Ríkissjóður búinn að greiða 3,9 milljarða króna í uppsagnarstyrki

Færri umsóknir hafa borist um svo­kall­aða upp­sagn­ar­styrki úr rík­is­sjóði en búist var við. Áætlaður kostn­aður við styrk­ina var 27 millj­arðar en búið er að greiða út 14 pró­sent af þeirri upp­hæð.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Þann 7. ágúst síð­ast­lið­inn höfðu alls 332 umsóknir borist um svo­kall­aða upp­sagn­ar­styrki úr rík­is­sjóði, en um slíka geta fyr­ir­tæki sem orðið hafa fyrir veru­legu tekju­falli sótt um til að standa straum af 85 pró­sent af kostn­að­inum við að segja upp fólki.

Þegar er búið að afgreiða 265 umsóknir vegna 158 rekstr­ar­að­ila og af þeim umsóknum sem afgreiddar hafa verið nemur greiddur stuðn­ingur um 3,7 millj­örðum króna vegna launa og 160 millj­ónir króna vegna orlofs.

Þegar frum­varp um upp­sagn­ar­styrki var lagt fram um miðjan maí var gert ráð fyrir því að bein útgjöld rík­is­sjóðs vegna úrræð­is­ins yrðu 27 millj­arðar króna. Enn sem komið hefur því um 14 pró­sent af áætl­uðum kostn­aði vegna upp­sagn­ar­styrkja fallið til.

Umsóknir færri en gert var ráð fyrir

Í minn­is­blaði Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem inni­heldur yfir­lit yfir stöðu stærstu efna­hags­að­gerða stjórn­valda vegna COVID-19, og var lagt fyrir rík­is­stjórn síð­ast­lið­inn föstu­dag, segir að umsóknir séu færri en gert hafði verið ráð fyrir á tíma­bil­inu. Umsókn­ar­frestur vegna maí, júní og júlí sé þó ekki lið­inn og gæti fjöldi umsókna því tekið breyt­ingum fram til 20. ágúst, í dag, en það er síð­asti umsókn­ar­dagur vegna þess­ara mán­aða. Upp­lýs­ingar um hverjir hafa nýtt sér úrræðið og hversu mik­inn stuðn­ing þessir aðilar hafa fengið, verða birtar á vef Skatts­ins eftir 20. ágúst.

Átti að kosta 27 milljarða

Þann 28. apr­íl var til­kynnt um að rík­is­stjórnin ætl­aði að veita ákveðnum fyr­ir­tækj­um, sem hefðu orðið fyrir umfangs­miklu tekju­tapi, eða að minnsta kosti 75 pró­sent, styrki til að eyða ráðn­ing­ar­sam­böndum þeirra við starfs­fólk sitt.

[adspot]Þegar þessi áform voru kynnt lá ekk­ert frum­varp fyr­ir, ekk­ert kostn­að­ar­mat hafði verið gert opin­bert og engin kynn­ing á áformunum hafði átt sér stað meðal þing­flokka. Fyr­ir­tæki hófu að segja fólki upp í miklu magni strax í kjöl­far­ið, og áður en nýr mán­uðum hæf­ist.

Frum­varp var svo lagt fram um miðjan maí mánuð og kostn­að­ar­mat kynnt sam­hliða. Það gerði ráð fyrir því að rík­is­sjóður greiði fyr­ir­tækjum sem upp­fylla sett skil­yrði alls 27 millj­arða króna í styrki í ár til að hjálpa þeim að segja upp fólki.

Yfir­lýst mark­mið var að draga úr fjölda­gjald­þrotum og tryggja rétt­indi launa­fólks. Hlið­ar­á­hrif eru að eign hlut­hafa er var­in.

Icelandair áætlar að sækja 3,3 milljarða

Ljóst er að það fyr­ir­tæki sem hefur helst notið góðs af úrræð­inu er Icelandair Group. Í hálfs­árs­upp­gjöri þess kom fram að það búist við að sækja að minnsta kosti 24 millj­ónir banda­ríkja­dala, jafn­virði tæp­lega 3,3 millj­arða íslenskra króna, í styrki til stjórn­valda vegna greiðslu launa á upp­sagn­ar­fresti starfs­manna.

[links]Þar seg­ir, á blað­síðu 24, að félög í eigu Icelandair Group vinni nú að því að sækja um styrk­ina sem stjórn­völd kynntu, en að ennþá sé óvíst hversu margir starfs­menn muni verða hluti af umsókn­inni, sem fari meðal ann­ars eftir því hversu marga starfs­menn félagið muni geta end­ur­ráðið áður en upp­sagn­ar­frestur þeirra rennur út í sumar og í haust.

Icelandair reikn­aði þessi ætl­uðu áhrif upp­sagn­ar­styrkja inn sem lækk­aðan kostnað við starfs­manna­hald á öðrum árs­fjórð­ungi, og því er bætt við að ekki sé loku fyrir það skotið að félagið sæki um enn hærri upp­sagn­ar­styrki, sem komi þá inn í reikn­ings­hald félags­ins á þriðja árs­fjórð­ungi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár