„Sjálfskaparvíti“ hjá Sjálfstæðisflokknum að hafa sett Kristján Þór í sjávarútvegsráðuneytið

Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir allt of lít­inn og allt of eins­leitan hóp ráða ferð­inni í Sjálf­stæð­is­flokknum frá degi til dags. Hann segir grun­semdir um hags­muna­á­rekstra liggja eins og þoku­mistur yfir flokknum.

Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Bára Huld Beck

Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að, ásamt klofn­ingi, sé meg­in­vandi flokks­ins í dag víð­tækur trú­verð­ug­leika­brestur. „Og vand­inn er djúp­stæð­ari en svo að það verði tek­ist á við hann með því að yppta öxlum, tala um breytta tíma og búa til nokkur 30 sek­úndna mynd­bönd fyrir kosn­ingar.“

Þetta kemur fram í grein sem Páll, sem er sitj­andi odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi en verður ekki í fram­boði í haust, skrifar í Morg­un­blaðið í dag. Það sem hann nefnir helst sem ástæðu fyrir trú­verð­ug­leika­brest­inum eru við­var­andi grun­semdir um hags­muna­á­rekstra sem Páll segir að liggi eins og þoku­mistur yfir flokknum. „Tveir aug­ljós­ustu hlut­arnir af þess­ari grun­semda­þoku eru auð­vitað ann­ars vegar þær stöð­ugu ásak­anir sem for­maður flokks­ins má þola vegna eigin umsvifa og fjöl­skyldu hans í við­skipta­líf­inu – afskrifta og aflands­reikn­inga – og svo full­yrð­ingar um skað­lega hags­muna­á­rekstra vegna náinna tengsla sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra við Samherja.“

[adspot]Páll segir að dæmin eigi það sam­eig­in­legt að í hvor­ugu til­vik­inu hefur verið sýnt fram á að þessar aðstæður hafi skaðað þá almanna­hags­muni sem ráð­herr­arnir eigi að gæta. Það sé ekki hægt að sýna fram á að hags­muna­á­rekst­ur­inn hafi orðið, en það breyti engu um að grun­semd­irnar sitji sem fast­ast. „Segja má að í til­viki fjár­mála­ráð­herra sé lítið við því að gera; hann stund­aði þau við­skipti sem hann stund­aði – sama gerðu aðrir í hans fjöl­skyldu – svo gera menn bara upp við sig hvort þeir treysta honum eða ekki. Og flestir Sjálf­stæð­is­menn treysta honum og hafa kosið sér hann sem for­mann hvað eftir annað. Öðru máli gegnir um sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Það er auð­vitað hreint sjálf­skap­ar­víti for­ystu flokks­ins að hafa ekki valið þeim mæta manni annað ráðu­neyti en einmitt þetta. Þessi ráð­stöfun hefur skaðað Sjálf­stæð­is­flokk­inn og ráð­herr­ann sjálfan – og skemmt fyrir þeirri við­leitni að skapa meiri sátt um sjáv­ar­út­veg­inn.“

Lítill og einsleitur hópur ræður ferðinni

Tilefni greinar Páls er það fylgis­tap sem flokk­ur­inn hefur upp­lifað á síð­asta rúma ára­tug. Hann bendir á að þrír flokks­for­menn hafi leitt Sjálf­stæð­is­flokk­inn í gegnum fjórar kosn­ingar á síð­ustu 50 árum. Þeir tveir fyrstu, Geir Hall­gríms­son og Davíð Oddsson, hafi leitt tryggt flokknum 37,3 og 37,5 pró­sent fylgi að með­al­tali í þessum kosn­ingum. Sá þriðji, Bjarni Bene­dikts­son sitj­andi for­maður, hafi tryggt flokknum 26,2 pró­sent fylgi að með­al­tali í þeim fjórum kosn­ingum sem hann hafi leitt hann í gegnum. Versta nið­ur­staðan var 2009 þegar 23,7 pró­sent lands­manna kusu flokk­inn. Það er nán­ast sama fylgi og hann mælist með í könn­unum nú.

Páll bendir líka á að ánægja með ráð­herra flokks­ins mælist að jafn­aði minni en með ráð­herrar ann­arra stjórn­ar­flokka, þrátt fyrir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé stærsti flokk­ur­inn í rík­is­stjórn­inni. Kristján Þór mælist til að mynda langóvin­sæl­asti ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar. Alls sögð­ust 61 pró­sent lands­manna vera óánægð með hans störf í nýlegri könnun Gallup og ein­ungis ell­efu pró­sent sögð­ust vera ánægð með hann.

[links]Ástæð­urnar séu margrar. Sumir telji að þær eigi rætur sínar að rekja í banka­hrun­inu, Icesave-deil­unni eða átökum um þriðja orku­pakk­ann. Auk þess hafi flokk­ur­inn klofnað, fyrst þegar frjáls­lyndir fóru út úr honum í Viðreisn, og síðar þegar íhalds­sam­ari flokks­menn gengu til liðs við Mið­flokk­inn.

Nið­ur­staða Páls, sem hann setur fram í grein­inni, er sú að ásamt klofn­ing sé meg­in­vandi Sjálf­stæð­is­flokks­ins víð­tækur trú­verð­ug­leika­brestur. For­ystu­menn flokks­ins verði að hvetja til og taka þátt í opnu og gagn­rýnu sam­tali – innan flokks­ins og út á við – ef flokk­ur­inn á að end­ur­heimta stöð­una sem breið­fylk­ing borg­ara­legra afla á Íslandi. „Faðmur flokks­ins hefur verið að þrengj­ast og eins­leitni að aukast. Allt of lít­ill og allt of eins­leitur hópur ræður í raun ferð­inni í Sjálf­stæð­is­flokknum frá degi til dags. Þannig hefur flokk­ur­inn ekki lengur eins breiða skírskotun og fyrrum – og margir sem áður studdu flokk­inn finna ekki lengur sam­hljóm með honum. En þetta væri efni í aðra grein. En Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í dauða­færi til að brjót­ast út úr þess­ari stöðu. Þátttaka yfir 20 þús­und manns í próf­kjörum flokks­ins nýverið, í öllum kjör­dæmum lands­ins, sýnir að jarð­veg­ur­inn er fyrir hendi og hann er frjór. Það þarf bara að sá í akur­inn og hirða um hann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár