Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi dómsmálaráðherra, mun ekki gera kröfu um að vera á lista flokksins í Reykjavík í komandi þingkosningum. Frá þessu greinir hún í stöðuuppfærslu á Facebook.
[links]Á sama vettvangi greinir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, frá því að hann kveðji stjórnmálin sáttur.
Sigríður sóttist eftir öðru sætinu í prófkjöri flokksins í Reykjavík sem lauk í gær. Þegar talningu atkvæða var lauk lá hins vegar fyrir að hún varð ekki á meðal átta efstu. Í ljósi þess að Sjálfstæðisflokkurinn hefur sem stendur fimm þingmenn i Reykjavík og er að mælast með fjóra til fimm í könnunum þá liggur fyrir að Sigríður átti nær enga möguleika að halda sér á þingi miðað við niðurstöðu prófkjörsins.
[adspot]Sigríður segir í stöðuuppfærslunni að hún þakki fyrir það þegar nokkur þúsund merki við hana á kjörseðli þótt það hafi ekki dugað til að ná þeim árangri sem að hafi verið stefnt að þessu sinni. „Ég mun láta kjörnefnd flokksins, sem vinnur úr niðurstöðunni, vita að ég geri enga kröfu um sæti á framboðslista flokksins. Sem fyrr verð ég tilbúin til að leggja sjálfstæðisstefnunni lið hvar og hvenær sem er. Hún sameinar íhaldssemi og frjálslyndi á svo fallegan hátt. Ég óska Guðlaugi Þór og Áslaugu Örnu til hamingju með skýrt umboð til að leiða framboðslista flokksins í borginni. Diljá Mist og Hildur mega sömuleiðis vera stoltar af árangrinum.”
Brynjar sóttist líka eftir öðru sætinu en endaði í fimmta. Í stöðuuppfærslu á Facebook segir hann að úrslitin séu „talsverð vonbrigði fyrir mig en skilaboðin eru skýr. Ég trúi því að Sjálftæðisflokknum muni vegna vel í komandi kosningum. Ég kveð því stjórnmálin sáttur.”
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir