Skipulagsstofnun vill að virkjanakostir í tillögu að rammaáætlun verði yfirfarnir

Í ljósi þess að þings­á­lykt­un­ar­til­laga um ramma­á­ætlun sem nú liggur fyrir Alþingi er byggð á gögnum sem aflað var á árunum 2015-2016 telur Skipu­lags­stofnun til­efni til að yfir­fara flokkun virkj­ana­kosta.

Fossinn Drynjandi í Hvalá. Hvalárvirkjun er í nýtingarflokki 3. áfanga rammaáætlunar.
Fossinn Drynj­andi í Hvalá. Hval­ár­virkjun er í nýt­ing­ar­flokki 3. áfanga ramma­á­ætl­unar. Mynd: Landvernd

Skipu­lags­stofnun telur til­efni til að yfir­fara þá virkj­ana­kosti sem lagt er til að falli í nýt­ingar- og bið­flokk ramma­á­ætl­unar sam­kvæmt þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem nú hefur verið lögð hefur fram á Alþingi í þriðja sinn á rúm­lega fjórum árum. Vill stofn­unin að kannað verði hvort að í öllum til­vikum sé um að ræða virkj­ana­kosti sem enn eru fyr­ir­hug­aðir eða er af öðrum ástæðum til­efni til að festa í áætlun um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða.

Í jan­úar voru átta ár liðin frá því að 2. áfangi verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætl­unar, svo­nefndrar ramma­á­ætl­unar, var sam­þykktur á Alþingi. Rúmlega fjögur ár eru síðan til­laga til þings­á­lykt­unar á þeim þriðja var lögð fyrst fram og tæp­lega fjögur síðan umhverf­is­ráð­herra skip­aði verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga.

[adspot]

Umsagna­frestur um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar rann út í vik­unni. Í áætl­un­inni er virkj­ana­kostum raðað í verndar-, nýt­ingar- eða bið­flokk. Verk­efn­is­stjórn 3. áfanga skil­aði loka­skýrslu sinni um flokkun 82 virkj­un­ar­kosta til umhverf­is­ráð­herra í ágúst árið 2016. Ráð­herr­ann, Sigrún Magn­ús­dóttir, lagði í kjöl­farið fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu í fullu sam­ræmi við til­lögur verk­efn­is­stjórn­ar­innar. Tillagan var ekki afgreidd í ráð­herra­tíð Sigrúnar og ekki heldur í tíð Bjartar Ólafs­dóttur.

[links]Tillagan hefur nú verið lögð fram í þriðja sinn og enn í óbreyttri mynd – tæp­lega fjórum og hálfu ári eftir að verk­efn­iss­stjórn skil­aði loka­skýrslu sinni til ráð­herra. Að þessu sinni er það Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra sem leggur hana fram en sam­kvæmt henni fara átján virkj­ana­kostir í orku­nýt­ing­ar­flokk. Í bið­flokki er að finna 23 virkj­ana­kosti og 26 í vernd­ar­flokki.

Í umsögn Skipu­lags­stofn­unar um til­lög­una nú er vakin athygli á því hversu langur tími er lið­inn frá mótun til­lög­unnar. „Ramma­á­ætlun byggir fyrst og fremst á virkj­un­ar­kostum sem til­teknir fram­kvæmda­að­ilar óska eftir að teknir séu fyrir,“ segir í umsögn­inni sem Ásdís Hlökk Theó­dórs­dóttir, for­stjóri Skipu­lags­stofn­unar, skrifar. Bent er á að sveit­ar­fé­lögum beri að gera ráð fyrir virkj­ana­kostum í skipu­lagi í sam­ræmi við flokkun þeirra í ramma­á­ætlun. „Í ljósi fram­an­greinds telur Skipu­lags­stofnun til­efni til að yfir­fara lista yfir virkj­ana­kosti sem lagt er til að falli í nýt­ingar- og bið­flokk sam­kvæmt til­lög­unni, það er, hvort í öllum til­vikum er um að ræða virkj­un­ar­kosti sem eru enn fyr­ir­hug­aðir eða er af öðrum ástæðum til­efni til að festa í ramma­á­ætlun,“ segir í umsögn­inni.

Athygli er vakin á að ákveðnir virkj­un­ar­kostir sem til­lagan tekur til, hafa þegar hlotið máls­með­ferð sam­kvæmt lögum um mat á umhverf­is­á­hrifum, eftir að til­laga verk­efn­is­stjórnar lá fyrir árið 2016 eða að vísað er til eldri gagna í til­lög­unni.

Um er að ræða eft­ir­far­andi virkj­ana­kosti:

Veitu­leið Blöndu­virkj­unar: Skipu­lags­stofnun gaf út álit um umhverf­is­mat virkj­un­ar­innar í októ­ber 2014, en í grein­ar­gerð þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar er vísað til rök­stuðn­ings í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem var sam­þykkt árið 2013.

Hval­ár­virkjun: Skipu­lags­stofnun gat út álit um mat á umhverf­is­á­hrifum Hval­ár­virkj­unar í apríl 2017.

Búr­fellslundur: Skipu­lags­stofnun gaf út álit um mat á umhverf­is­á­hrifum Búr­fellslundar í des­em­ber 2016.

Bjarn­arflags­virkjun: Skipu­lags­stofnun tók ákvörðun í nóv­em­ber 2014 um að end­ur­skoða þurfi fyr­ir­liggj­andi umhverf­is­mat virkj­un­ar­innar, en í grein­ar­gerð þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar er vísað til rök­stuðn­ings í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem var sam­þykkt árið 2013. Ákvörð­unin var kærð, en stað­fest af úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála að hluta með úrskurði nefnd­ar­innar dags. 5. októ­ber 2017.

Hvamms­virkjun: Skipu­lags­stofnun gaf út nýtt álit um mat á umhverf­is­á­hrifum virkj­un­ar­innar í mars 2018, vegna end­ur­skoð­unar fyrra umhverf­is­mats varð­andi til­tekna þætti.

[adspot]

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, sagði í við­tali við Kjarnann fyrir um ári síðan að í þessum þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar yrði dregin lína í sand­inn hvað varðar virkj­anir á hálendi Íslands en sam­hliða þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að ramma­á­ætlun er nú fjallað um frum­varp að hálend­is­þjóð­garði á Alþingi. Samkvæmt frum­varp­inu verður heim­ilt að ráð­ast í þær virkj­ana­hug­myndir sem falla munu í nýt­ing­ar­flokk í þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar. Að sama skapi verður leyfi­legt að þær hug­myndir sem enda í bið­flokki þessa áfanga áætl­un­ar­innar geti verk­efn­is­stjórn tekið til skoð­unar í næstu áætl­unum sínum.

Virkj­ana­kost­ur­inn Skrokkalda er eina vatns­afls­virkj­unin innan marka fyr­ir­hug­aðs hálend­is­þjóð­garðs sem lagt er til að fari í nýt­ing­ar­flokk sam­kvæmt þeirri til­lögu sem Alþingi þarf nú að fjalla um og afgreiða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

virkjanamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár