Hér eru næstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar

Meðal aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar í aðgerða­pakka tvö eru: Frí­stunda­styrkur til tekju­lágra for­eldra, álags­greiðslur til heil­brigð­is­starfs­fólks, stuðn­ings­lán til lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja, lok­un­ar­styrkir til fyr­ir­tækja, átak gegn ofbeldi, sum­ar­úr­ræði fyrir náms­menn, nýsköpun og mark­aðs­setn­ing í mat­væla­fram­leiðslu og hærra hlut­fall end­ur­greiðslu vegna rann­sóknar og þró­unar.

Á fundinum í dag Katrín Jakobsdóttir kynnir aðgerðir.

Annar aðgerða­pakki rík­is­stjórn­ar­innar vegna COVID-19 var kynntur rétt í þessu. Lána­úr­ræði til smárra og með­al­stórra fyr­ir­tækja upp að 6 millj­ónum króna með 100% rík­is­á­byrgð og lok­un­ar­styrkir upp að 2,4 millj­ónum króna eru meðal þess sem rík­is­stjórnin boðar í pakka sem kostar í heild­ina allt að 60 millj­örðum króna, sam­kvæmt kynn­ingu rík­is­stjórn­ar­innar. Tveir þriðju hlutar upp­hæð­ar­innar eru hins vegar lán til fyr­ir­tækja, sem ættu að end­ur­greið­ast, og svo til­færsla á skatt­greiðslum. Raun­veru­leg útgjöld eru á end­anum mun lægri.

Í aðgerða­pakk­anum fá tekju­lágir for­eldrar sér­staka frí­stunda­styrki og þrjú þús­und störf fyrir náms­menn verða fjár­mögnuð af rík­inu. Auk þess fá lista­menn 600 verk­efna­mán­uði til við­bótar við það sem var, en áður hafði verið úthlutað 1600 mán­uðum. Þannig verður ígildi 50 fullra lista­manna­launa í heilt ár úthlutað til við­bótar við það sem nú er.

Mikil áhersla verður lögð á nýsköpun og fjöl­miðlar fá 350 millj­óna króna stuðn­ing.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Sigurður Ingi Jóhanns­son sveit­ar­stjórna- og sam­göngu­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra, kynntu aðgerð­ar­pakk­ann á kynn­ing­ar­fundi í Safna­hús­inu við Hverf­is­götu klukkan fjögur í dag.

Bjarni kynnti aðgerðir sem bein­ast að fyr­ir­tækjum. Hann sagði að í kynn­ingu síð­asta efna­hag­s­pakka, sem kynntur var fyrir mán­uði síðan og nam sam­tals ígildi 234 millj­arða króna, hafi ekki verið ljóst hversu lang­vinnar afleið­ingar við­braðga við COVID-19 far­aldr­inum myndu verða.

Bjarni kynnir fyr­ir­tækja­pakkaFjár­mála­ráð­herra á fund­inum í dag.

Framlög til fyrirtækja

„Við sáum ekki fram á það hversu langt tíma­bil þetta yrði,“ sagði Bjarni. Hann sagði að aðgerðir í fyrsta aðgerða­pakka hefðu „reynst mjög vel“. „Það hafa veru­legar fjár­hæðir gagn­ast atvinnu­líf­inu með þeim frest­un­ar­á­kvörð­unum sem við tókum.“

Hann sagði hluta­bóta­leið­ina hafa gagn­ast sér­stak­lega vel. „Við erum með núna 33 þús­und ein­stak­linga inni í því úrræði. Það hefur hjálpað þeim ein­stak­lingum að stand­ast skil ann­ars staðar ... Okkur er að takast að við­halda greiðslu­flæði í hag­kerf­inu með þessum aðgerðum,“ sagði Bjarni.

Að hámarki verði nú sex millj­óna króna lán veitt til smárra og með­al­stórra fyr­ir­tækja, sem eru yfir átta þús­und tals­ins í heild­ina. Skilyrði er að félögin hafi orðið fyrir 40% tekju­falli og séu með tekjur undir 500 millj­ónum króna á ári, en yfir 9 millj­ónum króna. Þessi lán úti­loki ekki að sömu fyr­ir­tæki fái brú­ar­lán, sem kynnt voru í síð­asta aðgerða­pakka. Hins vegar er horft til þess að félögin hafi hvorki greitt arð frá 1. mars síð­ast­liðnum, né lent í van­skilum á opin­berum gjöldum eða lánum í meira en 90 daga. Þau eigi því að telj­ast rekstr­ar­hæf eftir að áhrif COVID-19 líða hjá. 97% veit­inga­staða, 98% hóp­ferða­fyr­ir­tækja og 100% gisti­staða eru talin geta nýtt sér úrræðið.

Þá fái þau fyr­ir­tæki, „sem var gert að loka starf­semi sinni vegna sótt­varna­að­gerða“, styrk sem bætir hluta af skað­anum. 2,5 millj­arðar króna fara í lok­un­ar­styrki, eða 800 þús­und krónur fyrir hvern starfs­mann og að hámarki 2,4 millj­ónir króna á hvern rekstr­ar­að­ila.

Loks geta fyr­ir­tæki jafnað tap árs­ins í ár við hagn­að­inn í fyrra, til að auka laust fé. Þannig losni þau við að greiða tekju­skatt á árinu. Kostn­að­ur­inn er tal­inn nema um 13 millj­örðum króna.

Eyðsla Íslendinga ferðast innanlands

Yfir 50 þús­und eru á atvinnu­leys­is­skrá og fá bætur eða hluta­bætur vegna skerts starfs­hlut­falls. Alþýðu­sam­band Íslands hefur fengið ábend­ingar um mis­notkun á úrræð­inu. Atvinnu­leysi í apríl mun ná 17% í apríl, miðað við áætlun Vinnu­mála­stofn­unar. 29 þús­und af 200 þús­und starfs­mönnum á íslenskum vinnu­mark­aði starfa í ferða­þjón­ustu.

Um 240 millj­örðum króna var eytt með erlendum kredit­kortum á Íslandi í fyrra, sem jafn­gildir um fimmt­ungi allrar korta­veltu hér­lendis.

Á móti kemur að Íslend­ingar eyddu 180 millj­örðum króna á ferða­lögum erlendis í fyrra. Stór hluti þess­ara umsvifa eru því talin munu fær­ast inn­an­lands í formi sparn­aðar og neyslu. Sá hluti sem fer í neyslu mun auka inn­lenda eft­ir­spurn.

Íslend­ingar hafa hins vegar mun meiri tekjur af ferða­þjón­ustu en kostnað af eigin ferða­lögum erlendis og því eru áhrifin af ferða­banni nei­kvæð. Árið 2019 var þjón­ustu­jöfn­uður Íslend­inga gagn­vart útlöndum jákvæður um 239 millj­arða króna, og þar af mun­aði rúm­lega 130 millj­örðum króna á umsvifum við ferða­lögum útlend­inga hér en Íslend­inga erlendis. Sami munur nam ein­ungis 6,6 millj­örðum króna árið 2014.

Listamenn, fjölmiðlar og heilbrigðisstarfsfólk

Meðal ann­arra aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar í aðgerða­pakka tvö eru frí­stunda­styrkur til tekju­lágra for­eldra, álags­greiðslur til heil­brigð­is­starfs­fólks, lok­un­ar­styrkir til fyr­ir­tækja, átak gegn ofbeldi, sum­ar­úr­ræði fyrir náms­menn, nýsköpun og mark­aðs­setn­ing í mat­væla­fram­leiðslu og hærra hlut­fall end­ur­greiðslu vegna rann­sóknar og þró­unar. „Það er stað­reynd að þetta ástand hefur haft veru­leg áhrif á geð­heil­brigði fólks,“ sagði Sigurður Ingi. 

„Það er stað­reynd að þetta ástand hefur haft veru­leg áhrif á geð­heil­brigði fólks“

Meðal sér­tækra aðgerða er að veita 350 millj­óna króna fjár­fram­lagi til einka­rek­inna fjöl­miðla, sam­kvæmt reglu­gerð mennta­mála­ráð­herra. Samkvæmt úttekt Blaða­manna­fé­lags Íslands er þar um að ræða hlut­falls­lega mun lægri styrki en til fjöl­miðla í Svíþjóð og Danmörku.

„Þá verða fram­lög til lista­manna­launa aukin þannig að úthluta megi rúm­lega 600 verk­efna­mán­uðum til við­bótar á árinu 2020,“ segir í kynn­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins.

Viðkvæmir hópar

Í félags­legum aðgerðum er boðað að við­kvæmir hópar verði vernd­aðir, en þeir eru eldri borg­arar, öryrkjar, fatlað fólk og fólk af erlendum upp­runa.

Þannig verði „efl­ing félags­mið­stöðva fyrir eldri borg­ara“ ein aðgerð­anna og óskil­greindar „aðgerðir til að vinna gegn nei­kvæðum félags­legum afleið­ingum far­ald­urs­ins á við­kvæma hópa“. 

Átak verður gert gegn heim­il­is­of­beldi og ofbeldi gegn börnum með stuðn­ingi við Barnahús og hjálp­ar­sím­ann 1717, ásamt fjár­fram­lags til félaga­sam­taka sem sinna ráð­gjöf, sam­tals sem nemur 200 millj­ónum króna.

For­eldrar með sam­an­lagðar tekjur undir 740 þús­und krónum á mán­uði fá frí­stunda­styrk sem nemjur 50 þús­und krónum, í gegnum sveit­ar­fé­lög.

Útlistun aðgerðaAðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar eru kynntar hér.
Nánari útlistunMynd úr glæru­sýn­ingu á kynn­ing­ar­fundi stjórn­valda.

Stuðningur við nýsköpun

Sérstök áhersla verður lögð á frum­kvöðla- og nýsköp­un­ar­starf­semi í aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar með 4,4 millj­arða króna aukn­ingu fjár­fram­lags. Þannig verður veitt 1,1 millj­arði króna í nýsköp­un­ar­stjóð­inn Kríu. End­ur­greiðslur vegna rann­sóknar og þró­unar verða auknar úr 20 pró­sentum í 25 pró­sent. Þak á end­ur­greiðslum er jafn­framt hækkað úr 600 millj­ónum króna í 900 millj­ónir króna. 

Katrín Jak­obs­dóttir sagði í upp­hafi fundar að Íslend­ingar þyrftu að halda sig við að fylgja reglum almanna­varna. „Það er mjög mik­il­vægt að við höfum úthald í að klára þetta fram til fjórða maí,“ sagði Katrín. Við slökun sam­komu­banns 4. maí verður aftur tekin upp starf­semi á hár­greiðslu­stofum, tann­lækna­stofum, nudd­stofum, sjúkra­þjálfun, snyrti­stofum og við ýmsa heil­brigð­is­þjón­ustu.

Katrín sagði að sam­heldnin, sveigj­an­leik­inn og seiglan hefðu hjálpað Íslend­ingum í gegnum far­ald­ur­inn, og að þörf væri á sömu eig­in­leikum til að takast á við efna­hags­legar afleið­ingar.

Umfang fyrri pakka rík­i­s­tjórn­ar­innar, sem kynntur var í mars, var allt að 234 millj­arðar króna, eða sem nemur 7,8 pró­sentum af lands­fram­leiðslu. Nýkynntur efna­hag­s­pakki númer tvö nemur því um tveimur pró­sentum lands­fram­leiðslu, að með­töldum lánum til fyr­ir­tækja sem ættu að end­ur­greið­ast og frestun skatt­greiðslna. Sam­an­lagt eru aðgerð­irnar tölu­vert minni umfangs en í flestum sam­an­burð­ar­ríkjum þegar litið er til hlut­falls lands­fram­leiðslu.

Katrín Jak­obs­dóttir sagði á fund­inum að aðgerðum væri ekki lokið. „Þetta er ekki síð­asti pakk­inn, ekki frekar en sá síð­asti.“

Samkvæmt fjár­auka­frum­varpi sem dreift var á Alþingi í dag er útgjalda­aukn­ing tölu­vert lægri en 60 millj­arður króna, eða 13 millj­arðar króna. Stærsti hluti aðgerð­anna felst í lánum, eða 28 millj­arðar króna, og til­færslu á skatt­greiðslum, eða 13 millj­arðar króna. Þá hefur hluti „sér­tæks stuðn­ings“ þegar verið heim­il­aður í fjár­lögum. „Hækkun í þessu frum­varpi svarar til um 1,3% af áður sam­þykktum fjár­heim­ildum,“ segir í frum­varp­inu.

YfirlitStærsti hluti pakk­ans eru lán og til­færsla á skatt­greiðslum.

Tilkynning um aðgerðir

Yfirlýsing frá Stjórnarráðinu vegna heildaraðgerða

Lítil fyr­ir­tæki í rekstr­ar­örð­ug­leikum fá stuðn­ing, brugð­ist er við vanda náms­manna, félags­leg úrræði efld og sjónum er beint að nýsköpun til fram­tíðar. Þetta er hluti af fram­halds­að­gerðum stjórn­valda sem Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra hafa kynnt vegna heims­far­ald­urs kór­óna­veiru. Jafn­framt greindu þau frá því að fram­línu­fólk í heil­brigð­is­þjón­ustu sem búið hefur við aukið álag og mikla smit­hættu fái álags­greiðslu. 

Sérstök áhersla er lögð á upp­bygg­ingu með nýsköpun í aðgerða­á­ætlun stjórn­valda. Lögð eru til aukin fram­lög til fjár­fest­ingar í sprota­fyr­ir­tækjum og hækkun end­ur­greiðslu­hlut­falls og fjár­hæð­ar­þaks til fyr­ir­tækja vegna rann­sókna og þró­unar, en áhrif þess­ara aðgerða nema tæpum 4,5 millj­örðum króna. Stefnt er að því að flýta end­ur­greiðslum vegna rann­sókna og þró­unar fyrir árið 2019. Auk þess verður sótt fram í mat­væla­fram­leiðslu, meðal ann­ars með nýsköpun og mark­aðs­setn­ingu. Þá verða fram­lög til lista­manna­launa aukin þannig að úthluta megi rúm­lega 600 verk­efna­mán­uðum til við­bótar á árinu 2020. 

Veittir verða lok­un­ar­styrkir til fyr­ir­tækja sem var gert að hætta starf­semi vegna sótt­varna, allt að 2,4 m.kr. Lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki í rekstr­ar­örð­ug­leikum geta sótt um allt að 6 m.kr. óverð­tryggð stuðn­ings­lán á sömu vöxtum og sjö daga bundin inn­lán lána­stofn­ana hjá Seðla­banka Íslands, sem nú eru 1,75%. Ljóst er að stór hluti fyr­ir­tækja sem starfa í ferða­þjón­ustu mun geta nýtt leið­ina þar sem hlut­fall lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja er tölu­vert meira í ferða­þjón­ustu en öðrum greinum. Áætluð heild­ar­út­gjöld vegna þess­ara tveggja aðgerða eru talin geta numið rúm­lega 30 millj­örðum króna. Einnig verður fyr­ir­tækjum heim­ilt að jafna vegna tekju­skatts allt að 20 m.kr. af fyr­ir­sjá­an­legu tapi árs­ins 2020 á móti hagn­aði árs­ins 2019. 

Félags­leg úrræði með stuðn­ingi við við­kvæma hópa, atvinnu­leit­endur og náms­menn vega þungt í aðgerða­pakk­anum. Verður 2,2 millj­örðum króna varið til að skapa 3000 tíma­bundin störf í sumar fyrir náms­menn 18 ára og eldri og 300 m.kr. til að efla nýsköpun meðal ungra frum­kvöðla gegnum Nýsköp­un­ar­sjóð náms­manna. Auk þess verður 800 m.kr. veitt til að bjóða sum­arönn í fram­halds- og háskólum sem nýt­ist bæði nem­endum og fólki á atvinnu­leysis- eða hluta­bótum. Einnig verður ráð­ist í aðgerðir til að hlúa að við­kvæmum hópum, vinna gegn ofbeldi og félags­legri ein­angrun aldr­aðra og öryrkja, styðja við virkni atvinnu­leit­enda og tryggja tæki­færi barna úr tekju­lágum fjöl­skyldum til að taka þátt í frí­stunda­starfi. Hugað verður sér­stak­lega að því að auka aðgengi að geð­heil­brigð­is­þjón­ustu og fjar­heil­brigð­is­þjón­usta verður efld. Alls verður um 8,5 ma.kr. varið til félags­legra aðgerða í þessum áfanga.

Til að styðja við fjöl­ræði og fjöl­breytni á fjöl­miðla­mark­aði verður einka­reknum fjöl­miðlum tryggður sér­stakur rekstr­ar­stuðn­ingur á yfir­stand­andi ári, en þeir hafa tapað miklum tekjum á sama tíma og eft­ir­spurn eftir þjón­ustu þeirra hefur auk­ist. Komið verður til móts við lausa­fjár­vanda ferða­skrif­stofa með laga­breyt­ingu sem heim­ilar þeim að end­ur­greiða vissar ferðir með inn­eign­arnótum. 

Til þess að liðka fyrir mark­miði sveit­ar­fé­laga um flýtifram­kvæmdir er lagt til að þeim verði veittur tíma­bund­inn réttur til end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts vegna vinnu á bygg­ing­ar­stað auk þess sem Fast­eigna­sjóður Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga fær heim­ild til að veita styrki til sveit­ar­fé­laga. Þá stendur yfir kort­lagn­ing á við­kvæmum svæðum á lands­vísu og staf­ræn þjón­usta sveit­ar­fé­laga verður efld. 

Félagslegar aðgerðir

Tilkynning frá félagsmálaráðuneytinu

Félags­legar aðgerðir fyrir tæpa 5,7 millj­arða króna eru hluti af aðgerða­pakka rík­is­stjórn­ar­innar vegna COVID-19, sem er ætlað að veita mót­vægi vegna þeirra áhrifa sem far­ald­ur­inn hefur á við­kvæma hópa í sam­fé­lag­inu. Komið verður til móts við for­eldra og aðra umönn­un­ar­að­ila lang­veikra eða fatl­aðra barna, sem þurfa að sinna auk­inni umönnun vegna Covid – 19, með tíma­bundnum greiðslum. Þá verður stuðn­ingur við aldr­aða, fjöl­skyldur fatl­aðra barna og börn af erlendum upp­runa efldur veru­lega.

Aðrar aðgerðir sem ráð­ist verður í eru stuðn­ingur við tóm­stundir barna af lág­tekju­heim­ilum þar sem jöfn tæki­færi þeirra til íþrótta- og tóm­stunda­starfs verða tryggð, átak í náms og starfsúr­ræðum fyrir atvinnu­leit­endur þar sem fjár­veit­ingar til Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs verða auknar og fjölgun sum­ar­starfa um 3.500 fyrir náms­menn 18 ára og eldri sem eiga engan eða tak­mark­aðan rétt til atvinnu­leys­is­bóta. Þá verður bætt í aðgerðir gegn heim­ilsof­beldi á Íslandi og um ofbeldi gegn börnum, en röskun á rútínu getur reynst börnum sér­stak­lega erfið og rann­sóknir hafa sýnt að ofbeldi eykst þar sem álag er mikið á fjöl­skyldur.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barna­mála­ráð­herra: „COVID-19 far­ald­ur­inn hefur haft gríð­ar­leg áhrif á okkur öll og við höfum frá upp­hafi lagt áherslu á það að styðja við við­kvæma hópa á þessum tímum. Þessum nýja aðgerð­ar­pakka er ætlað að veita mót­vægi vegna þeirra áhrifa sem far­ald­ur­inn hefur á við­kvæma hópa í sam­fé­lag­inu. Við verðum alltaf að hafa það hug­fast að fólkið og fjöl­skyldur lands­ins eru dýr­mætasta eign sam­fé­lags­ins og þess vegna erum við að ráð­ast í þessar aðgerðir núna.“

Viðbrögð vegna heilbrigðisþjónustu

Tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að verja um 1,0 millj­arði króna í sér­stakar álags­greiðslur til starfs­fólks sjúkra­húsa og heil­brigð­is­stofn­ana sem starfar undir miklu álagi vegna Covid-19 heims­far­ald­urs­ins. Enn fremur verða fram­lög til geð­heil­brigð­is­þjón­ustu aukin um 540 millj­ónir króna til að efla geð­heil­brigð­is­þjón­ustu um allt land. Þessar aðgerðir eru liður marg­þættum aðgerðum stjórn­valda vegna áhrifa Covid-19 hér á landi sem kynntar voru í dag.

Álags­greiðslur til heil­brigð­is­starfs­fólks verða í formi ein­greiðslna til starfs­fólks í fram­lín­unni á sjúkra­húsum, heil­brigð­is­stofn­unum og í heilsu­gæsl­unni en útfærslan verður á hendi for­stöðu­manna hverrar stofn­unar. Mikið hefur mætt á heil­brigð­is­starfs­fólki á mörgum sviðum heil­brigð­is­þjón­ust­unnar, þar sem starfs­að­stæður hafa verið óvenju­legar og krefj­andi og hætta á smiti af Covid-19 dag­legur veru­leiki margra. Heild­ar­fjár­hæðin er 1,0 millj­arður króna.

Geð­heil­brigð­is­þjón­ustan verður efld með fjölgun sér­fræð­inga í geð­heilsuteymunum og innan heilsu­gæsl­unnar og með auk­inni áherslu á mark­vissa fræðslu og upp­lýs­inga­gjöf sem Þró­un­ar­mið­stöð íslenskrar heilsu­gæslu mun leiða. Rík áhersla verður á að tryggja sem best jafnt aðgengi lands­manna að þjón­ust­unni. Aukin fram­lög vegna þessa eru tíma­bundin til eins árs.

Stöðu­gildum sér­fræð­inga í heilsu­gæslu fjölgað

Með auknum fjár­munum verður sál­fræð­ingum og/eða öðrum sér­fræð­ingum á sviði geð­heil­brigð­is­þjón­ustu fjölgað um 16. Stöðu­gildum fjölgar um 10 hjá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og um eitt í hverju heil­brigð­is­um­dæmi utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Mark­miðið er að hvar sem er á land­inu geti fólk fengið með­ferð og stuðn­ing sál­fræð­inga innan heilsu­gæslu vegna algeng­ustu geð­rask­ana, svo sem vegna þung­lyndis og kvíða. Heilsu­gæslan fær einnig sér­stakt fram­lag til að þróa og efla getu sína til að veita fjar­heil­brigð­is­þjón­ustu á þessu sviði.

Þjónusta geð­heilsutey­manna efld

Framlög til geð­heilsuteyma í öllum heil­brigð­is­um­dæmum lands­ins verða aukin svo unnt verði að fjölga geð­læknum og/eða öðrum sér­fræð­ingum á sviði geð­heil­brigð­is­þjón­ustu. Geð­heilsuteymin sinna ann­ars stigs geð­heil­brigð­is­þjón­ustu, þ.e. sér­hæfð­ari þjón­ustu en unnt er að veita innan heilsu­gæsl­unnar. Teymin eru ætluð þeim sem greindir eru með geð­sjúk­dóm og eru eldri en 18 ára. Eitt af mark­mið­unum með því að efla geð­heilsuteymin er að auka getu þeirra til að sinna jað­ar­hópum, t.d. fólki með tví­greindan neyslu- og fíkni­vanda sam­hliða öðrum geð­rösk­unum og fólki sem er með þroska­röskun og glímir jafn­framt við geð­röskun.

Aukin áhersla á fræðslu og for­varnir

Þró­un­ar­mið­stöð íslenskrar heilsu­gæslu hefur m.a. það hlut­verk að leiða fag­lega þróun og stýra sam­hæf­ingu heilsu­gæslu í land­inu. Framlög til hennar verða aukin með áherslu á að sam­ræma vinnu­brögð og stuðla að því að aðgengi lands­manna að geð­heil­brigð­is­þjón­ustu sé sem jafn­ast, óháð búsetu. Þró­un­ar­mið­stöð­inni verður falið að útbúa fræðslu­efni fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk um neyslu- og fíkni­vanda, inn­leiða skimun á því sviði og þróa með­ferð­ar­úr­ræði innan heilsu­gæslu og hjá geð­heilsuteymunum. Þró­un­ar­mið­stöð­inni verður einnig falið að útbúa fræðslu­efni fyrir starfs­fólk hjúkr­un­ar­heim­ila um geð­heil­brigð­is­mál og einnig fræðslu­efni á sviði geð­ræktar í skólum.

Aukin framlög til menningar og fjölmiðla

Tilkynning frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu

Stjórn­völd hafa ákveðið að hækka fjár­veit­ingu í launa­sjóði lista­manna um 250 millj­ónir kr. og fjár­magna með því sköpun nýrra menn­ing­ar­verð­mæta í land­inu strax á þessu ári. Með fjár­veit­ing­unni er hægt að fjölga mán­að­ar­launum lista­manna um 40% á árinu og því verður alls 2.200 mán­að­ar­launum úthlutað til lista­manna á þessu ári. Ákvörð­unin er liður í þeirri áætlun stjórn­valda að auka inn­lenda verð­mæta­sköpun.

„Gildi lista og menn­ingar fyrir sam­fé­lagið er ómet­an­legt. Í mörgum list­greinum hafa umsvifin dreg­ist tíma­bundið saman, en við erum stað­ráðin í að snúa þeirri þróun við og koma verk­efnum aftur af stað. Keðju­á­hrifin af því eru mikil því auk áhrifa menn­ingar á hag­kerfið er öfl­ugt menn­ing­ar­starf eitt af þjóð­ar­ein­kennum Íslend­inga. Slíku má ekki fórna við aðstæður eins og þessar. Þvert á móti er mik­il­vægi lista og menn­ingar meira þegar á móti blæs,“ segir Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Vinna við nauð­syn­legar laga- og reglu­gerð­ar­breyt­ingar er hafin í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu. Þar er meðal ann­ars til skoð­unar hvaða list­greinar hafa skað­ast mest vegna aðstæðna, en einnig verður horft til list­greina sem styðja við mál og menntun barna. Ítar­legar upp­lýs­ingar verða veittar um leið og þær liggja fyrir.

---

Rík­is­stjórnin hyggst styðja við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla með 350 millj­óna kr. fram­lagi, vegna þess mikla tekju­taps sem miðl­arnir hafa orðið fyrir sam­hliða minnk­andi umsvifum í hag­kerf­inu.

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið vinnur nú að reglu­gerð um úthlutun stuðn­ings­ins. Gert er ráð fyrir því að fjöl­miðlar sæki um stuðn­ing með form­legum hætti og stuðn­ing­ur­inn taki mið af launa­kostn­aði fjöl­miðla vegna frétta­miðl­unar. Þak verður sett á fjár­hæð styrkja til ein­stakra fjöl­miðla, svo stuðn­ing­ur­inn nýt­ist bæði stórum og litlum miðlum.

„Það er sam­fé­lags­lega mik­il­vægt að tryggja vand­aða fjöl­miðlun í land­inu og með þessu styðjum við rekst­ur­inn og aukum atvinnu­ör­yggi blaða­manna. Þótt tekjur fjöl­miðla hafi dreg­ist veru­lega saman hefur spurn eftir þjón­ustu þeirra stór­auk­ist. Fjöl­miðlar hafa því ekki getað dregið saman seglin eða nýtt sér hluta­bóta­leið­ina á sama hátt og mörg þeirra fyr­ir­tækja sem misst hafa stóran hluta tekna sinna. Það kallar á sér­stök við­brögð,“ segir Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Nánari upp­lýs­ingar um úthlut­un­ar­reglur verða veittar um leið og reglu­gerð þar um liggur fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár