Auglýsa skipulagsbreytingar þrátt fyrir ítrekuð varnaðarorð Skipulagsstofnunar

Skipu­lags­stofnun ítrek­aði í vor þá afstöðu sína að vísa ætti ákvörðun um virkjun í Hverf­is­fljóti til end­ur­skoð­unar aðal­skipu­lags Skaft­ár­hrepps sem nú stendur yfir. Við því var ekki orðið og skipu­lags­breyt­ingar vegna áfor­manna nú verið aug­lýstar.

Tveir fossar, Faxi og Lambhagafoss, yrðu fyrir áhrifum af hinni fyrirhuguðu virkjun í Hverfisfljóti.
Tveir fossar, Faxi og Lamb­haga­foss, yrðu fyrir áhrifum af hinni fyr­ir­hug­uðu virkjun í Hverf­is­fljóti. Mynd: Eldvötn - samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi

Sveit­ar­stjórn Skaft­ár­hrepps hefur aug­lýst breyt­ingu á aðal­skipu­lagi og deiliskipu­lag fyrir fyr­ir­hug­aða virkjun við Hnútu í Hverf­is­fljóti. Virkj­unin, sem yrði tæp­lega 10 MW að afli, er mjög umdeild og fékk afar nei­kvæða umfjöllun í áliti Skipu­lags­stofn­unar síð­asta sumar. Telur stofn­unin að hún myndi hafa „veru­lega nei­kvæð umhverf­is­á­hrif“ og að til­efni hafi verið til að meta áformin í ramma­á­ætlun. Rökin séu m.a. þau að upp­haf­lega hafi hún átt að vera allt að 15 MW en hafi síðar verið útfærð sem 9,3 MW virkjun. „Sú fram­kvæmd sem hér er til umfjöll­unar og for­saga hennar sýna veik­leika þess að miða við upp­sett afl sem við­mið um það hvaða fram­kvæmdir skulu teknar fyrir í ramma­á­ætlun,“ sagði í áliti Skipu­lags­stofn­unar á umhverf­is­á­hrifum Hnútu­virkj­unar. „Umfang fyr­ir­hug­aðrar 9,3 MW virkj­unar í Hverf­is­fljóti er að mestu sam­bæri­legt fyrri áformum um 15 MW virkjun.“

[adspot]

Áform land­eig­anda í Dals­höfða um virkjun Hverf­is­fljóts hafa verið uppi í nokkuð langan tíma. Árið 2006 var lögð fram fyr­ir­spurn um mats­skyldu 2,5 MW rennsl­is­virkj­unar til Skipu­lags­stofn­unar. Þau áform voru svipuð og nú eru uppi, nema hvað upp­sett afl virkj­unar var mun minna. Skipu­lags­stofnun taldi að fram­kvæmdin ætti ekki að vera háð mati á umhverf­is­á­hrifum. Sú ákvörðun var kærð til umhverf­is­ráð­herra sem sneri ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar við. Í fram­hald­inu lagði fram­kvæmd­ar­að­ili fram til­lögu að mats­á­ætlun sem Skipu­lags­stofnun féllst á árið 2008.

[links]Samkvæmt mats­á­ætl­un­inni var áformað að reisa 15 MW virkjun. Þau áform voru þau sömu og nú nema hvað afl­setn­ing var hærri. Eftir að ákvörðun um mats­á­ætlun lá fyrir voru fram­kvæmda­á­form lögð til hliðar og ekki tekin upp fyrr en árið 2016. Ný áform um virkjun eru byggð á gömlum grunni og sú fram­kvæmd sem nú er áformuð byggir að mestu á eldri hug­myndum frá 2006 og 2008.

Virkj­un­ar­svæðið er fyr­ir­hugað í hinu tæp­lega 240 ára gamla Eld­hrauni sem rann í Skaft­ár­eldum á árunum 1783-1784. Skaft­ár­eldar voru eitt mesta eld­gos Íslands­sög­unnar og þriðja mesta hraun sem runnið hefur á jörð­inni frá ísald­ar­lokum. Um þetta atriði fjall­aði Skipu­lags­stofnun sér­stak­lega í áliti sínu og var það nið­ur­staða stofn­un­ar­innar að virkj­unin myndi hafa nei­kvæð áhrif á Skaft­ár­elda­hraun sem hefði mikið vernd­ar­gildi bæði á lands­vísu og heims­vísu. Ekki væri hægt að að horfa til stærðar hrauns­ins og hlut­falls­legs rasks þess líkt og gert væri í mats­skýrslu og bent var á að um jarð­minjar væri að ræða sem nytu sér­stakrar verndar í nátt­úru­vernd­ar­lögum. Þeim skuli ekki raska nema brýna nauð­syn beri til og að almanna­hags­munir séu í húfi. „Skipu­lags­stofnun telur að ekki hafi verið sýnt fram á brýna nauð­syn fyrir röskun á Skaft­ár­elda­hrauni,“ segir svo í álit­inu og að í ljósi sér­stöðu þess verði að gera kröfu um að sýnt verði fram á það með afdrátt­ar­laus­ari hætti í skipu­lags­gerð og áður en kemur til leyf­is­veit­inga.

Margra ára gömul hugmynd

Í gild­andi aðal­skipu­lagi Skaft­ár­hrepps er gert ráð fyrir allt að 40 MW virkjun í Hverf­is­fljóti. Í aðal­skipu­lags­breyt­ing­unni sem nú hefur verið aug­lýst er lagt til að gert verði ráð fyrir 9,3 MW virkjun, að iðn­að­ar­svæð­inu verði hnikað til og legu aðrennslis- og veitu­ganga breytt í sam­ræmi við umhverf­is­mat og grunn­hönnun.

Samtímis hefur verið aug­lýst til­laga að deiliskipu­lagi vegna virkj­un­ar­innar. Það tekur til allra mann­virkja hennar, bygg­inga, vega og ann­arra fram­kvæmda. Þá tekur það einnig til efn­is­náma og efn­islos­un­ar­svæða, auk veg­teng­inga að þessum svæðum. „Markmið deiliskipu­lags­ins er að sýna fyr­ir­hug­aðar bygg­ingar auk stíflu­mann­virkja og lóns,“ segir í aug­lýs­ing­unni. Stærð deiliskipu­lags­svæð­is­ins er 84,2 hekt­arar.

[adspot]

Í grein­ar­gerð með til­lögu að breyttu aðal­skipu­lagi, sem Land­mótun vinnur og er tíma­sett í mars, segir að þegar afl­setn­ing hinnar fyr­ir­hug­uðu virkj­unar var sett fram árið 2008, og hún þá áætluð 15 MW, hafi það verið byggt á renns­l­is­tölum sem safnað var saman á árunum 1981-2005. „Síðan þá hafa farið fram rennsl­is­mæl­ingar ofar í ánni við fyr­ir­hugað stíflu­stæði árið 2006 og frá des­em­ber 2016. Þær mæl­ingar eru nákvæm­ari með til­liti til virkj­aðs rennslis á virkj­un­ar­stað og sýna að hag­kvæm­asta afl er mun minna en áður var talið eða um 9 MW.“ Einnig segir að mark­mið breyt­ing­ar­innar sé að auka raf­orku­ör­yggi á svæð­inu og fram­leiða raf­magn til sölu á almennum mark­aði.

Deiliskipu­lags­til­lagan er unnin af Land­mótun og Mannviti. Hún er einnig tíma­sett í mars í ár. Í hvor­ugri til­lög­unni er fjallað um nið­ur­stöður álits Skipu­lags­stofn­unar frá því í fyrra­sumar en minnst á að það liggi fyrir og þess getið í heim­ilda­skrá.

Í athuga­semdum Skipu­lags­stofn­unar við skipu­lags­til­lög­urnar, sem gefnar voru út í lok apríl og birtar eru á heima­síðu Skaft­ár­hrepps, ítrekar stofn­unin að um sé að ræða skipu­lags­á­kvörðun vegna fram­kvæmdar sem myndi hafa í för með sér „var­an­leg og óaft­ur­kræf umhverf­is­á­hrif“. Af fund­ar­gerðum sveit­ar­stjórnar, umsögnum og athuga­semdum stofn­ana og ein­stak­linga vegna skipu­lags- og mats­lýs­ingar megi ráða að verk­efnið sé umdeilt, einkum í ljósi lík­legra umhverf­is­á­hrifa. „Í ljósi þess telur Skipu­lags­stofnun ástæðu til að sveit­ar­stjórn vísi ákvörðun um virkjun í Hverf­is­fljóti til end­ur­skoð­unar aðal­skipu­lags sveit­ar­fé­lags­ins sem nú stendur yfir, og skoði heild­stætt allar mögu­legar leiðir til úrbóta á afhend­ingar­ör­yggi raf­orku í sveit­ar­fé­lag­inu,“ segir í athuga­semd­unum. „Í þeirri vinnu taki sveit­ar­stjórn afstöðu til þess hvers konar raf­orku­fram­leiðsla verði heim­iluð í sveit­ar­fé­lag­inu og hvaða tæki­færi skap­ast til atvinnu­upp­bygg­ingar með orku­fram­leiðslu og trygg­ara afhend­ingar­ör­yggis.“

[adspot]

Þá ítrekar stofn­unin enn­fremur að hún telji að ekki hafi verið sýnt fram á að brýnir almanna­hags­munir séu til staðar fyrir röskun Skaft­ár­elda­hrauns og að for­senda fyrir leyf­is­veit­ingum sé að við skipu­lags­gerð verði sýnt fram á slíka hags­muni með skýrum hætti. Jafn­framt telur stofn­unin að þörf sé á að við skipu­lags­gerð­ina verði skoðað hvort það rask á hraun­inu sem fram­kvæmd­inni fylgi sé ásætt­an­legt. Stofn­unin gerir fleiri athuga­semdir við til­lög­urnar en bendir að lokum á að ekki sé gerð athuga­semd við að aðal­skipu­lags­til­lagan verði aug­lýst, þegar brugð­ist hafi verið við athuga­semdum og ábend­ingum stofn­un­ar­innar. „Að öðrum kosti ber sveit­ar­stjórn að birta athuga­semdir Skipu­lags­stofn­unar með til­lög­unni á aug­lýs­inga­tíma.“

Það er gert og því ljóst að sveit­ar­stjórn valdi þann kost í stað þess að bregð­ast við athuga­semdum stofn­un­ar­innar í hinum aug­lýstu til­lögum.

Umdeilt innan sveitarstjórnar

Virkj­ana­á­formin hafa ekki aðeins verið gagn­rýnd af íbúum hrepps­ins og ýmsum hags­muna­að­ilum, s.s. í ferða­þjón­ustu, heldur hafa þau verið umdeild innan sveit­ar­stjórn­ar­innar. Á fundi stjórn­ar­innar í maí, þar sem sam­þykkt var af meiri­hluta sveit­ar­stjórn­ar­manna að aug­lýsa til­lög­urnar, lét Jóna Björk Jóns­dóttir, full­trúi Z-list­ans, Sólar í Skaft­ár­hreppi, bóka að flokk­ur­inn tæki undir nið­ur­stöður Skipu­lags­stofn­unar um að fram­kvæmdin hefði í för með sér var­an­leg og óaft­ur­kræf umhverf­is­á­hrif. „Bent er á að ekki hefur verið sýnt fram á að fram­kvæmdin sé sú leið sem fara þurfi til að tryggja afhend­ingar­ör­yggi raf­magns í sveit­ar­fé­lag­inu. Eðlilegt er að sveit­ar­stjórn vísi ákvörðun um virkjun í Hverf­is­fljóti til end­ur­skoð­unar aðal­skipu­lags og þar verði allar leiðir til úrbóta á afhend­ingar­ör­yggi raf­orku skoð­aðar.“

Frestur til að skila athuga­semdum við til­lög­urnar er til og með 1. júlí. Þeim skal skila skrif­lega á net­fangið bygg@klaustur.is eða á skrif­stofu Skaft­ár­hrepps á Kirkju­bæj­ar­klaustri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

virkjanamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár