Spurningaþraut 27: Stríðseyja, fundin kona og hve háir eru gíraffar?

Spurningaþraut 27: Stríðseyja, fundin kona og hve háir eru gíraffar?

Í 27. sinn birt­ist hér spurn­inga­þraut. Tíu spurn­ingar og tvær í kaup­bæti:

Hér fyrir ofan er ein fræg­asta ljós­mynd síð­ari heims­styrj­aldar og sýnir banda­ríska her­menn reisa fána sinn á eyju sem þeir höfðu náð af Japönum eftir harða bar­daga. Myndin er glæsi­leg og segir sína sögu, þótt hún hafi reyndar verið tekin að beiðni ljós­mynd­ar­ans. En á hvaða eyju er hún tekin?

Og hin auka­spurn­ingin:

Hvað heitir karl­inn á mynd­inni hér að neðan?

En hinar „10 af öllu tagi“ eru svona: 

1.   Hvað heitir höf­uð­borg Írlands?

2.   Árið 2003 fund­ust á eyj­unni Flores leifar beina­grind konu einnar, er reynd­ist vera af áður óþekktri mann­teg­und. Og sú teg­und kom mönnum alveg í opna skjöldu. Hvers vegna?

3.   En meðal ann­arra orða, hvaða ríki til­heyrir eyjan Flores? 

4.   Ragnar í Smára var mik­ill menn­ing­ar­fröm­uður á Íslandi um mið­bik 20. aldar og gaf sig ekki síst að bóka­út­gáfu. „Smári“ sá sem Ragnar var kenndur við var hins vegar allt öðru­vísi fyr­ir­tæki, er hann rak og færði honum salt í graut­inn. Hvað varn­ingur tengd­ist Smára umfram allt í vit­und fólks?

5.   Hvað hét söng­konan sem söng með Hljómum og Trúbrot hér fyrr­meir?

6.   Hvað heitir breskur fót­bolta­kappi, korn­ungur, sem spilar nú með liði Borussia Dortmund í Þýska­landi en er nú gjarnan orð­aður við flest­öll stærstu liðin á Englandi og jafn­vel víðar?

7.   Hversu hár var hæsti gíraffi sem vitað er um? Hér má skeika 30 sentí­metrum til eða frá.

8.   Sam Slater heitir maður nokkur, tón­skáld og alhliða upp­töku- og tón­list­ar­maður. Hann er enskur en býr reyndar ekki í heima­landi sínu. Hver skyldi nú vera konan hans?

9.   Hvað heitir sitj­andi for­maður Flug­freyju­fé­lags­ins sem nú stendur í ströngu í kjara­bar­áttu?  Óhætt er að láta uppi að um konu er að ræða, og hún gegnir starf­inu þangað til hinn kjörni for­maður snýr til baka úr fæð­ing­ar­or­lofi í haust. Óþarfi er að muna föð­ur­nafn hins sitj­andi for­manns.

10.   Árið 2011 vann íslensk stúlka í fyrsta sinn gull­verð­laun á virtasta CrossFit móti heims­ins. Hún end­ur­tók svo leik­inn ári síðar. Hvað heitir hún, og hér má líka sleppa föð­ur­nafni?

Þá eru hér svörin:

1.   Dublin.

2.   Hún var svo smá­vaxin, aðeins um einn metri á hæð.

3.   Indónesíu.

4.   Smjör­líki.

5.   Shady Owens.

6.   Jadon Sancho.

7.   5,80 metrar. Rétt telst því vera allt frá 5,50 til 6,10.

8.   Hildur Guðna­dóttir.

9.   Guðlaug Líney heitir hún og er Jóhanns­dóttir, en það dugar að þekkja fornöfnin tvö.

10.   Annie Mist - og hún er reyndar Þór­is­dóttir.

Svörin við auka­spurn­ing­unum eru Ívo Jíma og tón­list­ar­mað­ur­inn Kanye West.

Hér er svo þrautin frá í gær.

En næsta þraut, hún er aptur á móti hvergi nema hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár