Kosningarnar snúist „fyrst og fremst“ um að koma í veg fyrir vinstristjórn

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir kosn­ing­arnar í haust snú­ast um að koma í veg fyrir vinstri­st­jórn á Íslandi. „Að hér verði ekki til vinstri­st­jórn eftir kosn­ingar, það er stóra málið,“ sagði hann í við­tali á Hring­braut í gær.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að alþing­is­kosn­ing­arnar í lok sept­em­ber snú­ist „fyrst og fremst um það að halda vinstri­st­jórn frá völdum“.

„Að hér verði ekki til vinstri­st­jórn eftir kosn­ingar, það er stóra málið. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur verið aflið sem hefur komið í veg fyrir það hingað til og það er það sem við stefnum á að gera,“ sagði Bjarni í við­tali við Pál Magn­ús­son, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem er byrj­aður að stýra póli­tískum umræðu­þáttum á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut.

Ekki óskastaða að mynda stjórn yfir miðju en samt fyrsti kostur

Í þætti Páls, sem var á dag­skrá í gær, var Bjarni spurður að því hvaða rík­is­stjórn hann vildi sjá eftir kosn­ingar. Hann sagði að fyrsti kostur sinn, ef að núver­andi rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur héldi velli, væri að gefa því stjórn­ar­mynstri séns. Það væri þó ekki óska­staðan í sjálfu sér að mynda stjórn yfir miðju, en ef það væri það sem þyrfti til þess að halda vinstri­st­jórn frá völdum myndi hann gera það.

„Ef við þurfum að mynda svona breiða stjórn aftur til að koma í veg fyrir að það ger­ist, þá munum við gera það. Ef við getum myndað rík­is­stjórn á grund­velli sterkrar stöðu eftir kosn­ingar sem er meira í takt við þær helstu áherslur sem við erum með, til dæmis í efna­hags­málum og í grænum málum, orku­bylt­ing­unni, þá myndum við skoða þann mögu­leika. En fyrsti kost­ur­inn ef stjórnin heldur velli hlýtur að vera að gefa því séns,“ sagði Bjarni.

Páll og Bjarni ræddu um stöð­una í stjórn­mál­unum og stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í þætt­inum í gær. Páll sagði að fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins virt­ist hafa tví­klofnað, til Við­reisnar ann­ars vegar og Mið­flokks­ins hins vegar. Bjarni gaf ekki mikið fyrir að það væri að hafa ein­hver áhrif á stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„Mér finnst svo­lítið spaugi­leg þessi kenn­ing þín um að Mið­flokk­ur­inn sé klofn­ingur út úr Sjálf­stæð­is­flokknum, þetta er fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins sem féll á lands­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins … og við bættum við okkur fylgi þegar Viðreisn varð til,“ sagði Bjarni.

For­mað­ur­inn sagði að hann væri ekk­ert sér­stak­lega ánægður með fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins eins og það er í dag og stefnan væri að auka það. Hann sagð­ist ekki telja nein efri mörk á því hvað Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gæti bætt við sig miklu fylgi.

Hann sagði Viðreisn hafa orðið til vegna ágrein­ings innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins um Evr­ópu­mál. „Hvar er Evr­ópu­stefna þess flokks í dag? Hvernig gengur að reka þá stefnu að Ísland eigi að ganga í Evr­ópu­sam­bandið? Erum við ekki að fara í kosn­ingar núna bráðum? Ef að það var málið sem olli klofn­ingnum, þá segi ég, við gerðum rétt með því að gefa ekki eftir í því máli,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár