Spyr hvort Sjálfstæðisflokkur sé eins máls flokkur utan um fiskveiðistjórnunarkerfið

Vil­hjálmur Bjarna­son segir að fram­bjóð­endur Sjálf­stæð­is­flokks hafi enga skírskotun til almennra kjós­enda. Hann segir Pírata virð­ast vera á „ein­hverju rófi“, að Sam­fylk­ing­ar­fólk sé leið­in­legt og að Mið­flokk­ur­inn sé trú­ar­hreyf­ing.

Vilhjálmur Bjarnason sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á árunum 2013-2017.
Vil­hjálmur Bjarna­son sat á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn á árunum 2013-2017. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vil­hjálmur Bjarna­son, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks sem sótt­ist eftir sæti ofar­lega á lista flokks­ins í próf­kjöri fyrr á þessu ári en hlaut ekki erindi sem erf­iði, gagn­rýnir flokk­inn harð­lega í grein í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar segir Vil­hjálmur að hann hafi nú lokið afskiptum að stjórn­málum og það gefi honum færi á að láta ýmis­legt frá sér fara eftir að hafa spurt sig áleit­inna spurn­inga. „Fyrsta spurn­ingin er sú hvort hin „lýð­ræð­is­lega“ aðferð próf­kjöra hafi skilað sig­ur­strang­legum fram­boðs­listum? Horfandi á mál utan frá og spurt þá sem ekki eru inn­múr­aðir, segja kjós­endur: Þetta fólk höfðar ekki til mín! Þetta fólk hefur enga skírskotun til mín! Þetta fólk hefur orðið til í kosn­ingamask­ín­unni inni í Sjálf­stæð­is­flokknum! Engin skírskotun til almennra kjós­enda!“

Hann segir að fjöl­breytni hafi verið úthýst úr Sjálf­stæð­is­flokknum og að spyrja mætti hvort Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé að verða eins máls flokkur þar sem „hag­kvæmni“ fisk­veiði­stjórn­ar­kerf­is­ins ræður för?

„Forysta flokks­ins tók þá afstöðu árið 2014, eftir að hafa lofað „þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu“ um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, að aft­ur­kalla aðild­ar­um­sókn, sem að öðru leyti lá í svefni og skað­aði engan. Þetta leiddi til þess að stór hópur í atvinnu­rek­enda­liði Flokks­ins sagði skilið við Flokkinn og gekk til liðs við nýjan smá­flokk! Góð leið til að minnka stjórn­mála­flokk! Það er einnig góð leið til að minnka flokk að við­halda óskilj­an­legri umræðu um full­veldi á plani frá 1918! Hvernig má það vera að flokkur, sem var með 40% kjör­fylgi, telur það ásætt­an­legt að fá 25% kjör­fylgi?“

[adspot]Vil­hjálmur segir enn fremur að end­ing­ar­tími for­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi verið um tíu ár, en Bjarni Bene­dikts­son, núver­andi for­maður, hefur setið í rúm tólf ár. „Nýr leið­togi hefur ávallt verið í aug­sýn. Nema núna!,“ skrifar Vil­hjálmur.

Segir Pírata á rófinu og Samfylkingarfólk leiðinlegt

Vil­hjálmur gagn­rýnir líka aðra flokka á Alþingi, sem hann skiptir upp í smá­flokka og kerf­is­flokka. Hann segir Mið­flokk­inn vera eins manns flokk án mál­efnis. Í slíkri trú­ar­hreyf­ingu sé algild trú á hinn óskeik­ula for­ingja „þar sem orða­flaum­ur­inn gusast út eins og tómatsósa, en að öðru leyti alger­lega inni­halds­laust blaður.“

Píratar hafi orðið til vegna ofur­trúar á að „ný stjórn­ar­skrá“ dragi úr „spill­ingu“. „Meðlimir þess flokks virð­ast flestir hverjir vera á ein­hverju rófi sem engir skilur, ekki einu sinni þeir sjálfir.“

Sam­fylk­ing­una segir hann hafa eðli Kvenna­lista, án allrar útgeisl­unar. „Einskis máls flokkur! Að auki, þeir sem tala fyrir þessa fylk­ingu eru fjand­anum leið­in­legri og skap­vondir.“

Vil­hjálmur talar af hæðni um allt hug­sjón­ar­fólkið í Vinstri grænum, sem fari svo í aðra flokka þegar það fær ekki allt sem það krefst.

Grunsemdir um hagsmunaárekstra

Vil­hjálmur er ekki eini mað­ur­inn sem setið hefur á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem hefur gagn­rýnt hann í aðdrag­anda kosn­inga. Páll Magn­ús­son, sem enn er þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og odd­viti hans í Suð­ur­kjör­dæmi en mun ekki vera í fram­boði í haust, skrif­aði grein í Morg­un­blaðið í júlí. Þar sagði hann að ásamt klofn­ingi, væri meg­in­vandi flokks­ins í dag víð­tækur trú­verð­ug­leika­brestur. „Og vand­inn er djúp­stæð­ari en svo að það verði tek­ist á við hann með því að yppta öxlum, tala um breytta tíma og búa til nokkur 30 sek­úndna mynd­bönd fyrir kosn­ingar.“

[links]Það sem hann nefndi helst sem ástæðu fyrir trú­verð­ug­leika­brest­inum voru við­var­andi grun­semdir um hags­muna­á­rekstra sem Páll sagði að lægju eins og þoku­mistur yfir flokknum. „Tveir aug­ljós­ustu hlut­arnir af þess­ari grun­semda­þoku eru auð­vitað ann­ars vegar þær stöð­ugu ásak­anir sem for­maður flokks­ins má þola vegna eigin umsvifa og fjöl­skyldu hans í við­skipta­líf­inu – afskrifta og aflands­reikn­inga – og svo full­yrð­ingar um skað­lega hags­muna­á­rekstra vegna náinna tengsla sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra við Samherja.“

Þó ekki væri hægt að sýna fram á að hags­muna­á­rekstrar hefðu orðið hjá ráð­herr­unum tveimur, Bjarna Bene­dikts­syni og Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni, breytti það engu um að grun­semd­irnar sætu sem fast­ast. „Segja má að í til­viki fjár­mála­ráð­herra sé lítið við því að gera; hann stund­aði þau við­skipti sem hann stund­aði – sama gerðu aðrir í hans fjöl­skyldu – svo gera menn bara upp við sig hvort þeir treysta honum eða ekki. Og flestir Sjálf­stæð­is­menn treysta honum og hafa kosið sér hann sem for­mann hvað eftir annað. Öðru máli gegnir um sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Það er auð­vitað hreint sjálf­skap­ar­víti for­ystu flokks­ins að hafa ekki valið þeim mæta manni annað ráðu­neyti en einmitt þetta. Þessi ráð­stöfun hefur skaðað Sjálf­stæð­is­flokk­inn og ráð­herr­ann sjálfan – og skemmt fyrir þeirri við­leitni að skapa meiri sátt um sjáv­ar­út­veg­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár