34 milljarðar króna í að viðhalda störfum en 27 milljarðar króna í að eyða þeim

Hluta­bóta­leiðin mun lík­ast til kosta 45 sinnum meira en upp­haf­lega var lagt upp með. Hún hefur, að mati rík­is­end­ur­skoð­unar, verið mis­notuð á margan hátt til að ná út fé úr rík­is­sjóði. Nú býðst sömu fyr­ir­tækjum sem hana nýttu rík­is­styrkir til að reka fólk.

Leiðtogar ríkisstjórnar Íslands.
Leið­togar rík­is­stjórnar Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Í mars var lagt fram frum­varp sem mark­aði fyrstu skref sitj­andi rík­is­stjórnar í við­brögðum hennar við þeim efna­hags­þreng­ingum sem COVID-19 far­ald­ur­inn myndi leiða af sér. Hug­myndin á bak­við frum­varpið var að það gæti mögu­lega hjálpað til við að vernda ráðn­ing­ar­sam­bönd og letja fyr­ir­tæki til að reka fólk vegna fyr­ir­sjá­an­legra efna­hags­þreng­inga gegn því að ríkið myndi greiða hluta launa þeirra tíma­bundið. Í dag er hug­myndin fyrst og síð­ast þekkt sem hluta­bóta­leiðin.

Þegar frum­varpið var lagt fram kom fram í grein­ar­gerð þess, sem er dag­sett 13. mars, að um þús­und manns myndu nýta sér úrræðið og að kostn­aður vegna þess yrði um 755 millj­ónir króna. Þegar leiðin var lög­fest viku síðar höfðu sviðs­myndir breyst hratt og sú versta gerði ráð fyrir því að tíu þús­und manns myndu nýta leið­ina. Það myndi kosta rík­is­sjóð 6,4 millj­arða króna.

Degi síðar kynnti rík­is­stjórnin fyrsta aðgerð­ar­pakka sinn og þá var kostn­að­ur­inn við hluta­bóta­leið­ina áætl­aður 22 millj­arðar króna.

Í mars og apríl nýttu rúm­lega 37 þús­und manns sér leið­ina og í gær voru atkvæði greidd á Alþingi um að fram­lengja hana út ágúst, með breyttu sniði. Nú áætla stjórn­völd að kostn­aður vegna leið­ar­innar verði 34 millj­arðar króna, en gild­is­tími hennar var í gær fram­lengdur með breyt­ingum út ágúst­mánuð. Þær breyt­ingar sem gerðar voru fela meðal ann­ars í sér að í júlí og ágúst verða hámarks­greiðslur úr opin­berum sjóðum 50 pró­sent af greiddum launum í stað 75 pró­sent. Auk þess mega þau fyr­ir­tæki sem nýta sér leið­ina ekki ætla að greiða arð, kaupa eigin bréf, greiða óum­samda bónusa eða borga helstu stjórn­endum yfir þrjár millj­ónir á mán­uði í tvö ár.

Fjöldi þeirra sem nýttu sér leið­ina hefur 37fald­ast frá fyrsta mati og upp­hæðin sem hún á að kosta 45fald­ast.

Ríkisendurskoðun stígur inn í

Á mið­viku­dag, þegar vel­ferð­ar­nefnd var að ljúka umfjöllun sinni um fram­leng­ingu hluta­bóta­leið­ar­innar, óskaði Rík­is­end­ur­skoðun eftir því að fá að koma á fund nefnd­ar­innar. Ástæðan reynd­ist vera sú að stofn­unin hafði, að eigin frum­kvæði, fram­kvæmt úttekt á hluta­bóta­leið­inni og skýrsla um nið­ur­stöðu hennar var til­búin. Rík­is­end­ur­skoðun vildi kynna hana fyrir vel­ferð­ar­nefnd áður en að áfram­hald leið­ar­innar yrði ákveðið.

Þegar skýrslan var svo birt opin­ber­lega, síð­degis á fimmtu­dag, kom í ljós af hverju. Rík­is­end­ur­skoðun telur að hluta­bóta­leiðin hafi verið mis­notuð á marg­hátt­aðan máta. Fyr­ir­tæki sem búa að öfl­ugum rekstri og traustum efna­hag hafi til að mynda nýtt sér hana án þess að þau hafi orðið fyrir veru­legum skakka­föllum. Sum þeirra eiga tugi, jafn­vel hund­ruð, millj­arða króna í eigið fé og eru í afar arð­bærum rekstri.

[adspot]Opin­berir aðilar eins og sveit­ar­fé­lög og Íslands­póstur, settu starfs­menn á leið­ina án þess að lög­skýr­ing­ar­gögn hafi borið það með sér að það væri ætl­unin. Ýmsir launa­greið­endur breyttu launa­seðlum sínum eftir á til að sýn­ast vera með hærri laun en áður til að ná hærri greiðslum út úr rík­is­sjóði. Sum fyr­ir­tæki sögðu fólki á hluta­bóta­leið­inni upp, og báru fyrir sig að ráð­gjöf þess efnis hefði komið frá Samtökum atvinnu­lífs­ins, sem var ber­sýni­lega ekki í anda þess að við­halda ráðn­ing­ar­sam­bandi. Þá kom fram í skýrsl­unni að Vinnu­mála­stofnun hefði fengið ábend­ingar um að sum fyr­ir­tæki sem nýttu leið­ina væru að láta starfs­menn skila meira vinnu­fram­lagi en lækkað starfs­hlut­fall sagði til um og að starfs­hlut­fall ein­stak­linga hafi verið lækkað aft­ur­virkt án þess að sú hafi verið raun­in.

Sam­an­dregið er uppi marg­hátt­aður rök­studdur grunur um að fjár­munir hafi verið sviknir út úr rík­is­sjóði. Eftirlit með nýt­ingu leið­ar­innar hefur enda verið nær ekk­ert fram til þessa.

Skoðun Rík­is­end­ur­skoð­unar, og ástæða þess að stofn­unin ákvað að mæta á fund vel­ferð­ar­nefndar, er að brýnt sé að eft­ir­lit sé haft með nýt­ingu rík­is­fjár og að stað­inn sé vörður um hags­muni rík­is­sjóðs þegar tugum millj­arða króna er ráð­stafað úr honum í leið eins og hluta­bóta­leið­ina.

Þegar fram­hald hluta­bóta­leið­ar­innar var sam­þykkt á Alþingi í gær var það ekki gert í miklum ein­hug. Einungis 27 þing­menn af 63 greiddu atkvæði með frum­varp­inu. Aðrir greiddu ekki atkvæði eða voru fjar­staddir. Allir þing­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokka sem voru í þing­sal þegar atkvæða­greiðslan fór fram sátu hjá

Styrkir veittir til að segja upp fólki

Rúmum mán­uði eftir að hluta­bóta­leiðin var sam­þykkt sem leið til að við­halda ráðn­ing­ar­sam­bandi, nánar til­tekið 28. apríl, var til­kynnt um að rík­is­stjórnin ætl­aði að veita ákveðnum fyr­ir­tækjum, sem hefðu orðið fyrir umfangs­miklu tekju­tapi, styrki til að eyða ráðn­ing­ar­sam­böndum þeirra við starfs­fólk sitt. Þegar þessi áform voru kynnt lá ekk­ert frum­varp fyrir, ekk­ert kostn­að­ar­mat hafði verið gert opin­bert og engin kynn­ing á áformunum hafði átt sér stað meðal þing­flokka. Fyr­ir­tæki hófu að segja fólki upp í bíl­förmum strax í kjöl­farið, og áður en nýr mán­uðum hæf­ist.

[links]Frumvarp var svo lagt fram um miðjan maí mánuð og kostn­að­ar­mat kynnt sam­hliða. Það gerir ráð fyrir því að rík­is­sjóður greiði fyr­ir­tækjum sem upp­fylla sett skil­yrði alls 27 millj­arða króna í styrki til að hjálpa þeim að segja upp fólki. Yfirlýst mark­mið er að draga úr fjölda­gjald­þrotum og tryggja rétt­indi launa­fólks. Hlið­ar­á­hrif eru að eign hlut­hafa er varin.

Það kom mörgum á óvart að verka­lýðs­hreyf­ingin studdi þessa hug­mynd, að skattfé færi í greiðslu launa á upp­sagn­ar­fresti. Það gerði þó til dæmis Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) í umsögn um það. Í gær­morgun urðu vend­ingar í þeim stuðn­ingi þegar Drífa Snædal, for­seti ASÍ, birti reglu­legan föstu­dag­spistil sinn þar sem hún sagði að stuðn­ingur við frum­varpið, sem kjósa átti um síðar sama dag, væri ekki skil­yrð­is­laus. Það væri skil­yrði af hálfu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar að þegar fyr­ir­tækin tækju við sér, yrði fólk end­ur­ráðið sam­kvæmt starfs­ald­urs­röð á sömu kjörum og það var á. „Ekkert þess­ara atriða hefur ratað inn í frum­varpið í með­förum þings­ins á þessum tíma­punkti. Því er ljóst að fyr­ir­tæki geta sagt fólki upp og end­ur­ráðið á lak­ari kjörum og sleppt því að end­ur­ráða starfs­fólk sem hefur áunnið sér starfs­ald­urstengd rétt­indi. Ef frum­varpið nær fram að ganga í þess­ari mynd gæti það leitt til mestu kjara­skerð­ingar síð­ari tíma með stuðn­ingi lög­gjafans. Við höfum sent þing­mönnum bréf með ítrek­uðum kröfum og átt milli­liða­laust sam­tal við þing­menn í dag. Ég ætl­ast til þess af þing­mönnum og öllum þeim sem geta látið rödd sína heyr­ast að þau tryggi að þetta stór­slys verði ekki að veru­leika.“

Inngrip ASÍ hafði afleið­ingar. Á end­anum var sam­þykkt breyt­ing­ar­til­laga frá efna­hags- og við­skipta­nefnd þess efnis að komi til ráðn­ingar starfs­fólks að nýju innan sex mán­aða frá upp­sagn­ar­degi skuli launa­maður halda þeim kjörum sem hann hafði þegar til upp­sagnar kom í sam­ræmi við ráðn­ing­ar­samn­ing.“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, setti stöðu­færslu á Twitter um málið seint í gær, áður en að kosið var um frum­varpið. Þar sagði hann það „furðu­legt þegar sagt er að frum­varpið hvetji til upp­sagna.“

Kosið var um frum­varpið í gær, rúmum tveimur mán­uðum eftir að hluta­bóta­leiðin kom fyrst fram á sviðið, og það sam­þykkt.

Á þeim tveimur mán­uðum hefur því ríkið skuld­bundið sig til að eyða 34 millj­örðum króna til að við­halda ráðn­ing­ar­sam­böndum og 27 millj­örðum króna til að eyða þeim hjá fyr­ir­tækjum sem orðið hafa fyrir að minnsta kosti 75 pró­sent tekju­falli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár