Aðstandendur veikjast líka fái þeir ekki stuðning

Sigríður Gísla­dóttir, stjórn­ar­kona í Geðhjálp og aðstand­andi sjúk­lings, segir að litla sem enga hjálp sé að fá fyrir aðstand­endur þeirra sem glíma við sjúk­dóma á geði.

Aðstandendur veikjast líka fái þeir ekki stuðning
Segir aðstand­endur ekki fá aðstoð Sigríður segir það sína reynslu, og ann­arra sem hún hefur rætt við, þarfir aðstand­enda geð­sjúkra séu huns­aðar og þeim standi ekki stuðn­ingur til boða. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Fyrir alla aðstand­endur þeirra sem glíma við geð­sjúk­dóma, for­eldra, maka, börn, systk­ini eða aðra, þá held ég að til­finn­ing­arnar séu svip­aðar. Það er mikil með­virkni með þeim sem eru veik og fólk sjálft verður í raun og veru veikt sjálft. Í erf­iðum aðstæðum, þar sem fólk fær ekki aðstoð, stuðn­ing og hjálp, þá veikj­ast aðstand­endur hrein­lega líka. Þetta verður fjöl­skyldu­sjúk­dómur.“ Þetta segir Sigríður Gísla­dóttir, stjórn­ar­kona í Geðhjálp og aðstand­andi. Sigríður bjó árum saman með veikri móður sinni án þess að fá aðstoð eða stuðn­ing. Álagið sem Sigríður bjó þar við og hinar erf­iðu aðstæður ollu því að sautján ára veikt­ist hún einnig af geð­sjúk­dómi, alvar­legri átröskun, auk þess sem hún hefur glímt við þung­lyndi, kvíða og áfallastreituröskun.

Í bók Auðar Styr­kárs­dóttur, Helga sögu, og í við­tali við hana hér í blað­inu lýsir hún því hversu hart and­leg veik­indi Helga bróður …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár