Uppþot í Bandaríkjunum: Fréttamaður CNN handtekinn

Myndband sýnir fylk­is­lög­reglu­menn í Minnesota hand­taka frétta­mann CNN á vett­vangi eftir mót­mæli vegna and­láts George Floyd af völdum lög­reglu­manns, sem fengið hefur á sig 18 kvart­anir.

Uppþot í Bandaríkjunum: Fréttamaður CNN handtekinn
Lög­reglu­stöðin logar Seint í gær­kvöldi var kveikt í lög­reglu­stöð í Minn­ea­polis í Minnesota. Mynd: kerem yucel / AFP

Omar Jimenez, frétta­maður CNN, var hand­tek­inn nærri vett­vangi upp­þota í Minnesota í morgun. Var hann í beinni útsend­ingu þegar fylk­is­lög­reglu­menn hand­tóku hann, að því er virð­ist að til­efn­is­lausu, eins og sést á mynd­bandi.

Eldar hafa logað í Minn­ea­polis í upp­þotum almennra borg­ara. Í tví­bura­borg­inni, St. Paul, hafa engar til­kynn­ingar um meiðsli borist, en skemmdir hafa verið unnar hjá 170 fyr­ir­tækjum. Mótmæli hafa nú einnig átt sér stað í New York, Denver, Phoenix, Memphis og Columbus í Ohio.

Uppþotin hafa átt sér stað í kjöl­far þess að George Floyd, þeldökkur maður, lést eftir hand­töku lög­reglu í Minn­ea­polis­borg, eftir að lög­reglu­maður setti hné sitt og hvíldi þunga sinn á hálsi manns­ins. 

Mót­mæl­endur hafa hrópað nafn George Floyd og „I can't bre­athe“, eða „Ég get ekki andað“, sem voru and­láts­orð Floyd.

Floyd, sem var 46 ára gam­all, lést eftir að lög­reglan kom á vett­vang til að sinna meintri fölsun í hverf­is­verslun.

Handtaka George FloydMynd­bandið er ekki fyrir við­kvæma.

Lög­reglan í Minn­ea­polis greinir frá því að lög­reglu­mað­ur­inn, sem olli dauða Floyds, hafi fengið á sig 18 kvart­anir. Lög­reglu­mað­ur­inn, sem heitir Derek Chauvin, var rek­inn ásamt þremur sam­starfs­mönnum sínum vegna and­láts Floyds. Þeir hafa hins vegar ekki verið ákærðir fyrir glæp og vilja mót­mæl­endur koma því til leiðar.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti sagði á Twitter í gær­kvöldi að mót­mæl­endur mættu búast við því að skot­hríð hæf­ist ef grip­deildir ættu sér stað. „When the looting starts, the shooting starts,“ tísti Trump. „Þessir ÓÞOKKAR eru að van­virða minn­ingu George Floyd, og ég leyfi því ekki ger­ast. Var að tala við Tim Walz rík­is­stjóra og sagði honum að Herinn sé með honum alla leið. Ef þetta verður vanda­mál munum við taka stjórn­ina, en þegar ránin byrja hefst skot­hríðin. Takk fyrir!“ 

Twitter faldi tístið, á grund­velli þess að um upp­hafn­ingu ofbeldis væri að ræða. Það var þó enn sýni­legt undir við­vörun um að efnið bryti gegn reglum mið­ils­ins, en þó væri í hags­munum almenn­ings að hægt væri að nálg­ast það.

Mark Zuckerberg, eig­andi og for­stjóri Facebook, hefur boðað að engin sam­bæri­leg rit­skoðun verði á efni frá for­set­anum á Facebook.

Trump hefur brugð­ist við stað­reynda­vöktun og við­vör­unum Twitter með því að und­ir­rita for­seta­til­skipun sem ætlað er að veikja rétt­ar­stöðu sam­fé­lags­miðla. Samkvæmt lögum frá árinu 1996 eru sam­fé­lags­miðlar ekki laga­lega ábyrgir fyrir efni sem birt­ist á þeim og hafa þeir rúman rétt til þess að rit­skoða efnið. Með til­skipun Trumps verður hægt að sak­sækja sam­fé­lags­miðla ef þeir snerta við efn­inu með ein­hverjum hætti, til dæmis með því að setja við­var­anir á það eða fela það. Búist er við því að dóm­stólar muni taka afstöðu til til­skip­un­ar­innar.

Af vett­vangi mót­mæla í gær­kvöldiMótmæli skekja Minn­ea­polis og St. Paul.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

#BlackLivesMatter

Rísa upp gegn misrétti, ofbeldi og niðurlægingu
Erlent#BlackLivesMatter

Rísa upp gegn mis­rétti, ofbeldi og nið­ur­læg­ingu

Mótmælin vegna dauða George Floyd hafa varpað kast­ljósi á elsta og rót­grón­asta vanda­mál Banda­ríkj­anna. Aðgerða­sinnar og skipu­leggj­endur mót­mæla segja að komið sé að löngu tíma­bæru upp­gjöri við þá kyn­þátta­hyggju sem gegn­sýrir allt dag­legt líf og póli­tík vest­an­hafs. Banda­ríska lög­reglan er sögð órjúf­an­legur hluti af kerfi sem hefur frá upp­hafi nið­ur­lægt blökku­fólk og beitt það skipu­lögðu póli­tísku ofbeldi fyrir hönd hvíta meiri­hlut­ans.
Elliði varar við því að íslenska lögreglan gæti þurft að vígbúast
Fréttir#BlackLivesMatter

Elliði varar við því að íslenska lög­reglan gæti þurft að víg­bú­ast

Ummæli Elliða Vign­is­sonar, bæj­ar­stjóra Ölfuss, um ofbeldi almennra borg­ara gegn lög­regl­unni vöktu hörð við­brögð. Hann áréttar áhyggjur sínar af stöðu íslensku lög­regl­unnar og varar við því að hún gæti þurft að vopn­bú­ast enn frekar. Afbrota­fræð­ingur bendir á að ekk­ert styðji full­yrð­ingar Elliða um vax­andi nei­kvæðni í garð lög­reglu, sem þurfi að fara var­lega í vald­beit­ingu gagn­vart minni­hluta­hópum.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár