Æðsti yfirmaður Økokrim segist vanhæfur til að rannsaka DNB

Nýlega ráð­inn yfir­maður hjá norsku efna­hags­brota­deild­inni Økokrim hefur lýst sig van­hæfan til þess að koma að rann­sókn á bank­anum DNB, sem fór af stað eftir umfjöllun um Sam­herj­a­skjölin í fyrra. Málið verður fært til ann­ars emb­ættis.

Yfirmaður Økokrim hefur lýst sig vanhæfan til að fara með rannsókn á bankanum DNB. Málið verður fært til annars embættis.
Yfir­maður Økokrim hefur lýst sig van­hæfan til að fara með rann­sókn á bank­anum DNB. Málið verður fært til ann­ars emb­ættis. Mynd: Úr safni

Pål Lønseth, æðsti yfir­maður norsku efna­hags­brota­deild­ar­innar Økokrim, hefur lýst sig van­hæfan til þess að fjalla um mál norska bank­ans DNB sem hefur verið til rann­sóknar hjá emb­ætt­inu frá því að Sam­herj­a­skjölin komu upp á yfir­borðið í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Málið verður fært til ann­ars sak­sókn­ara­emb­ættis.

Þetta kemur fram í frétt norska rík­is­út­varps­ins NRK, sem vísar til bréfs frá Heidi Rein­holdt-Østbye, rík­is­lög­manni Noregs. Fram kemur í frétt­inni að Lønseth lýsi sig van­hæfan til að fara með málið vegna fyrri starfa sinna í lög­mennsku, en hann var ráð­inn sem yfir­maður Økokrim í sumar. Á árum áður starf­aði hann meðal ann­ars sem rann­sak­andi hjá PwC í Noregi.

Rík­is­sak­sókn­ari Noregs mun færa málið til ann­ars emb­ættis, en þetta er sam­kvæmt frétt NRK í þriðja sinn sem Lønseth lýsir sig van­hæfan til að fara með mál síðan hann tók við emb­ætti sínu. Ekki hefur enn verið ákveðið hvaða emb­ætti tekur mál DNB að sér, en það mun liggja fyrir fljót­lega, sam­kvæmt svörum Rein­holdt-Østbye til NRK.

Lønseth hafði sam­kvæmt frétt NRK áður lýst því yfir að hann hefði ekki skoðað gögn DNB-máls­ins, sem hófst sem áður segir eftir umfjöllun um mál­efni Samherja.

Rauð ljós kviknuðu og bankinn brást seint við

Sagt var frá því í Kveik, Stund­inni og reyndar einnig hjá norska rík­is­fjöl­miðl­inum í nóv­em­ber í fyrra að árið 2017 hefðu komið upp rauð ljós við áhættu­mat inn­an­húss hjá DNB varð­andi við­skipta­vin­inn JPC Shipmana­ga­ment, kýp­verskt móð­ur­fé­lag félags á Marshall-eyjum sem hét Cape Cod.

DNB, sem er í hluta­eigu norska rík­is­ins, greip hins vegar ekki til aðgerða í sam­ræmi við varnir gegn pen­inga­þvætti fyrr en ári seinna, eða árið 2018.[links]

Kveikur greindi líka frá því að fjár­munir frá dótt­ur­fé­lagi Sam­herja á Kýp­ur, sem einnig var með reikn­inga í norska bank­an­um, hefðu runnið inn á reikn­inga í eigu Cape Cod. Sömu­leiðis hefði fé runnið frá Cape Cod og inn á reikn­inga Sam­herj­a­fé­laga.

Síðar hefði DNB lokað reikn­ingum Cape Cod í bank­anum, vegna óvissu um hver raun­veru­legur eig­andi Cape Cod væri. Sagt var frá því að bank­inn sjálfur hefði talið að Cape Cod væri í eigu Samherja, en Samherji hefur and­mælt frétta­flutn­ingi af mál­inu.

Norski bank­inn sleit við­skipta­sam­bandi sínu við Sam­herja í lok síð­asta árs, án útskýr­inga. Ekki hefur komið fram opin­ber­lega af hverju sú ákvörðun var tekin innan bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár