki. Það bakkar bara út og segir: „Þetta er ekki fyrir mig.““ 

Enn fordómar, þótt þeir hafi minnkað

Hjá Alzheimersamtökunum geta þeir sem greinst hafa með heila­bilun og aðstand­endur þeirra leitað sér upp­lýs­inga og fengið ýmiss konar ráð­gjöf. Yfirlýst mark­mið sam­tak­anna er að gæta hags­muna skjól­stæð­inga sinna, efla sam­vinnu og sam­heldni aðstand­enda með fræðslu­fundum og útgáfu­starf­semi og auka skiln­ing stjórn­valda, heil­brigð­is­stétta og almenn­ings á þeim vanda­málum sem þessir ein­stak­lingar og aðstand­endur þeirra eiga við að etja.

Unnið er að þessum mark­miðum með fjöl­breyttum hætti. Meðal ann­ars hafa sam­tökin gefið út appið „Heila­bilun“ þar sem nálg­ast má allar mögu­legar upp­lýs­ingar, þau veita lög­fræði­ráð­gjöf og vinna að því að gera ein­stak­linga og raunar heilu sam­fé­lögin að „heila­vinum“, sem þýðir að þau skuld­binda sig til að fræð­ast og vera opin fyrir því að aðstoða fólk með heila­bilun. Er hug­myndin að með því auk­ist með­vit­und og for­dómar minnki sam­hliða því. Enda er enn full þörf á því, eftir því sem þær Vilborg og Sig­ur­björg segja. „Þegar ein­stak­lingur greind­ist með heila­bilun hér áður fyrr var það nokk­urs konar fjöl­skyldu­skömm. Það hefur þó breyst og sér­stak­lega á allra síð­ustu árum, eftir að fólk sem er nýgreint hefur stigið fram og sagt sögu sína,“ segir Sig­ur­björg.

Vísar hún þar meðal ann­ars til Ellýjar Katrínar Guð­munds­dóttur, fyrrum borg­ar­rit­ara, sem greind­ist með Alzheimer rétt um fimm­tugt. Fyrir fjórum árum steig hún fram og lýsti sjálf reynslu sinni af því að grein­ast með sjúk­dóm­inn, á áhrifa­mik­inn hátt. Þetta vakti svo mikla athygli að sumir tala um fyrir og eftir Ellý. „Ellý var fána­beri og hún hjálp­aði mörgum að stíga fram og við­ur­kenna að þeir séu líka með þennan sjúk­dóm, sem er mik­il­vægt því nú taka þeir sjálfir þátt í því að móta það hvernig þjón­ustu þeir vilja og þurfa,“ segir Vilborg. Fyrir marga hafi verið mik­ill léttir að segja frá, sam­bæri­legur því að koma út úr skápnum. Þetta hafi þar að auki vakið athygli á því að heila­bilun er ekki aðeins sjúk­dómur sem hrjáir eldri borg­ara. Hann er ekki skil­greindur sem öldr­un­ar­sjúk­dómur heldur tauga­sjúk­dómur, þó að aldur auki vissu­lega líkur á honum. 

Mikilvægur frumkvöðlahópur

Á vett­vangi Alzheimersamtakanna hefur á und­an­förnum árum verið starf­ræktur svo­kall­aður frum­kvöðla­hópur, sem Ellý og hennar eig­in­maður áttu þátt í að koma á fót, en í honum er fólk yngra en 65 ára sem greinst hefur með heila­bil­un­ar­sjúk­dóma og þeirra nán­ustu aðstand­endur.

Hópurinn hefur gegnt mik­il­vægu hlut­verki í því að breyta ásjónu sjúk­dóms­ins og þeim fer hratt fjölg­andi sem sækja fundi hans. Sem dæmi má nefna að á síð­asta fund mættu hátt í 30 manns. Reynsla margra í hópnum er sam­bæri­leg, til að mynda kann­ast þau mörg við að fólk forð­ist að umgang­ast það. „Einn úr hópnum lýsti því hvernig hann steig upp á hjólið sitt og hjólaði til allra nágrann­anna og sagði þeim frá grein­ing­unni. Hann lýsti því sem hálf­gerðri frelsun. En hann sagði líka frá því að fljótt hafi vinir horfið og fjöl­skylda jafn­vel líka. Þetta er því miður algengt. Fólk virð­ist veigra sér við heim­sóknum og hugsa: „Æ, hann þekkir mig hvort sem er ekki lengur og man ekki eftir heim­sókn­inni á morgun.“ En svona á ekki að hugsa þetta, því þú ert að búa til gæða­stund hér og nú. Og jafn­vel þótt við­kom­andi muni ekki klukku­tíma seinna hvers vegna honum líður vel, þá líður honum vel.“

Mörg þeirra þurftu líka að hætta að vinna um leið og grein­ingin kom. Það finnst þeim Vilborgu og Sig­ur­björgu tíma­skekkja og hvetja vinnu­veit­endur til að vera sveigj­an­legri. „Það ger­ist ekk­ert á einni nóttu og fólk getur átt eitt til tvö góð ár á vinnu­stað, með smá aðlögun á starf­inu og aðstoð. Ellý Katrín vann til að mynda nokkuð lengi hjá borg­inni eftir grein­ingu og það þótti okkur virð­ing­ar­vert. Að láta fólk hætta strax lýsir for­dómum og þekk­ing­ar­leysi. Vinnu­veit­endur ættu að leita sér leið­bein­inga og ráð­gjafar um það hvernig þeir geta komið til móts við starfs­menn sem grein­ast með heila­bilun,“ segir Vilborg.  

Mikið mæðir á aðstandendum

Þó að æ fleiri þeirra sem sjálfir hafa greinst með heila­bilun hafi sam­band við Alzheimersamtökin eru aðstand­endur enn þar í miklum meiri­hluta, enda mæðir mikið á þeim. Þeir koma í ráð­gjöf en taka líka þátt í stuðn­ings­hópum sem hitt­ast reglu­lega til að bera saman bækur sínar. „Þetta eru lok­aðir hópar sem minna kannski einna helst á AA-fundi. Allt sem þar kemur fram er sagt í trún­aði og fólk deilir reynslu sinni, sem oft er mjög sár,“ segir Vilborg.

Þetta sé mik­il­vægur vett­vangur enda sé hlut­verk aðstand­enda oft flókið og erfitt. Fólki þyki gott að heyra af reynslu ann­arra og geta talað á opin­skáan hátt um mál sem aðrir, sem ekki eiga aðstand­anda með heila­bilun, eigi oft erfitt með skilja. „Svo erum við líka með yngri hóp sem ætl­aður er börnum for­eldra með hvers kyns heila­bil­un­ar­sjúk­dóma. Í sumum til­vikum er þetta ungt fólk sem jafn­vel býr enn þá heima hjá for­eldrum sínum. Í þessum til­vikum eru oft aðrar áhyggjur og til­finn­ingar að bær­ast með fólki, til dæmis áhyggjur af hinu for­eldr­inu, sem er jafn­vel í fullri vinnu og er að bug­ast undan því að sinna veika for­eldr­inu. Oft er mak­inn að hruni kom­inn og aðstand­endur þurfa ráð­gjöf um hvernig þeir geti orðið að liði.“

Aðstoð við erfiðar ákvarðanir

Oft standi aðstand­endur frammi fyrir erf­iðum ákvörð­unum og sam­tökin leggi sig fram við að aðstoða fólk við þær. Þau veiti til að mynda lög­fræði­að­stoð, sem sé mikið notuð. Þá fái fólk til að mynda ráð­gjöf um hvernig haga megi fjár­málum. Oft þurfi að taka flóknar ákvarð­anir, svo sem um svipt­ingu sjálf­ræðis. „Oft getur fólk ekki hugsað sér að gera það og bakkar út úr því, bara við að heyra þau orð. En það ljótasta við þetta er eig­in­lega orðið sjálft, því mann­eskjan sjálf verður aldrei vör við þetta. Þetta er í raun og veru bara til þess að auka allt rétt­mæti. Þegar að þessu er komið er mann­eskja ekki fær um að taka ákvarð­anir um eigið líf, um fjár­mál sín eða það sem er henni fyrir bestu. Maki má til dæmis ekki hafa sam­band við lækni og biðja um lækna­skýrslur, nema að fara með sjálf­ræði við­kom­andi,“ útskýrir Vilborg og Sig­ur­björg bætir við: „Þetta er erfið umræða að taka í byrjun sjúk­dóms og fólk gerir það oft aðeins of seint, þegar við­kom­andi er ekki lengur fær um að taka ákvarð­anir. Þetta getur verið mjög flókið.“ 

„Allt sem þar kemur fram er sagt í trún­aði og fólk deilir reynslu sinni, sem oft er mjög sár“

Ráð­gjöfin geti líka snú­ist um heim­il­is­lífið sjálft. Oft sýni ein­stak­lingar með heila­bilun til að mynda mikil ein­kenni reiði, sem geri heim­il­is­lífið mjög erfitt að takast á við. „Þá eru barna­börn stundum hætt að koma í heim­sókn, vegna þess að mann­eskjan með heila­bilun ræður ekki við áreiti og læti sem þeim fylgir. Þetta er erfitt fyrir aðstand­and­ann, því hann vill auð­vitað halda áfram líf­inu. Þetta er oft fólk í mik­illi krísu og það erf­ið­asta er að þetta getur í sumum til­vikum verið mjög langur tími. Heila­bilun getur varað frá 2 árum upp í 20 ár og ein­kennin eru mjög mis­mun­andi.“ 

Lokuðu ekki vegna COVID-19

Alzheimersamtökin reka þrjár dag­þjálf­anir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Fríðuhús, Maríuhús og Drafn­ar­hús. Til við­bótar við þær eru sex dag­þjálf­anir reknar af mis­mun­andi sam­tökum. Þeim dag­þjálf­unum sem Alzheimersamtökin reka var öllum haldið opnum meðan á sam­komu­banni stóð, sem þær Vilborg og Sig­ur­björg segja hafa verið mjög mik­il­vægt, enda fari fólki með heila­bilun hraðar aftur með minni örvun. Hins vegar hafi nokkuð verið um að fólk hafi ekki mætt, heldur verið heima í sjálf­skip­aðri sótt­kví. Vís­bend­ingar séu um að þeim sem ekki sóttu dag­þjálfun­ina hafi farið meira aftur en hinum, en að hve miklu leyti eigi eftir að koma betur í ljós. „Það versta sem fólk með heila­bilun gerir er að vera heima og ein­angra sig félags­lega, því þá er það ekki að virkja heil­ann og fer hraðar aftur. Þess vegna tölum við um sér­hæfða dag­þjálfun sem með­ferð. Þetta er ekki pöss­un­ar­staður og ekki til þess gert að maki geti farið að vinna, heldur með­ferð við sjúk­dómnum,“ segir Sig­ur­björg. 

Þær segja báðar að margt gott hafi gerst á und­an­förnum árum í með­ferð við heila­bilun, en enn sé mikið svig­rúm til úrbóta. „Við myndum vilja hafa heila­bil­un­ar­ráð­gjafa í hverri ein­ustu heilsu­gæslu­stöð og að engin bið væri eftir grein­ingu, því eins og er getur þú þurft að bíða í ein­hverja mán­uði eftir að kom­ast í grein­ingu, eftir að grunur vaknar. Það ætti heldur ekki að vera bið eftir að kom­ast í dag­þjálfun, eins og það er í dag, og svo er brýnt að koma þjón­ustu­mið­stöð­inni í gagnið – og helst þyrftum við eina hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og aðra úti á landi. Þannig væri þetta, í hinum full­komna heimi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Faraldur 21. aldarinnar

„Þetta er eins og að missa hann rosalega hægt“
FréttirFaraldur 21. aldarinnar

„Þetta er eins og að missa hann rosa­lega hægt“

Pabbi systr­anna Pálínu Mjallar og Guðrúnar Huldu greind­ist með Alzheimer fyrir sjö árum en þær segja erfitt að segja til um hvenær fyrstu ein­kenna sjúk­dóms­ins varð vart. Síðan þá hefur fjöl­skyldan tek­ist á við sjúk­dóm­inn í ferli sem syst­urnar lýsa sem afar lýj­andi. Þær eru þakk­látar fyrir kær­leiks­ríka umönnun pabba síns en segja afar brýnt að bæta stuðn­ing við nán­ustu aðstand­endur.
„Lífið er rólegra núna en við njótum þess“
ViðtalFaraldur 21. aldarinnar

„Lífið er rólegra núna en við njótum þess“

Tæplega fjögur ár eru frá því að Ellý Katrín Guð­munds­dóttir greind­ist með Alzheimer, aðeins 51 árs. Nýverið hófst nýr kafli í hennar lífi, þegar hún hætti að vinna hjá Reykja­vík­ur­borg og sneri sér alfarið að dag­þjálfun í Hlíðabæ. Hún og eig­in­maður hennar, Magnús Karl Magn­ús­son, standa nú sem fyrr þétt saman og hafa ein­sett sér að njóta ein­földu og kunn­ug­legu hlut­anna í líf­inu.
Pabbi þeirra varð bráðkvaddur skömmu eftir að mamma þeirra fór á hjúkrunarheimili
ViðtalFaraldur 21. aldarinnar

Pabbi þeirra varð bráð­kvaddur skömmu eftir að mamma þeirra fór á hjúkr­un­ar­heim­ili

For­eldrar systk­in­anna Ernu Rúnar, Berg­lindar Önnu og Hjalta., þau Hjört­fríður og Magnús Andri, lét­ust með tveggja ára milli­bili áður en þau náðu sex­tugu. Hjört­fríður hafði glímt við Alzheimer frá árinu 2012 og naut stuðn­ings Magnúsar, sem sinnti henni dag og nótt. Aðeins fáeinum mán­uðum eftir að hún flutti á hjúkr­un­ar­heim­ili varð hann bráð­kvaddur. Systk­inin eru þakk­lát stuðn­ingi sam­fé­lags­ins í Grinda­vík og segja áföllin hafa þjappað þeim saman og breytt afstöðu þeirra til lífs­ins. Þeim þyki lífið ekki lengur vera sjálf­sagt.
„Fólk heldur að maður sé orðinn alveg kexruglaður“
ViðtalFaraldur 21. aldarinnar

„Fólk heldur að maður sé orð­inn alveg kexrugl­aður“

Skip­stjór­inn Jónas Jónasson var ekki nema 53 ára þegar hann greind­ist með Alzheimer fyrir tveimur árum. Grein­ingin var honum og fjöl­skyld­unni högg, ekki síst vegna þess að honum var umsvifa­laust sagt upp vinn­unni og margir félagar hans hættu að hafa sam­band. „Hann var alltaf í sím­anum, það var aldrei hægt að ná í hann,“ segir dóttir hans. „En svo bara hætti sím­inn að hringja.“

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár