Göng frá Seyðisfirði til Norðfjarðar „mun hyggilegri“

Eðli­legra og far­sælla væri að gera jarð­göng milli Seyð­is­fjarðar og Norð­fjarðar en að ráð­ast í Fjarð­ar­heið­ar­göng að mati Sam­göngu­fé­lags­ins sem rýnt hefur í allar áætl­anir stjórn­valda og Vega­gerð­ar­innar um málið.

Í vel á fjórða áratug hafa stjórnvöld haft það á stefnuskrá sinni að bæta samgöngur til og frá Seyðisfirði með jarðgöngum.
Í vel á fjórða ára­tug hafa stjórn­völd haft það á stefnu­skrá sinni að bæta sam­göngur til og frá Seyð­is­firði með jarð­göngum.

Á allan hátt væri eðli­legra og far­sælla að tryggja öruggt sam­band Seyð­is­fjarðar við þjóð­vega­kerfið með því að ráð­ast í gerð tvennra jarð­ganga milli Seyð­is­fjarðar og Mjóa­fjarðar og Mjóa­fjarðar og Norð­fjarðar áður en göng verða gerð um Fjarð­ar­heiði.

Þetta er mat Sam­göngu­fé­lags­ins, félags sem hefur það að mark­miði að stuðla að fram­förum í sam­göngum á Íslandi. Félagið hefur í gegnum árin sett fram ýmsar til­lögur og hvatt til umræðu, fræðslu og skoð­ana­skipta um sam­göngu­mál.

[adspot]

Fjarð­ar­heið­ar­göng, sem eru langt á veg komin í umhverf­is­mati, yrðu ekki aðeins lengstu veggöng á Íslandi heldur með þeim lengstu í heimi. Kostn­að­ur­inn yrði á bil­inu 44-47 millj­arðar króna, segir í umhverf­is­mats­skýrslu Vega­gerð­ar­innar sem aug­lýst var til umsagnar hjá Skipu­lags­stofnun í sumar. Sam­göngu­fé­lagið var meðal þeirra sem skil­uðu umsögn um áformin.

Félagið telur að með göngum milli Seyð­is­fjarðar og Norð­fjarðar yrði nán­ast alltaf fær leið til og frá Seyð­is­firði. Á Norð­firði er m.a. sjúkra­hús fjórð­ungs­ins og myndi leiðin fyrir Seyð­firð­inga á sjúkra­húsið stytt­ast um 30 kíló­metra með tvennum göngum.

[links]Ýmiss annar ávinn­ingur myndi skap­ast með göngum þá leið­ina sem ekki feng­ist með Fjarð­ar­heið­ar­göngum, m.a. hring­teng­ing sem myndi gera ferðir ferða­manna mun áhuga­verð­ari sem og auknir mögu­leikar í sam­vinnu milli sveit­ar­fé­lag­anna á Mið­aust­ur­landi. Ávinn­ing­ur­inn í styttri ferða­tíma yrði ekki síst hjá Norð­firð­ingum því með göngum til Seyð­is­fjarðar myndi vega­lengdin til Egils­staða stytt­ast úr 68 kíló­metrum í 55 km.

Sam­göngu­fé­lagið telur að nokkuð mikið hafi verið gert úr vetr­aró­færð á Fjarð­ar­heiði í skýrslu frá árinu 2019 sem ákvörðun um að ráð­ast í Fjarð­ar­heið­ar­göng var byggð á. Þá bendir félagið á að í skoð­ana­könnun sem Gallup vann að beiðni þess árið 2020 meðal íbúa á Mið­aust­ur­landi hafi komið fram að flestir íbúar eða 42,4 pró­sent, nefndu göng milli Seyð­is­fjarðar og Norð­fjarðar sem væn­leg­asta fyrsta kost. 37,9 pró­sent nefndu Fjarð­ar­heið­ar­göng sem fyrsta kost.

Afdrifarík og dýr ákvörðun

Ekki er að mati félags­ins full­nægj­andi rök­stuðn­ingur fyrir þeirri „afdrifa­ríku ákvörðun“ að leggja til að ráð­ast í Fjarð­ar­heið­ar­göng, sem yrðu 13 kíló­metrar á lengd, sem fyrsta kost í stað þess að gera göng úr Seyð­is­firði í Mjóa­fjörð (5,5 km) og þaðan upp á Hérað (9 km) eða til Norð­fjarðar (6,8 km).

„Áætlaður kostn­aður við að full­gera Fjarð­ar­heið­ar­göng ásamt aðliggj­andi vegum er nú áætl­aður 45.000 millj­ónir króna (45 millj­arðar króna) og er þó tals­verð óvissa hvort sú áætlun stand­ist þegar til kast­anna kemur,“ segir í umsögn Sam­göngu­fé­lags­ins og bent er á hækkun kostn­aðar við Vaðla­heið­ar­göng miðað við áætl­anir í því sam­bandi.

„Verður að telj­ast hæpið að for­svar­an­legt sé að ráð­ast í gerð mann­virkis sem þessa, sem raunar er áætlað að taki sjö ár að full­gera, eins og fjár­málum rík­is­sjóðs er komið,“ skrifar félagið. „Þótt brýnt verði að telj­ast fyrir sam­fé­lagið á Seyð­is­firði að rjúfa vetr­ar­ein­angrun stað­ar­ins og tryggja akleiðir sem full­nægja núgild­andi kröfum er vel hægt að fara aðra leið en stystu leið milli Seyð­is­fjarðar og Egils­staða.“

Sam­göngu­fé­lagið telur þá hug­mynd að fjár­magna göngin að hluta með inn­heimtu veggjalda í göng­unum sem og öðrum jarð­göngum á land­inu, tæp­ast ganga upp. Hval­fjarð­ar­göng, þau fjöl­förn­ustu í þjóð­vega­kerf­inu, hafi þegar verið greidd upp með veggjöldum og gjald­taka sé nú þegar í þeim næst fjöl­förn­ustu, Vaðla­heið­ar­göngum sem renna á til kostn­aðar við gerð þeirra. Hæpið sé að leggja gjald á umferð um Stráka­göng, Múlagöng og göng undir Breiða­dals- og Botns­heiðar, þar sem um ein­breið göng er að ræða að hluta eða heild og þau upp­fylla þar af leið­andi ekki kröfur dags­ins í dag. Þá séu aðeins fimm göng eftir; Dýra­fjarð­ar­göng, Bol­ung­ar­vík­ur­göng, Héð­ins­fjarð­ar­göng, Norð­fjarð­ar­göng og Fáskrúðs­fjarð­ar­göng. „Sú umferð sem fer um þau stendur vart undir miklum tekjum og fæli þá jafn­framt í sér þá „nýbreytni“ að greiða þyrfti sér­stakt gjald fyrri akstur um hluta þjóð­vega­kerfis lands­ins án þess að eiga kost á annarri leið.“

[adspot]

Sam­göngu­fé­lagið telur út af öllum fram­an­greindum þáttum og fleiri sem það tínir til í umsögn sinni að for­sendur fyrir gerð Fjarð­ar­heið­ar­ganga séu um margt byggðar á veikum grunni og ekki þykir for­svar­an­legt að ráð­ast í útboð og fram­kvæmdir nema fyrir liggi með ótví­ræðum hætti hvernig að gjald­töku verði staðið, fjár­hæð gjalds, tíma­lengd gjald­tökur og fleira. Mun hyggi­legra sé að ráð­ast nú þegar í und­ir­bún­ing ganga milli Seyð­is­fjarðar og Norð­fjarðar sem gætu engu að síður verið til­búin tveimur árum fyrr en Fjarð­ar­heið­ar­göng. „Að gerð þeirra lok­inni mætti síðan kanna hent­ug­ustu leið milli Seyð­is­fjarðar og Egils­staða.“

Hér getur þú lesið frétta­skýr­ingu Kjarnans um Fjarð­ar­heið­ar­göng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár