Vegaframkvæmdir á Héraði munu valda „mjög miklu og óafturkræfu raski“ á gömlum birkiskógi

Aðal­val­kostur Vega­gerð­ar­innar á veg­línu á Héraði að ganga­munna Fjarð­ar­heið­ar­ganga myndi valda mestu raski allra kosta á skógi og vot­lendi. Birki­trén eru allt að 100 ára gömul og blæa­spir hvergi hærri á land­inu.

Allir valkostirnir frá Héraði að göngunum myndu fara um gamlan og þéttan birkiskóg. Hér er sýndur hluti norðurleiðar.
Allir val­kost­irnir frá Héraði að göng­unum myndu fara um gamlan og þéttan birki­skóg. Hér er sýndur hluti norð­ur­leiðar. Mynd: Úr umhverfismatsskýrslu

Ef suð­ur­leiðin svo­kall­aða, aðal­val­kostur Vega­gerð­ar­innar á veg­línu að ganga­munna Fjarð­ar­heið­ar­ganga um Hérað yrði farin myndi það valda „mjög miklu og óaft­ur­kræfu raski á gömlum og þéttum skógi“ sem nýtur verndar í nátt­úru­vernd­ar­lögum og skal ekki raska nema að brýna nauð­syn beri til. Þrír val­kostir, norð­ur­leið, mið­leið og suð­ur­leið, eru metnir í umhverf­is­mats­skýrslu Vega­gerð­ar­innar og færu þeir allir um Egils­staða­skóg og Egils­staða­kletta að ein­hverju leyti. Norð­ur­leið og suð­ur­leið færu einnig um stórt vot­lendi, sem nýtur sömu verndar og skóg­ur­inn.

Íslensk stjórn­völd stefna á aukna útbreiðslu birki­skóga, m.a. í sam­ræmi við Par­ís­ar­sam­komu­lagið.

[adspot]

Egils­staða­skógur er víð­áttu­mikið og upp­vax­andi birki­skóg­lendi austan Egils­staða og inn með Eyvind­ar­ár­dal. Skóg­ur­inn er að miklum hluta gam­all og sjálfsáður og er hann meðal stærstu skóga á land­inu þar sem trén ná allt að 10 metra hæð.

Í Egils­staða­skógi er auk þess stærsta útbreiðslu­svæði villtrar blæa­spar á land­inu og þar er hún einnig hæst, eða um 8 metrar. Í skóg­inum vex einnig reyni­viður og gul­víðir. Gróð­ur­far er sér­stætt og þar vaxa sjald­gæfar plöntu­teg­undir, m.a. mik­ill fjöldi fléttu­teg­unda. Skóg­ur­inn er enn­fremur vin­sælt úti­vist­ar­svæði. Samkvæmt kort­lagn­ingu Skóg­rækt­ar­innar er birki­skóg­ur­inn á öllum leiðum að mestu 30-60 ára gam­all. Þó var hann allt að 60-100 ára gam­all á afmörk­uðum svæðum.

Mesta flat­ar­mál birki­skóga og -kjarrs er að finna á suð­ur­leið, næst­mest á norð­ur­leið og litlu minna á mið­leið. Heild­ar­lífmassi birkis á leið er minnstur á áhrifa­svæði norð­ur­leiðar, þar sem hann er um helm­ingi minni en á mið­leið, en mesti lífmass­inn er á suð­ur­leið.

Fram­kvæmdir fælu í sér var­an­lega eyð­ingu á hluta skóg­ar­ins. Vega­gerðin áætlar að umfang rösk­unar gró­inna svæða á suð­ur­leið sé 193 hekt­arar. Á þeirri leið yrði raskað mestu umfangi birki­skóga, sam­tals 93,9 ha eða 49 pró­sent áhrifa­svæð­is­ins. Að sama skapi yrði þar raskað mestu umfangi vot­lendra svæða, sam­tals 34,3 ha eða 14 pró­sentum áhrifa­svæð­is­ins og einnig mestu af vot­lendum svæðum sem njóta verndar sam­kvæmt lögum vegna stærðar sinnar.

[links]Nátt­úru­fræði­stofnun bendir á í umsögn sinni um umhverf­is­mats­skýrslu Vega­gerð­ar­innar að lagt hafi verið til að frið­lýsa Egils­staða­skóg á Nátt­úru­vernd­ar­á­ætlun 2009-2013 en ekki hafi enn orðið af því. Hins vegar hafi nýverið tekið gildi frið­lýs­ing æðplantna, mosa og fléttna og nokkrar plöntur, m.a. blæösp og þrjár fléttu­teg­undir, sem heyra undir þessa frið­lýs­ingu, finn­ast í Egils­staða­skógi og innan áform­aðs fram­kvæmda­svæðis veg­ar­ins.

Stofn­unin segir að um langt skeið hafi verið bent á vernd­ar­gildi birki­skóga í Egils­staða­skógi, ekki síst vegna sjald­gæfra fléttu­teg­unda sem vaxa á birkitrjám. „Ljóst er að sjald­gæfum fléttu­teg­undum mun stafa ógn af þeirri vega­gerð sem áætluð er í fram­kvæmd­inni og það óháð mis­mun­andi val­kostum.“

Að mati Nátt­úru­fræði­stofn­unar er mjög mik­il­vægt að stefnt sé að nákvæm­ari skoðun á fund­ar­stöðum frið­aðra fléttu­teg­unda til að full­vissa sé um hver áhrif áætl­aðrar vega­gerðar verði.

Mesta rask á vist­gerðum með hátt vernd­ar­gildi er á aðal­val­kost­inum, suð­ur­leið, þar sem hún mun bæði liggja um birki­skóga og stórt sam­fellt vot­lendi (Lamb­húsa­mýri og Flóa). „Veglína suð­ur­leiðar þverar vot­lendið mitt og því ljóst að raskið af því verður tölu­vert þótt aðeins lít­ill hluti sé innan fram­kvæmda­svæð­is­ins,“ stendur í umsögn Nátt­úru­fræði­stofn­unar. „Ljóst er að áhrif val­kosta á gróð­ur­far eru nei­kvæð­ust á suð­ur­leið í Héraði og þar yrði óaft­ur­kræft rask á vist­gerðum með hátt vernd­ar­gildi, vot­lendi og birki­skóg sem fellur undir ákvæði nátt­úru­vernd­ar­laga um sér­staka vernd sem og æðplöntu- og fléttu­teg­undir sem eru á válista eða frið­lýstar.“

Að mati stofn­un­ar­innar er því „afar mik­il­vægt“ að lögð verði sér­stök áhersla á mót­væg­is­að­gerðir til að vega upp rask á vist­gerðum með hátt vernd­ar­gildi. Hvað varðar end­ur­heimt birki­skóga sem hluta af mót­væg­is­að­gerðum skuli horft til þess að nota birki­plöntur sem eiga erfða­fræði­lega upp­runa úr Egils­staða­skógi til að tryggja við­hald þeirra og að horft sé til end­ur­heimtar birki­skóga í næsta nágrenni þar sem við eigi.

Nátt­úru­fræði­stofnun telur einnig að skoða mætti að styrkja nátt­úru­legan vöxt blæa­spar í Egils­staða­skógi í stað þeirra trjá­plantna sem frá hverfa vegna fram­kvæmd­ar­innar jafn­vel með til­færslu trjáa.

Umhverf­is­stofnun fer í umsögn sinni yfir hvað felist í verndun vist­kerfa, m.a. birki­skóg­anna, í lögum. Í grein­ar­gerð með frum­varpi til laga um nátt­úru­vernd sé með orða­lag­inu „brýn nauð­syn“ lögð áhersla á að ein­ungis mjög ríkir hags­munir geti rétt­lætt röskun og þá fyrst og fremst brýnir almanna­hags­munir.

Skóg­ræktin vinnur nú að gerð raf­ræns gagna­grunnar yfir skóg­lendi sem falla undir 61. greinar laga um nátt­úru­vernd. Í þeirri grein sé fjallað um vist­kerfi sem njóta skuli sér­stakrar verndar þar á meðal „sér­stæðir eða vist­fræði­lega mik­il­vægir birki­skógar og leifar þeirra þar sem eru m.a. gömul tré“. Skóg­ræktin segir í umsögn sinni um umhverf­is­mats­skýrsl­una að búið sé að stað­festa Egils­staða­skóg sem gamlan, stóran sam­felldan skóg. Auk þess sem skóg­ur­inn þyki merki­legur fyrir þær sakir að vera einn fárra nátt­úru­legra vaxt­ar­staða blæa­spar á Íslandi. Skóg­ræktin leggur „ríka áherslu á að forð­ast beri að raska vist­fræði­lega mik­il­vægum, gömlum birki­skógum“.

[adspot]

Stofn­unin bendir á að end­ur­heimt birki­skóga sé mik­il­vægt verk­efni og í aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í umhverfis- og lofts­lags­málum gegni hún stóru hlut­verki. Í nýjum lögum um skóga og skóg­rækt sé fjallað um vernd, end­ur­heimt, umhirðu og nýt­ingu skóga. „Skóg­ræktin hvetur leyf­is­veit­endur og fram­kvæmda­að­ila til þess að kynna sér þann kafla vel.“

Varanleg eyðing skóga er óheimil

Varanleg eyð­ing skóga að hluta eða í heild er óheimil sam­kvæmt lögum, bendir Skóg­ræktin á. Sé var­an­leg hún óhjá­kvæmi­leg skuli til­kynna Skipu­lags­stofnun um fyr­ir­hug­aða fram­kvæmd í sam­ræmi við ákvæði laga um mat á umhverf­is­á­hrifum.

Komi til var­an­legrar eyð­ingar skógar skal fram­kvæmda­að­ili ráð­ast í mót­væg­is­að­gerðir til að draga úr eða koma í veg fyrir nei­kvæð áhrif á umhverfið af eyð­ingu skóg­ar­ins, með hlið­sjón af mark­miðum laga um skóga og skóg­rækt, svo sem með end­ur­heimt nátt­úru­skógar eða ræktun nýrra skóga.

Umhverf­is­mats­skýrsla Vega­gerð­ar­innar um veg­línur að áform­uðum Fjarð­ar­heið­ar­göngum var aug­lýst til umsagna í sumar og er frest­ur­inn útrunn­inn. Í næsta skrefi umhverf­is­mats­ins skilar Vega­gerðin svörum við umsögnum, bregst við þeim ef þurfa þykir í end­an­legri skýrslu sinni sem Skipu­lags­stofnun gefur svo álit sitt á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarðarheiðargöng

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár