Skipulagsstofnun dregur fram kosti Miðleiðar að Fjarðarheiðargöngum

Aðal­val­kostur Vega­gerð­ar­innar um Hérað að Fjarð­ar­heið­ar­göngum hefði veru­lega nei­kvæð áhrif á gróð­ur­far á meðan Miðleið hefði minni áhrif að mati Skipu­lags­stofn­unar sem efast auk þess um þá nið­ur­stöðu að Miðleið hefði nei­kvæð sam­fé­lags­á­hrif á Egils­stöðum.

Möguleg ásýnd vegarins að göngunum á Héraði. Eyvindará liggur í fallegu gili til hægri á myndinni.
Möguleg ásýnd veg­ar­ins að göng­unum á Héraði. Eyvind­ará liggur í fal­legu gili til hægri á mynd­inni. Mynd: Úr umhverfismatsskýrslu

Skipu­lags­stofnun telur að afnám vetr­ar­ein­angr­unar á Seyð­is­firði með áform­uðum Fjarð­ar­heið­ar­göngum komi til með að hafa veru­lega jákvæð áhrif á sam­fé­lagið á Seyð­is­firði. Um það deila sjálf­sagt fæstir enda um að ræða helsta til­gang þess­arar tæp­lega 50 millj­arða króna fram­kvæmdar. En það eru hins vegar skiptar skoð­anir um veglagn­ing­una að jarð­göng­unum sem yrðu meðal þeirra lengstu í heimi, eða 13,3 kíló­metrar. Vega­gerðin hefur sett fram þrjá val­kosti Hér­aðs­megin við göngin og svo­nefnda Suð­ur­leið sem sinn aðal­val­kost. Skipu­lags­stofnun dregur hins vegar í nýút­gefnu áliti sínu á umhverf­is­mats­skýrslu Vega­gerð­ar­innar fram kosti svo­kall­aðrar Mið­leiðar.

[adspot]

Að mati Skipu­lags­stofn­unar getur aðal­val­kostur Vega­gerð­ar­innar á Héraði haft veru­lega nei­kvæð áhrif á gróð­ur­far, einkum vegna umfangs skerð­ingar á vot­lendi, birki og æðplöntum sem njóta verndar. Þá ríki óvissa um áhrif allra veg­lína á Héraði á frið­aðar fléttu­teg­undir sem mik­il­vægt sé að eyða með kort­lagn­ingu. Skipu­lags­stofnun telur eðli­legt að höfð verði hlið­sjón af slíkri úttekt við end­an­legt val á veg­línu.

Jafn­framt telur Skipu­lags­stofnun mik­il­vægt að val á milli veg­lína taki mið af nátt­úru­vernd­ar­lögum, aug­lýs­ingu um friðun æðplantna, mosa og fléttna og mark­miðum laga um umhverf­is­mat fram­kvæmda og áætl­ana, en meðal þeirra er umhverf­is­vernd. Bendir stofn­unin á að sam­kvæmt 61. gr. nátt­úru­vernd­ar­laga ber að forð­ast að raska vot­lendi og birki sem nýtur sér­stakrar verndar nema brýna nauð­syn beri til.

Að mati Skipu­lags­stofn­unar er ljóst að Mið­leiðin hefði minnst umhverf­is­á­hrif af þeim val­kostum sem voru til skoð­unar á Héraði í umhverf­is­mats­skýrslu Vega­gerð­ar­innar. Mið­leiðin sé jafn­framt sú leið sem hefur lægstu slysa­tíðn­ina, fæstu akst­ur­skíló­metrana og fæstu akst­urs­klukku­stund­irnar. Sú leið gerir ráð fyrir að nýta núver­andi veg um Fagra­dals­braut í gegnum þétt­býlið á Egils­stöðum en Fagra­dals­braut er farin að hafa nei­kvæð sam­fé­lags­leg áhrif á byggð­ina sitt hvorum megin vegar. Bendir Skipu­lags­stofnun hins vegar á í því sam­hengi á að ákveðið svig­rúm sé til að ráð­ast í aðgerðir sem bæta umferð­ar­ör­yggi við Fagra­dals­braut, s.s. lækka hraða eða lag­færa hönnun, án þess að hafa nei­kvæð áhrif á greið­færni sam­an­borið við aðal­val­kost Vega­gerð­ar­innar, þ.e. Suð­ur­leið.

Skipu­lags­stofnun bendir jafn­framt á að veglagn­ing sam­kvæmt Suð­ur­leið virð­ist draga tak­markað úr umferð minni öku­tækja og óvissa er um að hvaða marki þunga­flutn­inga­bílum fækkar. Í ljósi þess telur stofn­unin mik­il­vægt að ráð­ist verði í aðgerðir til að bæta umferð­ar­ör­yggi á Fagra­dals­braut, jafn­vel þó svo að Hring­veg­ur­inn verði fluttur út fyrir þétt­býlið líkt og bæði Suður- og Norð­ur­leið gera ráð fyrir.

Áhrif vega­gerðar á nátt­úru­far verða minni á Seyð­is­firði. Aðal­val­kostur Vega­gerð­ar­innar, þ.e. ný veg­lína, mun þó hafa í för með sér nokkuð umfangs­mikið rask á landi sem að stórum hluta sam­anstendur af vist­gerðum með hátt eða mjög hátt vernd­ar­gildi. Nýja veg­línan kemur til með að liggja um golf­völl Seyð­firð­inga. Þar sem færa þarf golf­völl­inn má gera ráð fyrir veru­lega nei­kvæðum áhrifum á golfiðkun tíma­bundið. Skipu­lags­stofnun telur að val­kostur sem felst í lag­fær­ingu á núver­andi vegi um Seyð­is­fjörð hefði minni umhverf­is­á­hrif en lagn­ing nýrrar veg­línu.

[links]Á Seyð­is­firði eru helstu nei­kvæðu áhrif fram­kvæmd­ar­innar tengd vatns­vernd. Á fram­kvæmda­tíma er ákveðin hætta á að meng­un­ar­efni ber­ist frá fram­kvæmda­svæð­inu í Fjarðará og spilli vatns­bóli Seyð­is­fjarðar, óháð því hvaða val­kostur verður fyrir val­inu. Afar brýnt er að tryggja Seyð­firð­ingum greiðan aðgang að hreinu neyslu­vatni. Skipu­lags­stofnun telur að færsla inn­takslóns vatns­veitu upp fyrir ganga­munn­ann myndi draga mjög úr hættu á áhrifum á vatns­bólið.

Skipu­lags­stofnun telur að áður en kemur að útgáfu fram­kvæmda­leyfis þurfi að kort­leggja fund­ar­staði frið­aðra fléttu­teg­unda á áhrifa­svæði allra fram­lagðra val­kosta um Egils­staða­skóg. Einnig þurfi að leggja fram mót­væg­is­að­gerðir. Jafn­framt þurfi að kort­leggja rask á vot­lendi og skóg­lendi á ókönn­uðum hluta Suð­ur­leiðar „svo réttar upp­lýs­ingar liggi fyrir um heild­ar­flat­ar­mál vot­lendis og skóg­lendis sem þarf að end­ur­heimta“.

Vega­gerðin áformar að gera 13,3 kíló­metra löng jarð­göng milli Héraðs og Seyð­is­fjarðar ásamt til­heyr­andi teng­ingum við vega­kerfið. Fram­kvæmd­inni er ætlað að bæta vetr­ar­sam­göngur til og frá Seyð­is­firði, en í dag fer öll umferðin um Fjarð­ar­heiði í 620 metra hæð. Göngin verða í hópi lengstu veg­ganga í heimi og er stofn­kostn­aður áætl­aður 44-47 millj­arðar króna. Þau verða tví­breið með 3,5 m breiðum akreinum og 70 km/klst hámarks­hraða. Vegagerð utan ganga verður 6,9 – 13,6 km, háð leið­ar­vali. Aðal­val­kostur Vega­gerð­ar­innar gerir ráð fyrir 6,9 km löngum vegi Hér­aðs­megin um svo­kall­aða Suð­ur­leið og 3,5 km löngum vegi Seyð­is­fjarð­ar­megin um nýja veg­línu. Fram­kvæmd­ar­tími er áætl­aður 7 ár. Byrjað verður á jarð­göng­unum og síðan farið í vega­gerð utan ganga.

[adspot]

En hverjir eru val­kost­irnir sem Vega­gerðin lagði mat á í skýrslu sinni?

  • Norð­ur­leið: Hring­vegur færður norður fyrir Egils­staði. Samtals þarf 10,1 km langa vega­gerð á Héraði og tvær nýjar brýr á Eyvind­ará. Val­kostur nær frá Hring­vegi við Melshorn að jarð­göngum. Hring­vegur leng­ist um 1,1 km.
  • Suð­ur­leið (aðal­val­kostur Vega­gerð­ar­innar): Veglínan fylgir Miðleið en í stað þess að fara í gegnum þétt­býlið verður Hring­vegur færður suður fyrir Egils­staði. Samtals þarf 6,9 km langa vega­gerð á Héraði og nýja brú á Eyvind­ará. Val­kostur nær frá Skrið­dals- og Breið­dals­vegi, við Egils­staði, að jarð­göngum. Hring­vegur leng­ist um 2,5 km.
  • Miðleið um Háls og Fagra­dals­braut: Nýr Hring­vegur verður færður til á 3,1 km kafla en fer áfram um þétt­býlið. Samtals þarf 4,1 km langa vega­gerð á Héraði og nýja brú á Eyvind­ará. Val­kostur nær frá Hring­vegi við Egils­staða­vega­mót að jarð­göngum. Hring­vegur leng­ist um 0,1 km.

Í umhverf­is­mats­skýrslu Vega­gerð­ar­innar kom fram að athug­un­ar­svæði allra leiða Hér­aðs­megin ein­kenn­ist af vel grónu landi, grósku­miklum birki­skógi og birkikjarri, nokkuð stórum vot­lend­is­svæðum, túnum, skóg­rækt og öðru mann­gerðu landi. Allir val­kostir Hér­aðs­megin og athafna- og haug­setn­inga­svæði koma til með að raska birki­skógi sem nýtur verndar sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum.

Þéttur og gam­all birki­skógur er ein­kenn­andi fyrir stóran hluta þess svæðis sem þessar leiðir munu liggja um auk þess sem stór opin vot­lend svæði, með fjöl­breyttum vot­lendis­vist­gerðum eru innan veg­línu Norður- og Suð­ur­leiðar. Þá mun þurfa að byggja umfangs­miklar brýr yfir Eyvind­ará í til­felli Norð­ur­leiðar og Mið- og Suð­ur­leiðar sem breytir ásýnd árinnar stað­bundið.

Leið­irnar taka því til svæðis sem er við­kvæmt fyrir breyt­ingum og geymir vist­kerfi sem njóta sér­stakrar verndar sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum. Rask vegna val­kosta á þessi vist­kerfi koma helst fram þar sem Hring­vegur er færður um Háls­brekku, þ.e. Miðleið og Suð­ur­leið, og þar sem Suð­ur­leið og Norð­ur­leið liggja fram hjá þétt­býl­inu á Egils­stöðum. Blæösp var eina teg­undin á válista sem fannst á athug­un­ar­svæð­inu, en hún vex innan athug­un­ar­svæðis Suð­ur­leiðar. 15 sjald­gæfar fléttu­teg­undir, þar af fimm á válista, hafa verið skráðar á áhrifa­svæði veg­lína og í næsta nágrenni. Vegna þeirra hefur verið lagt til að Egils­staða­skógur og nágrenni verði frið­lýst.

Fram kemur í umhverf­is­mats­skýrsl­unni að fæstir hekt­arar gró­inna svæða raskast ef Miðleið yrði fyrir val­inu, enda er minnst þörf á nýrri vega­gerð fyrir þann val­kost. Þar er meiri hluti raskaðs svæðis birki­skógur. Á Miðleið er enn­fremur minnst af vot­lendi og engin sem njóta sér­stakrar verndar sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum vegna stærðar sinnar.

Samkvæmt umhverf­is­mats­skýrslu hefur Suð­ur­leið í för með sér meira rask á landi en Miðleið. Á þeirri leið yrði raskað mestu umfangi birki­skóga og vot­lendis.

Suðurleið færi um 100 ára gamlan birkiskóg

Beint rask á landi verður minnst á Miðleið (41 hekt­arar), þá Suð­ur­leið (50 ha) en mest á Norð­ur­leið (57 ha). Miðleið raskar einnig minna af vist­gerðum með hátt eða mjög hátt vernd­ar­gildi (21 ha) en Suð­ur­leið (28 ha) og Norð­ur­leið (27 ha).

Allar veg­lín­urnar skera í sundur birki­skóg og hafa í för með sér umtals­vert óaft­ur­kræft rask á birki, eða frá 17 ha (Miðleið) til 21 ha (Suð­ur­leið). Einkum er um að ræða rask á 30-60 ára gömlum birki­skógi, en þar sem Suð­ur­leið beygir af Miðleið þverar hún 60-100 ára gamlan birki­skóg. Í þessum eldri hluta Egils­staða­skógar er birkið hærra (3-5 metrar) en ann­ars staðar staðar í skóg­inum.

Í umsögn Skóg­rækt­ar­innar var bent á að búið er að stað­festa Egils­staða­skóg sem gamlan, stóran sam­felldan skóg sem nýtur sér­stakrar verndar sam­kvæmt 61. gr. nátt­úru­vernd­ar­laga auk þess sem skóg­ur­inn þykir merki­legur fyrir þær sakir að vera einn fárra nátt­úru­legra vaxt­ar­staða blæa­spar á Íslandi. Leggur Skóg­ræktin ríka áherslu á að forð­ast beri að raska vist­fræði­lega mik­il­vægum gömlum birki­skógum.

Mismikil áhrif á vistkerfi

Samkvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum ber að forð­ast að raska vist­kerfum sem njóta verndar sam­kvæmt 61. gr. lag­anna nema brýna nauð­syn beri til. Fram kemur í umhverf­is­mats­skýrslu Vega­gerð­ar­innar að óhjá­kvæmi­legt er að raska þessum vist­kerfum til að tryggja bætt umferð­ar­ör­yggi og aukna greið­færni. „Í þessu sam­bandi und­ir­strikar Skipu­lags­stofnun að þær þrjár veg­línur sem lagðar eru fram í umhverf­is­mats­skýrslu Vega­gerð­ar­innar hafa mis­mikil áhrif á vist­kerfi sem njóta sér­stakrar verndar sam­kvæmt 61. gr. nátt­úru­vernd­ar­laga,“ segir í áliti stofn­un­ar­innar. „Að mati Skipu­lags­stofn­unar hefur Suð­ur­leið, núver­andi aðal­val­kostur Vega­gerð­ar­innar, mest áhrif á bæði verndað birki­skóg­lendi og verndað vot­lendi.“

Í ljósi umfangs skerð­ingar á vernd­uðum vist­kerfum og æðplöntum telur Skipu­lags­stofnun að Suð­ur­leið geti haft veru­lega nei­kvæð áhrif á gróður en Miðleið og Norð­ur­leið tals­vert nei­kvæð.

Efast um niðurstöðu varðandi samfélagsáhrif

Á Héraði er gert ráð fyrir að Miðleið nýti núver­andi veg um Fagra­dals­braut í gegnum þétt­býlið á Egils­stöðum í óbreyttri mynd. Skipu­lags­stofnun gerir í áliti sínu athuga­semd við þá ályktun Vega­gerð­ar­innar að Miðleið sé lík­leg til að hafa nokkuð til tals­vert nei­kvæð áhrif á sam­fé­lag, „enda vand­séð hvernig kom­ast megi að þeirri nið­ur­stöðu“. Stofn­unin hefur jafn­framt ákveðnar efa­semdir um þá nið­ur­stöðu Vega­gerð­ar­innar að ekki sé hægt að útfæra Miðleið þannig að hún hafi jákvæð áhrif á sam­fé­lag og sam­ræm­ist um leið mark­miðum fram­kvæmd­ar­innar. Skipu­lags­stofnun telur að Miðleið með Fagra­dals­braut í óbreyttri mynd hefði lítil sem engin áhrif á sam­fé­lag. „Það þýðir að Miðleið gæti hæg­lega haft jákvæð áhrif á sam­fé­lag ef gripið yrði til aðgerða sem bæta sam­búð vegar og byggðar,“ segir í álit­inu og enn­fremur: „Miðleið hefur m.a. lægstu slysa­tíðn­ina og mestu þjóð­hags­legu arð­sem­ina. Sú stað­reynd að Mið­leiðin hefur bæði fæstu akst­ur­skíló­metrana og fæstu akst­urs­klukku­stund­irnar hlýtur að þýða að ákveðið svig­rúm sé til staðar til að ráð­ast í aðgerðir sem bæta umferð­ar­ör­yggi við Fagra­dals­braut, s.s. lækka hraða eða lag­færa hönnun, án þess að hafa nei­kvæð áhrif á greið­færni sam­an­borið við Suð­ur­leið.“

[adspot]

Umferð­ar­grein­ingar benda til að stór hluti umferðar um Fagra­dals­braut sé inn­an­bæj­ar­um­ferð eða eigi erindi á Egils­staði. Þannig gerir Vega­gerðin t.d. ráð fyrir að umferð um Fagra­dals­braut minnki ein­ungis um 600 bíla með Suð­ur­leið, þ.e. fari úr 4.100 bílum í 3.500 bíla. „Jafnvel þó að Suð­ur­leiðin væri skiltuð þannig að fólk leið­ist hana sjálf­krafa þá er styttra að keyra Fagra­dals­braut,“ bendir Skipu­lags­stofnun á. „Stað­kunn­ugir munu vænt­an­lega fljótt átta sig á því og halda áfram að nota gömlu leið­ina nema ráð­ist verði í gagn­gerar end­ur­bætur á Fagra­dals­braut og hún t.d. þrengd og settar hraða­hindr­anir til að gera öku­tækjum erfitt um vik að nota hana sem styttri leið gegnum bæinn.“

Samkvæmt fram­lögðum gögnum telur Skipu­lags­stofnun ljóst að óvissa er um að hvaða marki veglagn­ing sam­kvæmt Suð­ur­leið komi til með að draga úr umferð þunga­flutn­inga­bíla um Fagra­dals­braut og „óraun­hæft“ að gera ráð fyrir því að Suð­ur­leið muni fjar­lægja alla þunga­flutn­inga­bíla af Fagra­dals­braut. Telur stofn­unin mik­il­vægt að ráð­ist verði í aðgerðir til að bæta umferð­ar­ör­yggi á Fagra­dals­braut, „jafn­vel þó svo að Hring­veg­ur­inn verði fluttur út fyrir þétt­býlið“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarðarheiðargöng

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár