Útilokar ekki að Viðreisn sameinist Sjálfstæðisflokki – ef hann gjörbreytist

Formaður Við­reisnar seg­ist ekki „úti­loka eitt eða neitt“ varð­andi sam­runa Við­reisnar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en þá þurfi að snerta á öllum helstu kjarna­málum Við­reisnar, sem ekki sé útlit fyrir að ger­ist í náinni fram­tíð.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar úti­lok­aði ekki, í sam­tali við Pál Magn­ús­son þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins í þætti hans á Hring­braut í gær­kvöldi, að flokk­ur­inn gæti einn dag­inn sam­ein­ast Sjálf­stæð­is­flokknum. Hún sagð­ist ekki „úti­loka eitt eða neitt“, en til þess þyrfti að snerta á öllum helstu kjarna­málum Við­reisnar, sem væru ekki bara Evr­ópu­málin. „Það er langt í það,“ sagði Þor­gerður Katrín í þætt­inum.

For­mað­ur­inn sagði fram­bjóð­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins stundum tala eins og Evr­ópu­málin væru bara eitt mál, en þau væru víð­fem og sner­ust um efna­hags­legan stöð­ug­leika, félags­legan stöð­ug­leika og það hvar Ísland vildi standa og taka afstöðu á alþjóð­lega svið­inu. Leyfa þyrfti þjóð­inni að ákveða hvernig þessum málum yrði háttað. Einnig væru prinsipp­mál í kjarna­stefnu Við­reisnar á borð við auð­linda­mál og jafnt vægi atkvæða, sem þyrfti að koma til móts við.[links]

„Ef við getum talað um þessi mál, öll þessi mál verði snert með ein­hverjum hætti, þá ætla ég ekk­ert að úti­loka eitt eða neitt,“ sagði Þor­gerður Katrín, en bætti við að reynslan væri sú að hvorki „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn né hinir íhalds­flokk­arnir“ í rík­is­stjórn­inni vildu gera nokkuð með þessi mál.

Áfengismál „ær og kýr“ Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningar

Þor­gerður Katrín, sem er fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í við­tal­inu við Pál að Viðreisn hefði reynt að leggja til alls­konar mál á kjör­tíma­bil­inu sem hefðu leitt til auk­ins frjáls­ræðis sem bæði aðrir flokkar í stjórn­ar­and­stöðu og rík­is­stjórnin hefði fellt, til dæmis varð­andi heil­brigð­is­mál og einnig „lítil mál“ og áfeng­is­slög­gjöf­ina, sem hún kall­aði „ær og kýr“ Sjálf­stæð­is­flokks­ins er kæmi að kosn­ingum en ekk­ert gerð­ist með þess á milli.

[adspot]

„Stærsta frels­is­málið“, sagði Þor­gerður Katrín, er gjald­mið­ill­inn. „Það er stöð­ugur gjald­mið­ill og að við verðum með við­skipta­frelsi hér í alþjóð­legu sam­starfi í stað­inn fyrir að vera í stöð­ug­leika innan í ein­hverri gjald­eyr­is­hafta­búbblu eins og rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir.“

Staða Sjálfstæðisflokksins veik gagnvart Vinstri grænum

Þor­gerður Katrín sagði í við­tal­inu að það væri alveg ljóst að núver­andi rík­is­stjórn væri ekki að fara breyta neinu í sjáv­ar­út­vegs­málum, gjald­mið­ils­málum og varla miklu í heil­brigð­is­málum, ef hún héldi áfram.

Hún sagði stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins mjög veika í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum gagn­vart Vinstri grænum ef þær væru framundan, og benti á að rúm 70 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna hefðu lýst sig andsnúin áfram­hald­andi stjórn­ar­sam­starfi flokks­ins við Sjálf­stæð­is­flokk og Viðreisn í könnun fyrr í sumar.

„Hvað þýðir það, það þýðir ein­fald­lega það að heil­brigð­is­ráð­herra­efni kemur frá Vinstri grænum. [...] Staða Vinstri grænna í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum er það sterk gagn­vart Sjálf­stæð­is­flokknum að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þarf að kaupa það mjög dýru verði að fara aftur inn í rík­is­stjórn, en það dýra verð er hann samt til­bú­inn að greiða af því að þá breyt­ist ekk­ert í sjáv­ar­út­vegi á meðan. Og það er það sem er svo hættu­legt,“ sagði Þor­gerður Katrín og bætti við að sama stjórn myndi þýða fjögur ár til við­bótar af kyrr­stöðu í grund­vall­ar­málum þjóð­ar­innar.

Athuga­semd rit­stjórnar: Fyr­ir­sögn frétt­ar­innar hefur verið breytt frá því að hún birt­ist fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár