„Mig langar bara til að fá að vera með henni um páskana“

„Við erum vön að vera saman og þekkjum ekk­ert annað.“ Þetta segir Ármann Ingimagn Hall­dórs­son. Eig­in­kona hans, Gróa Ingileif Krist­manns­dóttir dvelur á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Dyngju á Egils­stöðum. Gróa, sem er 62 ára, er með vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn Beckers, hún er í önd­un­ar­vél vegna sjúk­dóms­ins og þarf mikla umönnun sem Ármann hefur sinnt að miklum hluta síðan hún veikt­ist. Vegna heim­sókna­banns hafa hjónin ekki hist í margar vikur.

„Mig langar bara til að fá að vera með henni um páskana“
Í heim­sókna­banni Hjónin Ármann Ingimagn Hall­dórs­son og Gróa Ingileif Krist­manns­dóttir. Gróa býr á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Dyngju á Egils­stöðum og vegna heim­sókna­banns­ins sem er í gildi þar, eins og á öðrum hjúkr­un­ar­heim­ilum á land­inu, hefur Ármann ekki hitt konu sína svo vikum skiptir. Mynd: Aðsend/Samsett

„Hún er vön að ég komi á hverjum degi. Við erum vön að vera saman og þekkjum ekk­ert annað.“ Þetta segir Ármann Ingimagn Hall­dórs­son. Eig­in­kona hans, Gróa Ingileif Krist­manns­dóttir dvelur á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Dyngju á Egils­stöðum. Gróa, sem er 62 ára, er með vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn Beckers, hún er í önd­un­ar­vél vegna sjúk­dóms­ins og þarf mikla umönnun sem Ármann hefur sinnt að miklum hluta síðan hún veikt­ist. Hann hefur verið í sjálf­skip­aðri sótt­kví að mestu leyti síðan heim­sókna­bann var sett á Dyngju, eins og á öðrum hjúkr­un­ar­heim­ilum á land­inu, til að vera við­búin þegar bann­inu verður aflétt.

Ármann hefur boð­ist til að dvelja hjá Gróu yfir páska­helg­ina til að ann­ast um hana og létta þar með undir starfs­fólk­inu, en  vegna heim­sókna­banns hefur ekki verið hægt að verða við þeirri ósk.

Gróa Ingileif Krist­manns­dóttir Hún er með vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn Beckers, hún er í önd­un­ar­vél vegna sjúk­dóms­ins og þarf mikla umönnun sem eig­in­maður hennar hefur sinnt að miklum hluta síðan hún veikt­ist.

„Ég hef sofið hjá henni allar nætur, snúið henni og sinnt henni síðan hún flutti á Dyngju. Ég hef komið alla sunnu­daga til að baða hana. Ég veit að starfs­fólkið gerir allt sem það getur til að láta heim­il­is­fólk­inu líða vel, en hún hefur litla afþr­ey­ingu, þar sem ég hef ekki getað komið til hennar,“  segir Ármann.

Þungbær ákvörðun, segir forstjóri

Und­an­farið hafa birst í fjöl­miðlum fréttir þess efnis að fólk ráði sig til starfa á hjúkr­un­ar­heim­ilum til að geta verið með ætt­ingjum sínum sem þar dvelja. Ármann segir að slíkar fréttir veki vonir um að hann fái að dvelja með Gróu um páska­helg­ina. „Ég hef ekki fengið að hitta hana síðan í byrjun mars, þegar tekið var fyrir heim­sóknir á hjúkr­un­ar­heim­ilin.“

„Ég hef sofið hjá henni allar nætur, snúið henni og sinnt henni síðan hún flutti á Dyngju. Ég hef komið alla sunnu­daga til að baða hana“  

Guðjón Hauksson, for­stjóri Heil­brigð­is­stofn­unar Aust­ur­lands sem rekur Dyngju segir að það hafi verið þung­bært að banna heim­sóknir á heim­ilið. Hann geri sér vel grein fyrir þeirri van­líðan sem það geti valdið bæði hjá heim­il­is­fólki og aðstand­endum þess. „Við erum að verja við­kvæm­asta hóp sam­fé­lag­ins fyrir smiti, eins og okkur er upp­álagt að gera. Svona ákvarð­anir eru teknar af vel yfir­lögðu ráði og þetta er svo sann­ar­lega ekki auð­velt,“ segir Guðjón.

Mjög erfitt fyrir mjög marga

Ármann hefur einnig leitað lið­sinnis Öryrkja­banda­lags­ins vegna máls­ins. Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags­ins, segir að tals­vert sé um að fólk hafi sam­band við banda­lagið vegna þess að það geti ekki hitt maka sína eða ætt­ingja á heim­ilum þar sem lokað hefur verið fyrir heim­sóknir. „Þetta til­vik er ekki eins­dæmi, því miður. Þetta ástand er mjög erfitt fyrir mjög marga. Ég hef til dæmis heyrt frá mörgum aðstand­endum alzheimersjúklinga og þeim þykir þetta ákaf­lega sárt. Sumum finnst að með þessu banni sé verið að gera illt verra fyrir ást­vini sína; að þeir verði ráð­villtir og skilji ekki hvers vegna eng­inn heim­sæki þá. En því miður eru þetta þær aðstæður sem við þurfum að búa við tíma­bundið.“

„Ég myndi vilja að hægt væri að skoða ein­stök til­vik eins og þetta, þar sem ég hef verið í sjálf­skip­aðri sótt­kví“

Þuríður Harpa nefnir í þessu sam­bandi að Reykja­vík­ur­borg hafi veitt und­an­þágu vegna lið­veislu fólks sem þarf NPA-þjón­ustu á heim­ilum sínum. Sumir í þessum hópi hafi staðið frammi fyrir því að slík þjón­usta hafi verið skert eða jafn­vel alveg fallið niður vegna veik­inda eða sótt­kvíar þeirra sem henni sinna eða af öðrum ástæðum sem tengj­ast COVID-19 far­aldr­inum. Nú geti þau sem njóti NPA-þjón­ustu ráðið sína nán­ustu aðstanendur til þeirra starfa. „Þetta er gríð­ar­lega jákvætt og ég vona að önnur sveit­ar­fé­lög fylgi þessu for­dæmi borg­ar­innar,“ segir Þuríður Harpa. „Þetta hefur leyst vanda margra.“

Þakklátur starfsfólkinu

Ármann Ingimagn Hall­dórs­son Hann seg­ist hafa verið í sjá­fl­skip­aðri sótt­kví síðan heim­sókna­bannið var sett og gætt fyllstu var­úðar til að fyr­ir­byggja að hann smit­að­ist af COVID-19.

Ármann seg­ist hafa farið í sýna­töku hjá Íslenskri erfða­grein­ingu og að hún hafi sýnt að hann væri ekki með COVID-19. „Ég skil mjög vel þetta heim­sókn­ar­bann og ég er þakk­látur fyrir hversu vel er passað upp á fólkið,“ segir Ármann. „En ég myndi vilja að hægt væri að skoða ein­stök til­vik eins og þetta, þar sem ég hef verið í sjálf­skip­aðri sótt­kví. Mig langar bara til að fá að vera með henni um pásk­ana og sjá til þess að henni líði sem allra best.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Aðskilin vegna veirunnar

Kórónaveiran á Spáni: Flúði elliheimilið af ótta við að deyja einn
FréttirAðskilin vegna veirunnar

Kór­óna­veiran á Spáni: Flúði elli­heim­ilið af ótta við að deyja einn

Tala lát­inna vegna kór­óna­veirunnar á Spáni er orðin hærri en í Kína. Á föstu­dag­inn höfðu 1.000 lát­ist á Spáni en nú hafa tæp­lega 3.500 beðið bana. Kór­óna­veiran hefur herjað á mörg elli­heim­ili í land­inu, meðal ann­ars á eitt í Madríd þar sem 89 ára heim­il­is­maður ákvað að taka til sinna ráða áður en röðin kæmi að honum.
Mikilvægt að halda í jákvæðnina
FréttirAðskilin vegna veirunnar

Mik­il­vægt að halda í jákvæðn­ina

Kjartan Jarlsson er dval­ar­maður á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Sólvangi. Algjört bann við heim­sóknum aðstand­enda á hjúkr­un­ar­heim­ili vegna COVID-19 far­ald­urs­ins veldur því að kona hans, dætur og barna­börn munu ekki geta heim­sótt hann næstu mán­uði, fari svo að bannið verði ekki end­ur­skoðað. Kjartan lætur þetta þó ekki á sig fá og heldur sem fast­ast í jákvæðn­ina.
Fær ekki að heimsækja lífsförunaut sinn til 60 ára
FréttirAðskilin vegna veirunnar

Fær ekki að heim­sækja lífs­föru­naut sinn til 60 ára

Birgir Guð­jóns­son læknir segir algjört heim­sókn­ar­bann við heim­sóknum aðstand­enda á hjúkr­un­ar­heim­ili vera allt of harka­legt, auk þess sem það sé með öllu raka­laust út frá lækn­is­fræði­legum for­sendum. Bannið veldur því að hann getur ekki hitt konu sína, lífs­föru­naut til 60 ára sem er með Alzheimer. Birgir segir bann sem þetta koma verst niður á Alzheimer-sjúk­lingum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár