Guðni hættir sem formaður KSÍ

Ákvörðun liggur fyrir: Guðni Bergsson mun ekki halda áfram sem for­maður KSÍ en hann hefur gegnt emb­ætt­inu síðan 2017.

Guðni Bergsson, fráfarandi formaður KSÍ.
Guðni Bergsson, frá­far­andi for­maður KSÍ. Mynd: Úr safni

Guðni Bergsson mun hætta sem for­maður KSÍ, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Nú stendur yfir fundur með starfs­mönnum KSÍ þar sem greint er frá þess­ari ákvörðun.

Stjórn KSÍ fund­aði stíft í gær frá hádegi fram á kvöld. Hún hitt­ist síðan aftur í morgun.

Mikið hefur verið fjalla um KSÍ og for­mann sam­bands­ins í fjöl­miðlum eftir atburða­rás síð­ustu daga og vikna þar sem frá­sagnir af kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni lands­liðs­manna í knatt­spyrnu komu upp á yfir­borðið. Þjarmað var að KSÍ í kjöl­farið en sam­bandið neit­aði ítrekað að slík mál hefðu „komið á þeirra borð“. Guðni sagði sjálfur við Frétta­blaðið að þau hefðu ekki fengið neinar til­kynn­ingar né ábend­ingar um slíkt inn á þeirra borð síðan hann tók við for­mennsku en hins vegar væru þau með­vituð um frá­sagnir á sam­fé­lags­miðlum.

[links]Ung kona steig hins vegar fram í við­tali við RÚV á föstu­dags­kvöldið og greindi frá því að hún hefði orðið fyrir ofbeldi og grófri kyn­ferð­is­legri áreitni af hálfu lands­liðs­manns í knatt­spyrnu árið 2017. Hún sagði einnig frá sam­skiptum við KSÍ á sínum tíma og furð­aði sig á að for­maður KSÍ full­yrti að engin til­kynn­ing hefði borist sam­band­inu um kyn­ferð­is­brot leik­manna. Konan sagði að lög­maður á vegum KSÍ hefði boðið henni þagn­ar­skyldu­samn­ing sem hún hafn­aði.

KSÍ neit­aði síðar um kvöldið að umræddur lög­maður hefði verið á þeirra vegum en hún stóð föst á sínu.

Fram kom í fréttum RÚV í dag að Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir, kyn­fræð­ingur, og Steinunn Gyðu- og Guð­jóns­dóttir, tals­kona Stíga­móta, hefðu í dag átt klukku­stund­ar­langan fund með konum úr stjórn KSÍ. Hanna Björg sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV að þær hefðu verið beðnar um ráð um næstu skref sem stjórn KSÍ gæti tekið. Konurnar sátu fund­inn fyrir hönd allrar stjórn­ar­innar.

KSÍ greinir frá ákvörðun Guðna á Twitter-síðu sinni og segir að frek­ari upp­lýs­inga sé að vænta frá sam­band­inu síðar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár