Dýrasta málverk í heimi fundið

Hver er rétti stað­ur­inn fyrir dýrasta mál­verk sem selt hefur verið á upp­boði? Flestir myndu kannski svara: safn. Kaup­and­inn, sem borg­aði jafn­gildi 56 millj­arða íslenskra króna fyrir verkið, valdi annan stað fyrir þetta verð­mæta skilirí.

15. nóv­em­ber árið 2017 seldi Christie‘s upp­boðs­húsið í New York mál­verkið Salvator Mundi, Frelsari heims­ins, sem, að sögn upp­boðs­húss­ins, var málað af Leonardo da Vinci (1452 – 1519). Myndin, por­trett af Jesú, hefur iðu­lega verið kölluð trú­ar­leg útgáfa Monu Lisu, sem er eitt þekktasta mál­verk allra tíma. Höfundur þess, Ítalinn Leonardo da Vinci, er einn merkasti snill­ingur mynd­list­ar­sög­unnar þrátt fyrir að til séu ein­ungis um 20 verk (frum­myndir) frá hans hendi. Salvator Mundi er reyndar eina verkið, eignað Leonardo da Vinci, sem er í einka­eigu.

Talið er að myndin Salvator Mundi hafi verið máluð í kringum árið 1500, lík­lega að beiðni Loðvíks XII Frakka­kon­ungs, sem varð óvænt kon­ungur árið 1498. Mál­verkið hefur síðan farið víða, meðal ann­ars verið í eigu þriggja breskra kon­unga, en sú margra alda ferða­saga verður ekki rakin hér. Á upp­boði í New Orleans árið 2005 var því slegið föstu að höf­undur verks­ins væri Leonardo da Vinci. Þá hafði myndin verið hreinsuð „enda ekki van­þörf á“ eins og sér­fræð­ingur í mál­verka­við­gerðum komst að orði. Árið 2011 var myndin á sýn­ingu um Leonardo da Vinci og verk hans í breska lista­safn­inu (National Gallery) í London. Tveimur árum síðar keypti Dmitrij Rybo­level, rúss­neskur auð­maður, verkið og hann seldi það svo á áður­nefndu upp­boði árið 2017, fyrir þre­falda þá upp­hæð sem hann hafði greitt fyrir það fjórum árum fyrr, jafn­gildi 56 millj­arða íslenskra króna.

Oft deilt um hver hafi málað Salvator Mundi

Sér­fræð­ingar hafa löngum deilt um, og velt fyrir sér, hvort Salvator Mundi sé verk Leonardo da Vinci. Lengi vel var haldið að myndin sem seld var á upp­boð­inu 2017 væri eft­ir­mynd þeirrar upp­haf­legu og hefði verið yfir­máluð og jafn­vel breytt. Vitað er um að minnsta kosti tutt­ugu „eft­ir­lík­ingar“ og álitið að myndin sem eignuð er Leonardo da Vinci (sú sem seld var fyrir tveimur árum) hefði senni­lega glat­ast um miðja átj­ándu öld. Þegar myndin dúkk­aði á ný upp árið 1900 vissi eng­inn hver hefði málað hana.

[adspot]Við und­ir­bún­ing Leonardo da Vinci sýn­ing­ar­innar í London árið 2011 fékk breska lista­safnið fimm sér­fræð­inga til að meta hvort Salvator Mundi væri verk Leonardo da Vinci. Tveir sér­fræð­ing­anna töldu engan vafa á að svo væri, einn taldi að Leonardo da Vinci hefði ekki málað mynd­ina en tveir töldu sig ekki geta metið, með vissu, hvort Leonardo da Vinci eða ein­hver annar hefði staðið við trön­urnar. Líka hafa verið settar fram kenn­ingar um að Berna­d­ino Luini og jafn­vel fleiri nem­endur Leonardo da Vinci hafi málað mynd­ina, með aðstoð meist­ar­ans. Margir mik­ils metnir sér­fræð­ingar hafa eytt miklum tíma í að skoða mynd­ina, efnin sem notuð voru við gerð hennar, hand­bragðið o.s.frv. Þótt breska lista­safnið hafi slegið því föstu árið 2011 að Leonardo da Vinci hafi málað Salvator Mundi eru þó ýmsir sem ekki eru sann­færðir. Hið him­in­háa verð sem fékkst fyrir mynd­ina á upp­boð­inu í hitteð­fyrra bendir óneit­an­lega til að flestir hall­ist að því að meist­ar­inn mikli, Leonardo da Vinci hafi haldið á pensl­inum en ekki ein­hver óþekktur „Jón úti í bæ“ eins og blaða­maður breska blaðs­ins Guardian komst að orði.

Verkið er málað með olíu á tré­plötu og 45,4 senti­metrar á breidd­ina og 65,6 senti­metrar á hæð­ina.

Hver keypti myndina árið 2017?

Iðulega hvílir leynd yfir kaup­endum verð­mætra lista­verka. Fyrir því eru ýmsar ástæður. Þannig var það með Salvator Mundi. Enginn vissi hver kaup­and­inn var og ekki heldur hvað varð um mynd­ina. Fljót­lega eftir upp­boðið fóru þær sögur á kreik að kaup­and­inn væri lík­lega arab­ískur. Um það bil mán­uði eftir að myndin var seld til­kynnti menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið í Abu Dhabi að það hefði keypt mynd­ina og hún yrði til sýnis á Louvre safn­inu þar í borg, Louvre Abu Dhabi eins og það heitir. Til­kynn­ingin um fyr­ir­hug­aða sýn­ingu á mynd­inni var síðan dregin til baka, án skýr­inga. [adspot]Menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið hefur ekki viljað segja neitt um ástæður þess að myndin hefur ekki verið sýnd eins og til stóð og starfs­fólkið í Louvre Abu Dhabi, sem var opnað árið 2017, seg­ist ekki vita neitt um hvar myndin sé nið­ur­komin. Þrátt fyrir yfir­lýs­ingar menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins í Abu Dhabi um að það hefði keypt mynd­ina kom síðar í ljós að kaup­and­inn var krón­prins Sádi -Arabíu, Mohammed bin Salman.

Hangir á vegg í snekkju krónprinsins

Fyrir nokkrum dögum, nánar til­tekið 10. júní, greindi vefritið Artnet News frá því að myndin Salvator Mundi héngi á vegg í snekkj­unni Serene sem er í eigu krón­prins­ins Mohammed bin Salman. Blaða­maður Artnet News komst í sam­band við fólk sem hafði séð um kaupin á mynd­inni og flutn­ing á henni frá New York og alla leið um borð í snekkj­una Serene. Snekkjan er mikið glæsifleyi, 134 metra langt og íburð­ur­inn ólýs­an­legur.

For­svars­menn Louvre safns­ins í París sögðu í blaða­við­tali, eftir að fregnir bár­ust af Salvator Mundi um borð í snekkj­unni, að þeir myndu setja sig í sam­bandi við krón­prins­inn og fal­ast eftir að fá mynd­ina lán­aða á Leonardo da Vinci sýn­ingu sem opnuð verður í París í haust. Tilefnið er að liðin eru 500 ár síðan Leonardo da Vinci lést á sveita­setr­inu Chateau du Clos í Amboise í Frakk­landi en þar dvaldi hann síð­ustu ár ævi sinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

listir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár