Ríkasta eitt prósent landsmanna þénar 35 prósent allra fjármagnstekna

Alls höfðu 238 efn­uð­ustu fjöl­skyldur lands­ins, sem mynda 0,1 pró­sent rík­asta hluta þess, 25,8 millj­arða króna í fjár­magnstekjur í fyrra. Ríkasta eitt pró­sent lands­manna hafði 48,1 millj­arða króna í tekjur af eignum sínum og fjár­fest­ingum.

Upplýsingarnar koma fram í svari Bjarna Benediktssonar við fyrirspurn Loga Einarssonar.
Upp­lýs­ing­arnar koma fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar. Mynd: Samsett

Alls voru heild­ar­tekjur þeirra 0,1 pró­sent lands­manna sem höfðu mestar tekjur í fyrra, 238 fjöl­skyldur, 45,5 millj­arðar króna í fyrra. Þar af voru 25,8 millj­arðar króna fjár­magnstekjur, eða um 57 pró­sent allra tekna þess hóps. Fjár­magnstekjur eru vaxta­tekjur, arður, sölu­hagn­aður og leigu­tekjur utan rekstrar. Þ.e. tekjur sem við­kom­andi hafa af eignum og fjár­fest­ingum, en ekki launa­tekjur. Í heild hafði íslensk þjóð 137,8 millj­arða króna í fjár­magnstekjur. Það þýðir að um 19 pró­sent allra fjár­magnstekna sem urðu til á Íslandi á árinu 2018, og runnu til ein­stak­linga, fóru til þess­ara 238 fjöl­skyldna.

[links]Þegar rík­asta eitt pró­sent lands­manna er skoðað, alls 2.380 fjöl­skyldur, kemur í ljós að heild­ar­tekjur þeirra á árinu 2018 voru 146,8 millj­arðar króna. Þar af voru fjár­magnstekjur 48,1 millj­arður króna, eða um þriðj­ungur tekna þeirra. Alls þén­aði rík­asta eitt pró­sent lands­manna því 35 pró­sent af öllum fjár­magnstekjum sem runnu til ein­stak­linga í fyrra.

Ríkustu fimm pró­sent lands­manna, alls 11.900 fjöl­skyldur, höfðu 394 millj­arða króna í heild­ar­tekjur í fyrra. Þar af voru 70,2 millj­arðar króna fjár­magnstekjur. Það þýðir að rúmur helm­ingur allra fjár­magnstekna sem urðu til á Íslandi í fyrra fóru til rík­ustu fimm pró­sent lands­manna.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um skuldir og eignir lands­manna sem birt var á föstu­dag á vef Alþingis.

Mest af nýjum auði lendir hjá hinum efnuðustu

Kjarninn greindi frá því á laug­ar­dag að rík­ustu 0,1 pró­sent lands­manna sem telja fram hér­lendis fram­telj­enda hafi átt 260,2 millj­arða króna í lok árs 2018 í eigin fé. Alls jókst eigið fé þeirra – eignir þegar búið er að draga frá allar skuldir – um 23,6 millj­arða króna í fyrra. Frá árinu 2010 hefur eigið fé rík­asta 0,1 pró­sent lands­manna auk­ist um 98 millj­arða króna, eða 68 pró­sent.

[adspot]Fimm pró­sent rík­ustu Íslend­ing­arnir áttu eigið fé upp á 1.864 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Það er 218 millj­örðum krónum meira en hóp­ur­inn átti í árs­lok 2017 og rúm­lega tvö­föld sú upp­hæð sem hann átti í árs­lok 2010. Frá því ári hefur millj­örð­unum í eigu þessa hóps fjölgað um 970. Þessi hópur átti 40,8 pró­sent af öllu eigið fé lands­manna í lok síð­asta árs, sem þýðir að hin 95 pró­sent fjöl­skyldna í land­inu áttu 59,2 pró­sent þess.

Ríkasta eitt pró­sent lands­manna áttu alls 802,1 millj­arð króna í lok síð­asta árs, tæp­lega 84 millj­örðum krónum meira en árið áður. Auður þessa hóps hefur auk­ist um 353 millj­arða króna frá árs­lokum 2010, eða um 78 pró­sent.

Hlut­falls­lega lækkar hlutur allra ofan­greindra hópa lít­il­lega af heild­ar­eigin fé þjóð­ar­innar milli ára.

Vert er að taka fram að eigið fé rík­ustu hópa lands­manna er stór­lega van­metið. Öll verð­bréfa­eign (hluta­bréf í inn­lendum og erlendum hluta­fé­lögum, eign­ar­skatts­frjáls verð­bréf, stofn­sjóðs­eign og önnur verð­bréf og kröfur) er nefni­lega metin á nafn­virði, en ekki mark­aðsvirði.

Eign­ar­hluti lands­manna í líf­eyr­is­sjóðum eru ekki taldar með í ofan­greindum tölum, en sam­an­lagt áttu þeir sjóðir 4.797 millj­arðar króna í lok ágúst síð­ast­lið­ins og eru langstærstu fjár­festar í land­inu.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um bar­átt­una um stjórn líf­eyr­is­sjóð­ina sem nú stendur yfir í frétta­skýr­ingu sem birt­ist á föstu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár