Töldu sig hlunnfarna um hálfan milljarð í fiskeldisviðskiptum

Þrír minni­hluta­hlut­hafar í Löxum eign­ar­halds­fé­lagi, sem seldi helstu eignir sínar til lax­eld­is­ris­ans sem nú heitir Kaldvík árið 2022, töp­uðu máli gegn norskum meiri­hluta­eig­anda félags­ins og end­ur­skoð­enda­skrif­stof­unni Deloitte. Bentu hlut­haf­arnir meðal ann­ars á kaup Ísfé­lags­ins og Jens Garðars Helga­sonar máli sínu til stuðn­ings.

Töldu sig hlunnfarna um hálfan milljarð í fiskeldisviðskiptum
Fiskeldi Þvert á rök­semdir minni­hluta­eig­end­anna taldi hér­aðs­dómur að kaup Ísfé­lags­ins og Jens Garðars á hlutum í félag­inu sem nú heitir Kaldvík renna stöðum undir að hlut­hafar hafi allar hagn­ast á sölu eigna Laxa. Mynd: Stundin

Leiti eign­ar­halds­fé­lag, Helgi G. Sig­urðs­son og Jóhannes Skag­fjörð Sig­urðs­son, töp­uðu á mánu­dag skaða­bóta­máli í hér­aðs­dómi Reykja­víkur gegn norska fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Heimstø AS og Deloitte.

Málið snýst um við­skipti frá maí 2022. Þá seldi Laxar eign­ar­halds­fé­lag ehf. helstu eignir sínar – allt hlutafé í Löxum Fiskeldi ehf. og 33,3% í Búlandstindi ehf. – til norska félags­ins Ice Fish Farm AS, sem nú heitir Kaldvík. Greiðslan var ekki í pen­ingum heldur í hluta­bréfum í Ice Fish Farm AS.

Heimstø AS var stærsti hlut­hafi beggja félaga og því þurfti að bera við­skiptin undir hlut­hafa­fund í Löxum eign­ar­halds­fé­lagi, þar sem þau voru sam­þykkt 30. maí 2022. Stefn­endur, sem voru minni­hluta­hlut­hafar í Löxum eign­ar­halds­fé­lagi, héldu því fram að eign­irnar hefðu verið seldar á und­ir­verði.

Þeir vildu meina að ákvörð­unin um sölu á fyr­ir­tæk­inu hefði verið tekin á grund­velli ófull­nægj­andi, rangra og hlut­drægra upp­lýs­inga end­ur­skoð­anda­fyr­ir­tæk­is­ins Deloitte. Þannig hefðu þeir, ásamt þriðja hlut­haf­anum, verið hlunn­farnir …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár