Ísland í hópi Vestur-Evrópuríkja sem gera minnst til að dempa skellinn

Stundin gerði tölu­legan sam­an­burð á umfangi rík­is­fjár­mála­að­gerða nokk­urra Evr­ópu­ríkja.

Ísland í hópi Vestur-Evrópuríkja sem gera minnst til að dempa skellinn
Ríkið hleypur undir bagga Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra mælti fyrir aðgerða­pakka rík­is­stjórn­ar­innar á Alþingi og var hann sam­þykktur með breyt­ingum í lok mars. Mynd: Pressphotos

Rík­is­stjórn Íslands hefur boðað minni aukn­ingu rík­is­út­gjalda og lækkun skatta til að bregð­ast við efna­hags­skell­inum vegna COVID-19 veirunnar heldur en Danmörk og Þýska­land. Þá er heild­ar­um­fang brú­ar­lána til fyr­ir­tækja, sem íslenska ríkið ábyrgist allt að 70 pró­sent af, minna en lána­fyr­ir­greiðsl­urnar sem stjórn­völd flestra nágranna­landa ætla að tryggja fyr­ir­tækjum í rekstr­ar­örð­ug­leikum. 

„Ég ætla bara að lýsa þeirri skoðun minni að þessar aðgerðir sem við höfum gripið til eru að öllum lík­indum ekki nóg,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi á fimmtu­dag og bætti því við að hið opin­bera þyrfti að stíga enn stærri skref til að bregð­ast við sam­drætt­inum vegna far­ald­urs­ins. Á mánu­dag greindi Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra svo frá því að frek­ari aðgerða væri að vænta eftir páska. Gríð­ar­legur fjöldi umsókna um atvinnu­leys­is­bætur sam­hliða minnk­uðu starfs­hlut­falli og fyr­ir­heit um fram­leng­ingu hluta­bóta­úr­ræð­is­ins benda jafn­framt til þess að útgjöld rík­is­ins vegna þegar sam­þykktra aðgerða verði enn meiri en …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár