„Mun skera land okkar í sundur“

Bændur á Egils­staða­bú­inu og Egils­stöðum II gera ýmsar athuga­semdir við þá leið sem Vega­gerðin vill fara með veg að áform­uðum Fjarð­ar­heið­ar­göngum. Vegurinn myndi fara um jarðir þeirra og setja búrekstur í upp­nám.

Egilsstaðabúið stendur við Lagarfljót. Þar er bæði kúabú og ferðaþjónusta.
Egils­staða­búið stendur við Lag­ar­fljót. Þar er bæði kúabú og ferða­þjón­usta. Mynd: Hotel Lake Egilsstaðir

Aðal­val­kostur Vega­gerð­ar­innar á veg­línu til og frá ganga­munnum áform­aðra Fjarð­ar­heið­ar­ganga í Héraði, svokölluð suð­ur­leið, myndi liggja í gegnum land fjög­urra bújarða, m.a. Egils­staða I og II. Fyrr­nefndi bær­inn er oft­ast kall­aður Egils­staða­búið og hefur verið í eigu sömu fjöl­skyld­unnar í 133 ár. Ábúendur beggja bæj­anna eru meðal þeirra sem skil­uðu athuga­semdum við umhverf­is­mats­skýrslu Vega­gerð­ar­innar á þeim kostum sem hún dregur upp varð­andi nýjar veg­línur að göng­unum.

[adspot]

Gera þeir m.a. athuga­semdir við hversu lítið sé fjallað um áhrif á land­bún­að­ar­land í skýrsl­unni. „Á tímum sem nú á mat­væla­fram­leiðsla heims­ins undir högg að sækja og ein stærsta áskorun mann­kyns er að tryggja fæðu­ör­yggi heims­ins,“ skrifar Herdís Magna Gunn­ars­dóttir fyrir hönd ábú­enda Egils­staða­bús­ins. Erlendis þar sem þrengra er um land hafi yfir­völd lagt áherslu á að vernda land­bún­að­ar­land. Síðustu ár hafi íslensk stjórn­völd einnig lagt aukna áherslu á verndun land­bún­að­ar­lands og í tíð Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar í stóli land­bún­að­ar­ráð­herra var gef­inn út grunnur að land­bún­að­ar­stefnu sem ber heitið Ræktum Ísland. „Land­bún­að­ar­land, vel fallið til rækt­unar mat­væla og fóð­urs, er verð­mæt auð­lind og skal almennt ekki ráð­stafa þessu landi til ann­arra nota með óaft­ur­kræfum hætti,“ segir m.a. í stefn­unni. „Sam­keppni um land má ekki verða til þess að land­bún­að­ar­landi sé fórnað til ann­arra nota en rækt­unar.“

Þá er í stefn­unni minnt á mark­mið jarða­laga um að stuðla að fjöl­breyttum og sam­keppn­is­hæfum land­bún­aði, nátt­úru­vernd og við­haldi og þróun byggðar. „Tryggja skal svo sem kostur er að land er vel fallið til búvöru­fram­leiðslu sé varð­veitt til slíkra nota og að fæðu­ör­yggi sé tryggt til fram­tíðar.“

Egils­staða­búið hefur verið í eigu og rekstri sömu fjöl­skyldu í 133 ár en land undir þétt­býlið var fyrir 75 árum tekið eign­ar­námi úr jörð­inni. „Saga bús­ins er því sam­ofin sögu Egils­staða­þétt­býl­is­ins,“ skrifar Herdís Magna í umsögn ábú­end­anna. Búið þyki setja skemmti­legan svip á ásýnd þétt­býl­is­ins og hafi ábú­endur skynjað mik­inn áhuga og jákvæðni íbúa í garð búrekstr­ar­ins.

[links]Hún bendir á að síð­ustu tíu ár hafi ný kyn­slóð Egils­staða­bænda verið að stíga inn í rekst­ur­inn og aukið við mjólk­ur­fram­leiðsl­una. Fram­kvæmdir við stækkun aðstöðu séu áætl­aðar í náinni fram­tíð enda stöðug hag­ræð­ing­ar­krafa sé gerð á mat­væla­fram­leið­endur.

„Gott land­bún­aðar- og rækt­ar­land er grunn­ur­inn að vaxta­mögu­leikum og rekstr­ar­for­sendum Egils­staða­bús­ins,“ skrifar Herdís. „Nú þegar hefur þrengt veru­lega að landi þess og frek­ari aðför að góðu rækt­ar­landi þess getur sett fram­tíð­arplön búrekstrar í upp­nám og dregið úr rekstr­ar­for­sendum.“

Hún minnir á að gríð­ar­leg vinna og fjár­fest­ing liggi að baki góðu rækt­ar­landi og að síð­ustu ára­tugi hafi bændur Egils­staða­bús­ins lagt ómælda vinnu og fjár­magn í að byggja upp og efla sitt rækt­ar­land, s.s. við jarð­vinnslu, upp­ræktun og kölkun. „Það liggja því mikil verð­mæti í góðu land­bún­að­ar­landi og hvetjum við Skipu­lags­stofnun og aðra er málið varðar til að taka til­lit til þessa og forð­ast eins og hægt er að taka gott land­bún­að­ar­land undir við ákvörðun um fram­kvæmdir.“

Ólafur Jónsson, eig­andi Egils­staða II, fagnar því í umsögn sinni að haf­ist sé loks handa við þá brýnu sam­göngu­bót sem Fjarð­ar­heið­ar­göng komi til með að verða. Hann bendir hins vegar á að suð­ur­leiðin, aðal­val­kostur Vega­gerð­ar­innar á veg­línu á Héraði að göng­unum, sé sú leið af þremur sem oft­ast fékk ein­kunn­ina „veru­lega nei­kvæð áhrif“ í umhverf­is­mats­skýrsl­unni. Leiðin fari yfir stórt ósnortið vot­lend­is­svæði, birki­skóg og aðrar vist­gerðir sem skil­greindar eru með hátt vernd­ar­gildi. Hug­myndir um mót­væg­is­að­gerðir sem kynntar eru í skýrsl­unni eru að mati Ólafs óljósar og í huga eig­enda Egils­staða II óraun­hæft að þær geti orðið. Þær yrðu auk þess ekki í landi jarðar þeirra en eðli­legt sé að gera kröfu um að mót­væg­is­að­gerðir komi í land­inu sem verði skert.

Mun rýra eignina verulega

„Suð­ur­leiðin mun skera land okkar í sundur og rýra eign­ina veru­lega,“ skrifar Ólafur. Hann bendir á að sveit­ar­fé­lagið Múlaþing hafi í skipu­lagi skil­greint land norðan við suð­ur­leið­ina sem bygg­ing­ar­land og hafi fyrir nokkrum árum tekið eign­ar­námi umtals­vert land úr landi Egils­staða II sem þegar hafi að stórum hluta verið nýtt undir lóðir og hús. „Við teljum veru­legar líkur á því í náinni fram­tíð að byggð muni áfram fær­ast suður enda gott og fal­legt bygg­ing­ar­land auk þess að vera eðli­legt skipu­lags­legt fram­hald af þétt­býl­inu sem fyrir er. Eigendur munu því gera kröfu um bætur á landi sem taki mið af þessu.“

Suð­ur­leið myndi liggja frá Skrið­dals- og Breið­dals­vegi, um 1,5 kíló­metra suður af Egils­staða­vega­mótum. Vega­mótin yrðu í jaðri svæðis þar sem gert sé ráð fyrir lágreistri byggð sam­kvæmt Aðal­skipu­lagi Fljóts­dals­hér­aðs 2008–2028. Þaðan myndi leiðin liggja um skil­greint land­bún­að­ar­svæði í jaðri þétt­býlis.

[adspot]

„Suð­ur­leið mun liggja nálægt fyr­ir­hug­uðu íbúð­ar­svæði og svæði þar sem áætluð er verslun og þjón­usta,“ segir í umhverf­is­mats­skýrslu Vega­gerð­ar­innar. Búast megi við því að suð­ur­leið komi til með að draga að sér versl­unar- og þjón­ustu­svæði beggja vegna við hjá­leið­ina.

Á þessum hluta leið­ar­innar færi veg­ur­inn um Egils­staða­skóg og svæði sem er að að mestu kjarri- og skógi­vaxnir klapparásar í dag. „Eftir því sem farið er nær núver­andi Hring­vegi en einnig er farið um tún og fram­ræst land,“ bendir Vega­gerðin á í skýrslu sinni. Þar sem suð­ur­leið og mið­leið, annar val­kostur sem er met­inn, sam­ein­ast eru nauta­hús Egils­staða­býl­is­ins í um 180 metra fjar­lægð en þau eru í um 200 m fjar­lægð frá núver­andi vegi.

Veglínan gæti endað nær nautahúsinu

Í gegnum mats­ferlið hafa verið lagðar til breyt­ingar á suð­ur­leið í sam­ráði við Múlaþing, segir enn­fremur í skýrsl­unni. Annars vegar að bæta við mögu­leika á teng­ingu frá suð­ur­leið að athafna­svæði á Egils­stöðum, og hins vegar að hnika veg­lín­unni til suð­urs við teng­ingu að Sel­brekku í þeim til­gangi að varð­veita betur mögu­lega bygg­ing­ar­landið suður af Sel­brekku. „Tillagan um að hnika veg­lín­unni sunnar fer um svæði sem í aðal­skipu­lagi er skil­greint sem land­bún­að­ar­svæði. Með til­færsl­unni myndi veg­línan fara alveg upp að nauta­húsi Egils­staða­býl­is­ins og liggja á stærri kafla um tún og fram­ræst land.“

Fram­kvæmda­svæði suð­ur­leið­ar­innar myndi ná yfir fjórar jarðir í einka­eigu. Sú leið færi meira en aðrir kostir um svæði sem nýtur verndar í nátt­úru­vernd­ar­lögum. Áhrif yrðu að ein­hverju leyti í ósam­ræmi við stefnu­mörkun sveit­ar­fé­lags­ins sem sett er fram í aðal­skipu­lagi hvað varðar úti­vist­ar­svæði. „Svæðið kann að vera við­kvæmt fyrir breyt­ingum og eru áhrif í sumum til­fellum óaft­ur­kræf. Áhrif eru metin nokkuð til tals­vert nei­kvæð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarðarheiðargöng

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár