Segir Friðjón nota „alla sömu frasana og Viðreisn“

Brynjar Níelsson segir að ef farið yrði að ráðum mið­stjórn­ar­manns í Sjálf­stæð­is­flokknum, og ráð­ist í breyt­ingar á stefnu og gildum flokks­ins, væri verið að stunda tæki­fær­is­mennsku og henti­stefnu.“ Það gæti leitt til þess að Sjálf­stæð­is­flokkur dagi uppi.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Bára Huld Beck

„Hefði ekki komið mér á óvart að þessi grein hefði verið skrifuð í þing­flokks­her­bergi Við­reisnar. Friðjón notar alla sömu fra­sana sem þaðan koma án þess að segja nokkuð um hverju eigi að breyta og hvernig eða af hverju. En eitt er víst, að skrif hans end­ur­spegla djúp­stæða óánægju með for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“

[links]Þetta skrifar Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, í grein í Morg­un­blað­inu í dag þar sem hann bregst við grein sem Friðjón R. Frið­jóns­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar og mið­stjórn­ar­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum, skrif­aði í lið­inni viku.

Í grein sinni, sem vakti mikla athygli þar sem áhrifa­mik­ill inn­an­búð­ar­maður var að gagn­rýna stóru drætt­ina í stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði Friðjón m.a. að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi nú á sér það yfir­bragð að hann vilji ekki að ís­­lenskt sam­­fé­lag breyt­ist í takt við tím­ann eða um­heim­inn. „Ef Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn ætl­­ar að skil­­greina sig sem flokk sem er á móti breyt­ing­um á efna­hags­líf­inu, sjáv­ar­út­veg­in­um, land­­bún­að­ar­­­kerf­inu, orku­­mál­um, stjórn­­­ar­­skránni og sam­­fé­lag­inu sjálfu – þá mun hann daga uppi og verða að steini, eins og tröll í dag­renn­ingu. Aðrir stjórn­­­mála­­flokk­ar taka sér þá for­yst­u­hlut­verk og færa sín­ar hug­­mynd­ir og sitt stjórn­­­lyndi í lög og regl­­ur.“

Hefur meiri áhyggjur af öðrum flokkum

Grein Brynjars ber fyr­ir­sögn­ina „Stein­tröllin“ með vísun í ofan­greint. Þar seg­ist Brynjar hafa miklu meiri áhyggjur af stöðu og stefnu ann­arra flokka en Sjálf­stæð­is­flokks­ins „sem óljóst er fyrir hvaða gildi standa og hafa enga stefnu nema vera skyldi henti­stefnu í til­raunum sínum til að kall­ast nútíma­legir.“

[adspot]Erfitt sé að átta sig á hvað Friðjóni hafi gengið til þegar hann gaf í skyn í grein­inni að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri á móti breyt­ingum á efna­hags­líf­inu, sjáv­ar­út­veg­inum, land­bún­að­ar­kerf­inu, orku­málum, stjórn­ar­skránni og sam­fé­lag­inu sjálfu og flokk­inn myndi daga uppi og verða að stein­trölli með sama áfram­haldi.

Brynjar rekur í kjöl­farið þær breyt­ingar sem hann segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn hafa staðið fyrir á ýmsum kerfum og segir að þær hafi verið til fram­dráttar, meðal ann­ars sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu. „ Ef Friðjón telur það gagn­legt fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn að koll­varpa fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu til að mæta kröfum „nútím­ans“ er hann á villi­götum. Stöð­ug­leiki og fyr­ir­sjá­an­leiki eru lyk­il­at­riði í okkar mik­il­væg­ustu atvinnu­grein,“ skrifar Brynjar. 

Tækifærismennska og hentistefna

Brynjar gerir líka breyt­ingar á stjórn­ar­skrá að umtals­efni og segir að óæski­legt sé að þær taki tíðum breyt­ingum. „Allra síst rót­tækum breyt­ingum á stjórn­skipan lands­ins af því að ein­hverjum kann að þykja það nútíma­legt.“

Að hans mati er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn óhræddur við breyt­ingar, enda afl­vaki breyt­inga og þró­unar. „Hann er hins vegar ekki flokkur breyt­inga breyt­ing­anna vegna. Hann vill varð­veita góð gildi í mann­legu sam­fé­lagi og á sama tíma auka frelsi ein­stak­lings­ins til orða og athafna. Það eru for­sendur breyt­inga og þró­unar hvers sam­fé­lags til að geta stað­ist harða sam­keppni við aðra.“

Í lok greinar sinnar segir Brynjar að sjálf­sagt sé eng­inn stjórn­mála­flokkur eilífur. Þeir geti horfið ef stefnan og gildin sem þeir standi fyrir höfði ekki lengur til almenn­ings. Það eigi þó örugg­lega ekki við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. „Hins vegar er það vel þekkt að flokka dagi uppi stundi þeir tæki­fær­is­mennsku og henti­stefnu í stað þess fylgja stefnu sinni og tali fyrir þeim gildum sem flokk­ur­inn stendur fyrir. Það gætu orðið örlög Sjálf­stæð­is­flokks­ins ef farið yrði að ráðum Friðjóns R. Frið­jóns­sonar. Þá getum við velt fyrir okkur hverjir verða stein­tröll og hverjir ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár