Spurningaþraut 26: Dóttir Stalíns og vinur Hróa hattar

Spurningaþraut 26: Dóttir Stalíns og vinur Hróa hattar

Hér er komin spurn­inga­þrautin „10 af öllu tagi“ númer 25.

Auka­spurn­ingar eru þessar:

Í hvaða borg er efri myndin tekin?

Hvað nefn­ist sú hvala­teg­und sem sést á neðri mynd­inni?

En hér er svo spurt:

1.   Inn af Húnaflóa ganga nokkrir firðir. Við einn þeirra stendur bær­inn Hvamms­tangi. Hvað heitir sá fjörður?

2.  Reiki­stjarnan Júpíter hefur um sig tugi tungla, en fjögur þeirra eru langstærst. Þau heita Ganymede, Callisto, Íó og … hvað heitir það fjórða?

3.   Nína Dögg Fil­ipp­us­dóttir, Gísli Örn Garð­ar­son og fleiri komu fyrst fram á sjón­ar­sviðið í íslensku lista­lífi með litlu leik­húsi eða leik­hópi sem kall­að­ist …?

4.   Lilja Alfreðs­dóttir er mennta­mála­ráð­herra. Hvað er milli­nafn hennar?

5.   Jósef Stalín leið­togi Sov­ét­ríkj­anna átti eina dóttur. Mikla athygli vakti þegar hún stakk af frá Sov­ét­ríkj­unum árið 1967. Hvað hét hún? Hér dugar for­nafn hennar.

6.   Fyrir fimm árum, eða 2015, gerð­ist það í fyrsta sinn að blaða­maður fékk Nóbels­verð­laun í bók­menntum. Margir fyrri Nóbels­verð­launa­hafa höfðu vissu­lega feng­ist mikið við blaða­mennsku, en þessi höf­undur frá Hvíta-Rúss­landi hefur ein­göngu sinnt blaða­mennsku með mögn­uðum við­tals­bókum þar sem fólk á ýmsum sviðum segir frá. Hvað heitir þessi Nóbels­verð­launa­hafi?

7.   Kvik­mynda­stjarna nokkur fædd­ist árið 1905, náði ung heims­frægð en er eftir á kunn­ust fyrir setn­ing­una: „Ég vil vera ein,“ sem hún sagði í fleiri en einni bíó­mynd. Hún lést ein árið 1990. Hvað hét hún?

8.   Hvað er fullt nafn ungu sænsku stúlkunnar sem orðið hefur kunn fyrir umhverf­is­bar­áttu sína síð­ustu miss­eri?

9.   Nú er að sjá hvort ein­hver man eftir Hróa hetti. Í sög­unum um bar­áttu hans við að stela frá hinum ríku og gefa þeim fátæku er jafnan við hlið hans dyggur vinur og traustur bar­áttu­fé­lagi, helj­ar­menni að burðum. Hvað nefn­ist sá?

10.   Sigríður Tóm­as­dóttir hét kona og er oft sögð hafa „bjargað Gull­fossi“ þegar erlendir auð­menn ætl­uðu að kaupa foss­inn í byrjun 20. aldar. Sigríður er jafnan kennd við bæinn þar sem hún bjó alla ævi. Hvað hét hann?

Hér eru svörin:

1.  Mið­fjörður.

2.   Evrópa.

3.   Vest­ur­port.

4.   Dögg.

5.   Svetlana Alli­lú­jéva. En Svetlana dugar.

6.   Svetlana Alexeév.

7.   Greta Garbo.

8.   Greta Thunberg.

9.   Litli Jón.

10.   Bratt­holt.

Efri myndin er tekin í Jer­úsalem, eins og þekkja má af Al Aqsa mosk­unni sem aðeins sést í lengst til hægri.

Og hvalur sá hinn bægsla­mikli er hnúfu­bakur.

Hér er þrautin frá í gær. Tékkið endi­lega á henni líka.

Næsta þraut er hins vegar hér. Þar er líka spurt um allt mögu­legt merki­legt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár