Stjórn KSÍ mun sitja áfram – en hún segist trúa þolendum og biður þá afsökunar

Stjórn KSÍ hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna ásak­ana um ofbeldi og áreitni af hendi lands­liðs­manna.

Vinna mun hefj­ast með utan­að­kom­andi fag­að­ilum um að end­ur­skoða öll við­brögð við kyn­ferð­is­brotum og ofbeldi innan KSÍ og hvernig staðið var og verður að stuðn­ingi við þolendur. Faghópur verður settur á lagg­irnar og heitir stjórn KSÍ því að taka á þessum málum af alvöru og festu og fylgja ráð­legg­ingum fag­hóps­ins.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá stjórn KSÍ sem hún sendi frá sér rétt í þessu. Hún mun sitja áfram en fyrr í dag greindi Kjarninn frá því að Guðni Bergsson myndi hætta sem for­maður sam­bands­ins.

Stjórnin hefur fundað und­an­farna daga um þær alvar­legu ásak­anir sem beinst hafa að sam­band­inu að und­an­förnu um þöggun kyn­ferð­is­brota. „Við lítum málið afar alvar­legum augum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

[links]„Þar til annað verður ákveðið munu vara­for­menn stjórnar sinna verk­efnum sem eru á hendi for­manns. Allir stjórn­ar­menn hafa íhugað stöðu sína. Til að tryggja órofna starf­semi sam­bands­ins þá er nið­ur­staða stjórnar að skyn­sam­legt sé að hún sitji áfram fram að næsta árs­þingi KSÍ sem haldið verður í febr­úar á næsta ári en þá verður kosið til stjórnar,“ segir enn fremur í yfir­lýs­ing­unni.

Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsinguna í heild sinni:

Kæru þolendur, við í stjórn Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands trúum ykkur og biðjum ykkur inni­lega afsök­unar. Við vitum að við sem ábyrgð­ar­að­ilar höfum brugð­ist ykkur og við ætlum okkur að gera betur. Stjórnin hefur fundað und­an­farna daga um þær alvar­legu ásak­anir sem beinst hafa að sam­band­inu að und­an­förnu um þöggun kyn­ferð­is­brota. Við lítum málið afar alvar­legum augum. Nú þegar hefst vinna með utan­að­kom­andi fag­að­ilum um að end­ur­skoða öll við­brögð við kyn­ferð­is­brotum og ofbeldi innan hreyf­ing­ar­innar og hvernig staðið var og verður að stuðn­ingi við þolendur. Faghópur verður settur á lagg­irnar og heitir stjórn KSÍ því að taka á þessum málum af alvöru og festu og fylgja ráð­legg­ingum fag­hóps­ins. Við viljum auk þess biðja þolendur eða aðra sem hafa upp­lýs­ingar um alvar­legt ofbeldi innan hreyf­ing­ar­innar að leita til okkar. Við munum taka vel á móti ykkur, við viljum að málin fari í við­eig­andi far­veg og viljum tryggja að ábyrgð ofbeldis verði sett á réttan stað, á herðar ger­enda en ekki þolenda.

Við ætlum að lag­færa þá hluti sem farið hafa aflaga og skoða frá grunni þá menn­ingu sem við lýði er innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar með það fyrir augum að öll sem að starfi þess koma fái upp­lifað vel­ferð og öryggi, um leið og hlustað er á þolendur og til­lit tekið til þeirra hags­muna.

Vegna yfir­lýs­ingar sem stjórnin sendi frá sér þann 17. ágúst sl. þar sem brugð­ist var við ásök­unum um ofbeldi leik­manna karla­lands­liðs­ins, er rétt að taka fram að yfir­lýs­ingin byggð­ist á tak­mörk­uðum upp­lýs­ingum sem þá lágu fyrir hjá stjórn, en þar vant­aði gögn og frek­ari upp­lýs­ingar, sem hafa komið í ljós á síð­ari stigum. Við biðjum Hönnu Björgu Vil­hjálms­dóttur og aðra sem stóðu í fram­línu þess að benda á ofbeldið innan KSÍ afsök­unar á yfir­lýs­ing­unni sem gerði lítið úr þeirra ásök­unum og var laus við alla ábyrgð og ein­lægni.

Fyrir liggur að for­maður stjórnar KSÍ hefur sagt af sér og þannig geng­ist við ábyrgð á með­ferð þeirra mála sem til umfjöll­unar hafa verið. Þar til annað verður ákveðið munu vara­for­menn stjórnar sinna verk­efnum sem eru á hendi for­manns. Allir stjórn­ar­menn hafa íhugað stöðu sína. Til að tryggja órofna starf­semi sam­bands­ins þá er nið­ur­staða stjórnar að skyn­sam­legt sé að hún sitji áfram fram að næsta árs­þingi KSÍ sem haldið verður í febr­úar á næsta ári en þá verður kosið til stjórnar.

Við viljum ítreka að almennt starfs­fólk KSÍ hefur unnið verk sín af alúð og trú­mennsku og ber enga ábyrgð á þeirri atburð­ar­rás sem hefur verið í gangi.

Þessi mikla bylgja sem dunið hefur á síð­ustu vikur hreyfði við okkur öllum. Sem hluti af stærstu sjálf­boða­liða­hreyf­ingu á Íslandi­skiptir máli hvað KSÍ segir og gerir. Við höfum aldrei verið jafn með­vituð um þetta eins og núna og munum leita hjálpar sam­fé­lags­ins til að gera rót­tækar breyt­ingar, hlúa að þolendum og vera hluti af lausn­inni. Þetta verk­efni mun taka tíma, en við ætlum að hefj­ast handa strax.

Knatt­spyrnu­hreyf­ingin er hluti af sam­fé­lag­inu, og við þurfum öll sem sam­fé­lag að gera betur í því að taka utan um þolendur og berj­ast gegn kyn­ferð­is­of­beldi.

Stjórn KSÍ: Ásgeir Ásgeirs­son, Bjarni Ólafur Birk­is­son, Björn Frið­þjófs­son, Borg­hildur Sig­urð­ar­dóttir, Gísli Gíslason, Guðjón Bjarni Hálf­dán­ar­son, Ingi Sig­urðs­son, Jakob Skúlason, Jóhann Torfason, Magnús Gylfason, Orri Vignir Hlöðvers­son, Ragn­hildur Skúla­dóttir, Tómas Þór­odds­son, Valgeir Sig­urðs­son, Þor­steinn Gunn­ars­son og Þóroddur Hjalta­lín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár