Ellefu skilyrði Skipulagsstofnunar vegna Geitdalsárvirkjunar

Þar sem Geit­dals­ár­virkjun yrði umfangs­mikil fram­kvæmd á ósnortnu svæði og að hluta innan mið­há­lend­is­línu þarf Arctic Hydro að gera sér­staka grein fyrir skerð­ingu víð­erna í umhverf­is­mati.

Skipu­lags­stofnun hefur fall­ist á mats­á­ætlun Arctic Hydro vegna fyr­ir­hug­aðrar Geit­dals­ár­virkj­unar í Múla­þingi með ell­efu ítar­legum skil­yrðum. Auk krafna um vel skil­greindar rann­sóknir á ýmsum þáttum sem yrðu fyrir áhrifum vill stofn­unin að fjallað verði um í næsta skrefi umhverf­is­mats­ins hvernig fyr­ir­tækið komst að því að virkj­unin yrði 9,9 MW að afli, rétt undir við­mið­inu sem krefst umfangs­mik­illar og fag­legrar umfjöll­unar verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar. Geit­dals­ár­virkjun er ein af fjöl­mörgum virkj­unum sem kall­aðar hafa verið smá­virkj­anir, eru rétt undir 10 MW, en geta þó vissu­lega haft mikil umhverf­is­á­hrif – jafn­vel á pari við þau sem afl­meiri virkjun á sama stað hefði.

Orku­stofnun velti því m.a. upp í umsögn sinni um mats­á­ætl­un­ina hvort Arctic Hydro hefði reiknað kosti og galla auk­innar fram­leiðslu­getu. Skipu­lags­stofnun vill því fá að vita hvort að 9,9 MW sé end­an­leg stærð eða hvort mögu­legt verði að auka orku­fram­leiðslu síðar og þá hvort það sé fyr­ir­hugað.

Persónur og leikendur

Geit­dals­ár­virkjun ehf. er alfarið í eigu Arctic Hydro hf. Það félag er skráð í eigu sex aðila og á Qair Iceland, sem áformar fjöl­mörg vind­orku­ver vítt og breitt um landið, stærstan hlut eða 38 pró­sent. Stjórn­ar­for­maður þess er Tryggvi Þór Her­berts­son, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og efna­hags­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra í tíð Geirs H. Haarde.

Adira Hydro á 23 pró­sent í Arctic Hydro og Snæból, fjár­fest­inga­fé­lag Stein­unnar Jóns­dóttur og Finns Reyrs Stef­áns­sonar, á 18 pró­sent. Tíu pró­senta hlutur Arctic Hydro er svo í eigu Hængs ehf. Það félag er að fullu í eigu Bene­dikts Ein­ars­sonar, frænda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra.

Náttúran og framkvæmdin

Geit­dalsá á upp­tök sín í lækjum og tjörnum á hálend­inu upp af Ham­ars­dal og Fossár­dal vestan Ódáða­vatna, í jaðri svæðis sem nefn­ist Hraun. Hún rennur til norð­urs, á köflum í gegnum gljúfur og í fossa­röðum, og á þess­ari leið falla í hana margar þverár og lækir.

Mest af vatni Geit­dalsár kemur úr Leiru­dalsá, á sem rennur í gegnum nokkur stöðu­vötn á leið sinni úr vestri. Tvö þess­ara vatna munu fara undir miðl­un­ar­lón verði áform Arctic Hydro að veru­leika.

Tvær stíflur yrðu reistar, önnur við miðl­un­ar­lón í Leirudal sem yrði í rúm­lega 700 metra hæð yfir sjáv­ar­máli og um þrír fer­kíló­metrar að stærð. Stíflan sú yrði 1 kíló­metri að lengd og mesta hæð hennar 18 metrar. Einnig yrði þverá Leiru­dalsár veitt í lónið. Önnur stífla vegna inn­takslóns yrði gerð í far­vegi Geit­dalsár. Hún er áætluð um 300 metrar að lengd og mesta hæð hennar yrði 32 metrar. Úr inn­tak­inu yrði vatn­inu veitt um 6,6 kíló­metra leið að stöðv­ar­húsi.

Virkj­unin hefði í för með sér allt að 80 pró­sent skerð­ingu á nátt­úru­legu rennsli Geit­dalsár á kafla, en alls er gert ráð fyrir að um 16 kíló­metrar árfar­vega verði fyrir breyttu rennsli.

Umfangsmikið rask

Að sögn Skipu­lags­stofn­unar kæmi Geit­dals­ár­virkjun til með að hafa í för með sér umfangs­mikið rask á landi. Fram­kvæmda­svæðið teygi sig upp í rúm­lega 700 metra hæð, liggi að hluta innan marka mið­há­lend­is­ins og sé hluti af að mestu óraskaðri lands­lags­heild. Bendir stofn­unin í þessu sam­bandi á að meðal mark­miða nátt­úru­vernd­ar­laga sé að standa vörð um óbyggð víð­erni lands­ins. Enn­fremur sé rík áhersla á verndun víð­erna mið­há­lend­is­ins í Lands­skipu­lags­stefnu.

Geitdalsá rennur að hluta í gegnum gljúfur
Geit­dalsá rennur að hluta í gegnum gljúfur

Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands sagði m.a. í umsögn sinni um mats­á­ætl­un­ina að óbyggð víð­erni væru nær horfin í Evrópu og fágæt á Íslandi. Alþjóð­leg ábyrgð Íslands um að vernda þau væri því mikil. „Af þessum sökum telur Skipu­lags­stofnun sér­stak­lega mik­il­vægt að vandað sé til verka við mat á áhrifum fram­kvæmd­ar­innar á óbyggð víð­erni og nið­ur­stöður settar fram með skýrum hætti.“

Stofn­unin bendir svo á að útreikn­ingar á skerð­ingu óbyggðra víð­erna sé ein­göngu einn þáttur í mati á áhrifum á víð­erni. „Ekki er síður mik­il­vægt að leggja mat á áhrif fram­kvæmda á víð­er­na­upp­lifun,“ segir í álit­inu.

Í umsögnum um mats­á­ætl­un­ina kom fram að miklum óbyggðum víð­áttum Aust­ur­lands hafi þegar verið raskað í þágu orku­vinnslu og m.a. vísað til Kára­hnjúka­virkj­unar í því sam­bandi. Land­vernd benti á að virkj­anir á borð við Geit­dals­ár­virkjun væru þekktar fyrir að tvístra upp minni sam­fé­lögum og því mik­il­vægt að gott sam­ráð sé haft við íbúa í nær­sam­fé­lag­inu.

Geit­dals­ár­virkjun kæmi að sögn Skipu­lags­stofn­unar óhjá­kvæmi­lega til með að breyta ásýnd svæðis sem ber í dag lítil merki mann­legra athafna. Sýni­leik­inn kunni að hafa áhrif á upp­lifun heima­manna og ann­arra sem stunda úti­vist og ferða­mennsku á svæð­inu.

Því skal Arctic Hydro láta meta gildi og aðdrátt­ar­afl svæð­is­ins með til­liti til sam­fé­lags, ferða­mennsku og úti­vistar, t.a.m. með við­horfskönn­unum eða við­tölum við ferða­menn, ferða­þjón­ustu­að­ila og íbúa á svæð­inu. Jafn­framt þarf, að sögn stofn­un­ar­innar, að kanna við­horf þess­ara aðila til virkj­un­ar­á­for­manna.

Skerðing í fleiri ám

Í mats­á­ætlun Arctic Hydro kom fram að virkj­unin gæti haft í för með sér 50-80 pró­sent skerð­ingu á nátt­úru­legu rennsli Geit­dalsár á um sjö kíló­metra kafla. Í umsögn Haf­rann­sókna­stofn­unar var hins vegar bent á að vatns­miðl­unin myndi hafa áhrif á rennsli í öllum far­vegum Leiru­dalsár, Geit­dalsár og Grímsár, en ekki aðeins á milli miðl­un­ar­lóns og stöðv­ar­húss líkt og haldið var fram í mats­á­ætl­un­inni.

Skipu­lags­stofnun tekur undir athuga­semd Haf­rann­sókna­stofn­unar um mik­il­vægi þess að árfar­vegir fari ekki á þurrt. Í umhverf­is­mats­skýrslu þurfi að skil­greina lág­marks­rennsli þeirra vatns­falla sem yrðu fyrir skerð­ingu vegna virkj­un­ar­innar og gera grein fyrir mót­væg­is­að­gerðum í þurrka­tíð.

Geitdalsgriðlandið

Í svo­nefndri nátt­úru­mæra­skrá Helga Hall­gríms­sonar er skrá um Geit­dals­griðlandið og nátt­úru­far þess. Þar er fjallað um birki- og víði­kjarr í hlíðum dals­ins, en sér­stæðir eða vist­fræði­lega mik­il­vægir birki­skógar og leifar þeirra njóta sér­stakrar verndar nátt­úru­vernd­ar­laga.

Skipu­lags­stofnun vill því að Arctic Hydro láti meta hvort virkj­unin hefði áhrif á vernd­ar­gildi griðlands­ins, á fyr­ir­hug­aðan mið­há­lend­is­þjóð­garð og jarð­mynd­anir og vist­kerfi sem njóta sér­stakrar verndar laga um nátt­úru­vernd. Ef fram­kvæmdin mun hafa áhrif á svæði sem njóta slíkrar verndar þurfi að rök­styðja brýna nauð­syn þess að raska þeim.

Losun gróðurhúsalofttegunda

Í ell­efta og síð­asta lagi setur Skipu­lags­stofnun það skil­yrði að Arctic Hydro meti hve mikið líf­rænt efni færi undir lón virkj­un­ar­innar og áætla losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna þessa.

Á mik­il­vægi þessa hafði Haf­rann­sókn­ar­stofnun bent í umsögn sinni en Arctic Hydro svar­aði því til að slíkar mæl­ingar hefðu lítið sem ekk­ert verið gerðar fram að þessu við mat á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmda. Að mati fyr­ir­tæk­is­ins bættu þær litlu við. Skipu­lags­stofnun bendir hins vegar á að losun frá virkj­un­ar­lónum sé afar breyti­leg. „Fyr­ir­hugað lón­stæði er stórt og sam­kvæmt korta­sjá Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands er tölu­vert um vot­lendi á því og jarð­vegur vist­gerða innan svæð­is­ins almennt líf­rænn en með mis­mun­andi kolefn­is­inni­hald,“ segir í áliti hennar. „Að mati Skipu­lags­stofn­unar er fullt til­efni til kort­leggja lón­stæði með til­liti til jarð­vegs og áætla losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arctichydro

Mest lesið undanfarið ár