43 nýir virkjanakostir lagðir til

Sam­an­lagt upp­sett afl þeirra virkj­ana­hug­mynda sem komnar eru inn á borð verk­efn­is­stjórnar fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar er 3.675 MW. Í þriðja áfanga áætl­un­ar­innar, sem ítrekað hefur frest­ast að afgreiða á þingi, er 1.421 MW í nýt­ing­ar­flokki.

Áhugi er á að reisa 34 vindorkuver á Íslandi. Eitt vindorkuver er hér nú þegar, sem telur tvær vindmyllur Landsvirkjunar.
Áhugi er á að reisa 34 vind­orku­ver á Íslandi. Eitt vind­orku­ver er hér nú þegar, sem telur tvær vind­myllur Lands­virkj­unar. Mynd: Úr safni.

Orku­stofnun hefur að ósk verk­efn­is­stjórnar fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar sent henni gögn um 43 nýja virkj­un­ar­kosti, sem bæt­ast þar með við þá kosti sem skil­greindir voru í þriðja áfanga. Kallað var eftir gögnum frá aðilum í tveimur áföngum. Fyrsti hlut­inn með gögnum um tólf kosti var sendur í febr­úar og sá síð­ari með gögnum um 31 kost nú í apríl.

[links]Af þessum 43 virkj­un­ar­kostum eru sjö í vatns­afli, tveir í jarð­hita og 34 í vind­orku. Sam­an­lagt afl allra þess­ara virkj­ana­hug­mynda er um 3.675 MW en til sam­an­burðar þá er Kára­hnjúka­virkjun, langstærsta virkjun lands­ins, 690 MW að afli.

Níu vind­orku­ver eru fyr­ir­huguð af fyr­ir­tæk­inu Quadran Iceland Develop­ment, HS orka áformar þrjú vind­orku­ver, sex hug­myndir að slíkum verum eru skráð undir nafni Langa­nes­byggðar og tíu eru á vegum fyr­ir­tæk­is­ins Zephyr Iceland.

Lands­virkjun fyr­ir­hugar stækkun á þremur virkj­unum sínum, eins og fjallað var um í Kjarn­anum nýverið sem og eitt vind­orku­ver.

[adspot]

Í yfir­liti Orku­stofn­unar um virkj­ana­kost­ina 43 er greint frá tveimur virkj­ana­á­formum á svip­uðum slóðum sem „úti­loka hvor aðra“ eins og það er orðað. Þar er um að ræða hug­mynd Orkubús Vest­fjarða, Tröll­ár­virkun, og hug­mynd Vest­ur­verks, Hvann­eyr­ar­dals­virkjun.

Vest­ur­verk sæk­ist eftir því að reisa þrjár virkj­anir; fyrr­nefnda Hvann­eyr­ar­dals­virkjun, Skúfna­vatna­virkjun og vind­orku­ver sem nefnt er Nón­borgir í yfir­liti Orku­stof­unnar.

Orku­veita Reykja­víkur óformar eina nýja virkjun, jarð­hita­virkjun í Ölfusdal.

Átján kostir í nýtingarflokki: 1421 MW

Þriðji áfangi ramma­á­ætl­unar var afgreiddur frá verk­efn­is­stjórn með loka­skýrslu í ágúst árið 2016, fyrir rúm­lega fjórum árum síðan. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga byggð á þeirri nið­ur­stöðu hefur í tvígang verið lögð fram á Alþingi en vegna end­ur­tek­inna stjórn­ar­slita er hún enn óaf­greidd. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, hugð­ist leggja til­lög­una fram í þriðja sinn nú á vor­þingi og í óbreyttri mynd en af því verður ekki vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Í þriðja áfang­anum lagði verk­efn­is­stjórnin til að átta nýir virkj­un­ar­kostir bætt­ust í orku­nýt­ing­ar­flokk áætl­un­ar­innar; Skrokköldu­virkjun, Holta­virkjun, Urriða­foss­virkjun, Aust­ur­gils­virkjun, Aust­urengjar, Hvera­hlíð II, Þver­ár­dalur og Blöndu­lundur.

Um er að ræða fjórar vatns­afls­virkj­anir með upp­sett afl upp á alls 277 MW, þrjár jarð­hita­virkj­anir með upp­sett afl allt að 280 MW og eitt vind­orku­ver með upp­sett afl allt að 100 MW. Ekki voru lagðar til breyt­ingar á flokkun þeirra virkj­un­ar­kosta sem fyrir voru í orku­nýt­ing­ar­flokki en þeir eru alls tíu tals­ins. Samtals var því lagt til að átján virkj­un­ar­kostir yrðu flokk­aðir í orku­nýt­ing­ar­flokk og hafa þeir sam­tals 1421 MW upp­sett afl.

Með sjálfbæra þróun að leiðarljósi

Verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar var skipuð af Björt Ólafs­dóttur, þáver­andi umhverf­is­ráð­herra, í apríl árið 2017. Formaður er Guðrún Pét­urs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Stofn­unar Sæmundar fróða. Hlutverk verk­efn­is­stjórnar er að veita umhverf­is­ráð­herra ráð­gjöf um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða.

[adspot]

Samkvæmt lög­unum um ramma­á­ætlun ber verk­efn­is­stjórn­inni að sjá til þess að „… nýt­ing land­svæða þar sem er að finna virkj­un­ar­kosti bygg­ist á lang­tíma­sjón­ar­miðum og heild­stæðu hags­muna­mati … með sjálf­bæra þróun að leið­ar­ljósi.“

Verk­efn­is­stjórnin hefur tvö verk­færi til að sinna þess­ari skyldu sinni: Hún sækir ráð­gjöf til svo­kall­aðra fag­hópa sem skip­aðir eru sér­fræð­ingum á ýmsum sviðum og hún leitar sam­ráðs við hags­muna­að­ila, stofn­anir hins opin­bera, almenn­ing og frjáls félaga­sam­tök á ýmsum stigum vinn­unnar.

Verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun tekur til land­svæða og virkj­un­ar­kosta sem verk­efn­is­stjórn hefur fjallað um og hafa upp­sett rafafl 10 MW eða meira eða upp­sett varma­afl 50 MW eða meira.

Frestur framlengur um óákveðinn tíma

Samkvæmt frétt Orku­stofn­unar í októ­ber á síð­asta ári var frestur til mót­töku virkj­un­ar­hug­mynda í fjórða áfanga settur 1. mars í ár. Í ljósi þess að Alþingi mun ekki taka 3. áfanga ramma­á­ætl­unar til afgreiðslu á yfir­stand­andi þingi telur Orku­stofnun að fyrri áætl­anir um end­an­leg tíma­mörk fyrir skil á virkj­un­ar­kostum í fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar þarfn­ist end­ur­skoð­unar. Því hefur Orku­stofnun ákveðið að fram­lengja frest til mót­töku virkj­un­ar­hug­mynda, að sinni um óákveð­inn tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár