Hátt í sex hundruð fyrirtæki hafa sótt um rúma 5 milljarða í stuðningslán

Alls hafa 567 fyr­ir­tæki sótt um 5,1 millj­arð króna í stuðn­ings­lán, en umsóknir 237 þeirra hafa afgreiddar verið til þessa. Einungis eitt brú­ar­lán hefur verið veitt, sam­kvæmt því sem fjár­mála­ráðu­neytið best veit.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Alls hafa 567 fyr­ir­tæki sótt um sér­stök stuðn­ings­lán, sem rík­is­stjórnin kynnti til leiks í vor vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á efna­hags­lífið. Heild­ar­fjár­hæð umsókna til þessa nemur 5,1 millj­arði króna, en 237 umsóknir hafa verið afgreiddar og nemur fjár­hæð útgreiddra stuðn­ings­lána 1,9 millj­arði til þessa.

Þetta kemur fram á nýrri upp­lýs­inga­síðu rík­is­stjórn­ar­innar um þær efna­hags­að­gerðir sem gripið hefur verið til vegna veiru­far­ald­urs­ins og hvernig þær hafa verið nýttar til þessa.

Stuðn­ings­lán eru rekstr­ar­lán ætluð minni fyr­ir­tækjum, eða þeim sem höfðu tekjur á bil­inu níu til 1.200 millj­ónir króna árið 2019. Til þess að upp­fylla skil­yrði lán­anna þurfa fyr­ir­tæki að hafa upp­lifað að minnsta kosti 40 pró­senta tekju­sam­drátt á 60 daga tíma­bili, frá 1. mars til 30. sept­em­ber miðað við sama 60 daga tíma­bil í fyrra og launa­kostn­aður þarf sömu­leiðis að hafa numið að minnsta kosti 10 pró­sentum af rekstr­ar­gjöldum árs­ins 2019.

Fleiri skil­yrði eru einnig sett á lán­tek­endur, en þeir mega ekki hafa greitt út arð eða óum­­samda kaupauka, keypt eigin hluta­bréf, greitt af víkj­andi láni eða veitt nákomnum aðilum lán frá 1. mars 2020. Þá mega lán­tak­endur ekki vera í van­skilum við lána­­stofnun sem hafa staðið lengur í 90 daga né í van­skilum með opin­ber gjöld.

Lánin geta numið allt að 10 pró­sentum af tekjum fyr­ir­tækja á árinu 2019 og eru lánin með fullri rík­is­á­byrð upp að 10 millj­ónum króna, en svo er einnig hægt að sækja um við­bót­ar­lán til bank­anna sem eru með 85 pró­sent rík­is­á­byrgð og geta þau að hámarki orðið 40 millj­ónir króna.

Einungis kunnugt um eitt brúarlán

Fram kemur á upp­lýs­inga­vef stjórn­valda að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu sé ein­ungis kunn­ugt um að eitt brú­ar­lán hafi verið veitt til þessa, en rétt eins og stuðn­ings­lánin eru það lán með rík­is­á­byrgð, sem getur numið allt að 70 pró­sentum í til­felli brú­ar­lán­anna.

Lánin geta að hámarki numið 1,2 millj­örðum króna. Eina lánið sem yfir­völdum er kunn­ugt um að hafi verið afgreitt frá því að bank­anir fóru að bjóða upp á þau var lán frá Arion banka til Icelandair Hotels, sem einmitt fór upp í það þak.

Brú­ar­lánin voru ein helsta efna­hags­að­gerðin sem stjórn­völd kynntu til leiks vegna efna­hags­legra áhrifa far­ald­urs­ins í mars­mán­uði og var þá áætlað að þau myndu nema að hámarki 70 millj­örðum króna.

Fyr­ir­tæki virð­ast þó hafa verið treg til að sækja um þessa teg­und lána og sagði Ólafur Steph­en­sen fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda við Stöð 2 í síð­ustu viku að hann teldi skil­yrði lán­anna of flókin og fela í sér of miklar kvaðir.

„Þar að auki eru þau bara að hluta til með rík­is­á­byrgð og okkur sýn­ist að bank­arnir séu bara ein­fald­lega ekki til­búnir að taka á sig áhættu sem getur fylgt veit­ingu brú­ar­lán­anna,“ sagði Ólafur við Stöð 2.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár