Vilja suðurleið og þungaumferð út fyrir bæinn – „Umhverfisslys í einstöku náttúruvætti“ segir fulltrúi Miðflokks

Meiri­hluti umhverfis- og fram­kvæmda­ráðs Múla­þings sam­þykkir aðal­val­kost Vega­gerð­ar­innar um veg­línu að áform­uðum Fjarð­ar­heið­ar­göngum. Ráðið felldi til­lögu full­trúa Mið­flokks­ins um íbúa­fund.

Suðurleið færi yfir skóglendi sem nýtur verndar samkvæmt náttúruverndarlögum.
Suð­ur­leið færi yfir skóg­lendi sem nýtur verndar sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum. Mynd: Úr umhverfismatsskýrslu

Suð­ur­leið, líkt og aðal­val­kostur Vega­gerð­ar­innar að veg­línu um Hérað að fyr­ir­hug­uðum Fjarð­ar­heið­ar­göngum er kall­aður, hugn­ast umhverfis- og fram­kvæmda­ráði Múla­þings vel. Ráðið telur þá leið gefa þétt­býl­inu á Egils­stöðum nægt svig­rúm til stækk­unar. „Jafn­framt er horft til mik­il­vægis þess að fá þunga­um­ferð út fyrir bæinn með teng­ingu við iðn­að­ar­svæði auk þess sem settar yrðu mögu­legar tak­mark­anir á umferð og umferð­ar­hraða í gegnum Egils­staði. Ráðið telur mik­il­vægt að leið­ar­valið sé skoðað heild­stætt með stækkun flug­vall­ar­ins og legu nýrrar Lag­ar­fljóts­brúar til hlið­sjónar,“ segir í til­lögu sem ráðið sam­þykkti á fundi sínum í gær. Á fund­inum voru umsagnir og athuga­semdir sem bár­ust við vinnslu­til­lögu breyt­inga á aðal­skipu­lagi Fljóts­dals­hér­aðs til árs­ins 2028 vegna Fjarð­ar­heið­ar­ganga.

Umhverfis- og fram­kvæmda­ráð beinir því til sveit­ar­stjórnar Múla­þings að stað­festa ákvörðun ráðs­ins um leið­ar­val vegna Fjarð­ar­heið­ar­ganga Fljóts­dals­hér­aðs­megin.

[adspot]

Þrír valkostir metnir

Vega­gerðin kynnti í umhverf­is­mats­skýrslu sinni þrjá val­kosti um veg­línu Hér­aðs­megin að hinum áform­uðu jarð­göngum undir Fjarð­ar­heiði. Umhverf­is­á­hrif þeirra yrðu mis­jöfn en allir færu um Egils­staða­skóg og Egils­staða­kletta að ein­hverju leyti. Ef suð­ur­leiðin yrði farin myndi það valda „mjög miklu og óaft­ur­kræfu raski á gömlum og þéttum skógi“, líkt og það er orðað í mats­skýrslu Vega­gerð­ar­innar. Skóg­ur­inn nýtur verndar í nátt­úru­vernd­ar­lögum og skal ekki raska nema að brýna nauð­syn beri til. Norð­ur­leið og suð­ur­leið færu einnig um stórt vot­lendi, sem nýtur sömu verndar.

Hannes Karl Hilm­ars­son, áheyrn­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, benti á það á fundi umhverfis- og fram­kvæmda­ráðs í gær, að suð­ur­leiðin krefð­ist „óaft­ur­kræfra umhverf­is­fórna“ og að mik­il­vægt væri að upp­lýsa og virkja íbúa í ákvarð­ana­tök­unni. Því lagði hann til að Múlaþing boð­aði til íbúa­funda í öllum kjörnum sveit­ar­fé­lags­ins þar sem hver listi í sveit­ar­stjórn fengi að kynna afstöðu sína og skoð­anir, auk opinna umræðna í sal þar sem íbúar fengju að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi.

Þessi til­laga Hannesar var felld með sjö atkvæðum.

Vill íbúakosningu

[links]Á fundi ráðs­ins fyrir viku lét hann bóka að Mið­flokk­ur­inn vildi „vel aug­lýstan opinn íbúa­fund um þetta stór­mál með til­liti til að fara eigi með leið­ar­valið í íbúa­kosn­ingu, þar sem svo virð­ist sem almennt fylgi sé með norð­ur­leið fremur en suð­ur­leið.“

Í þeirri bókun sagði enn­fremur að svo virt­ist sem meiri­hlut­inn væri búinn að taka „skamm­sýna ákvörðun um suð­ur­leið bak við tjöldin án þess að við­ur­kenna það.“ Í henni kom einnig fram að Land­vernd hefði verið gert við­vart.

„Þá vill M-list­inn benda á að með suð­ur­leið stefnir ekki bara í aðal­skipu­lags­klúður heldur líka umhverf­isslys í ein­stöku nátt­úru­vætti Egils­staða­skógar, stærsta fund­ar­stað blæa­spar á land­inu,“ sagði í bók­un­inni.

Reynt hafi verið að frið­lýsa skóg­inn á Nátt­úru­vernd­ar­á­ætlun 2009-2013 en ekki hafi orðið af því vegna and­stöðu land­eig­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarðarheiðargöng

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár