Segja niðurskurð á framlögum færa fagsjóði listgreina á sama stað og þeir voru 2014

Bandalag íslenskra lista­manna vill að starfs­laun lista­manna verði hækkuð, að nið­ur­skurður í fram­lögum til Kvik­mynda­sjóðs verði dreg­inn til baka, að „and­lits­laust“ skúffufé ráðu­neytis verði útskýrt og að fé verði eyrn­ar­merkt Þjóð­ar­óp­eru.

Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bandalag íslenskra lista­manna (BÍL) telur að bæta þurfi fag­sjóðum list­greina upp það tap sem fyr­ir­hugað er í fjár­lögum og færa þeim sjóðum í það minnsta það sem þeir höfðu til ráð­stöf­unar 2021. Sé vísi­tala reiknuð inn í þessum nið­ur­skurði eru sjóð­irnir á pari við það sem þeir höfðu til ráð­stöf­unar 2014.

Þá telur banda­lagið að lista­manna­laun þurfi að hækka í 560 þús­und krónur til að þau haldi í við launa­vísi­tölu og mán­uðum sem úthlutað er þurfi að fjölga í 2.700 úr þeim 1.600 sem hefur verið óbreyttur fjöldi frá árinu 2014. Það myndi þýða að 450 millj­ónum króna þyrfti að bæta í sjóð­inn.

BÍL vill að 30 pró­sent skerð­ing á fram­lögum í Kvik­mynda­sjóð verði dregin til baka enda telur banda­lagið hana vera í and­stöðu við sam­þykkta kvik­mynda­stefnu. Sjóð­ur­inn fékk 1.527 millj­ónir króna á fjár­lögum þessa árs en á að fá 1.094 millj­ónir króna á næsta ári. Ef skerð­ingin yrði dregin til baka myndi það þýða við­bót­ar­kostnað upp á 433 millj­ónir króna á ári.

Þetta kemur fram í umsögn BÍL um fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp.

Vilja skýringar á „andlitslausu“ ráðstöfunarfé

Banda­lagið vill líka að gerð verði grein fyrir því fjár­magni sem í dag er stærsti útgjalda­liður samn­inga og styrkja við lista menn­ingu. Það kallar þennan útgjalda­lið, sem er 1,2 millj­arðar króna í fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi og hækkar um tíu pró­sent milli ára, „and­lits­laust“ ráð­stöf­un­arfé mennta- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins.

[adspot]Að lokum vill BÍL að fé verði eyrn­ar­merkt til und­ir­bún­ing stofn­unar Þjóð­ar­óp­eru. Í umsögn banda­lags­ins segir að nefndir á vegum ráðu­neyt­is­ins hafi á und­an­förnum árum unnið að und­ir­bún­ingi Þjóð­ar­óp­eru og að stofnun hennar hafi verið á verk­efna­lista þess sem kynntur var í Hörpu í upp­hafi starfs­tíma sitj­andi rík­is­stjórnar. „Sú stað­reynd að óperan sem list­form skuli ekki eiga stöðugri starfs­grund­völl en raun ber vitni gerir menn­ing­ar­lands­lag okkar fátæk­legra en ásætt­an­legt er. Við eigum gríð­ar­legan fjölda hæfi­leika­fólks í grein­inni sem flest starfar erlendis, því tæki­færin og óperu­um­hverfið hér heima býður ekki upp á að þeir lista­menn starfi hér nema stöku sinnum. Fyrir liggja hug­myndir og vinna í ráðu­neyt­inu til að hrinda þessu í fram­kvæmd og því þarf að skapa rými í fjár­lögum rík­is­ins.“

Endurgreiðslur auknar en framlög til Kvikmyndasjóð skorin niður

Stjórn­völd ákváðu fyrr á þessu ári að hækka end­ur­greiðslu­hlut­fall fyrir stærri kvik­mynda­verk­efni úr 25 í 35 pró­sent. Samkvæmt fjár­laga­frum­varp­inu eiga slíkar end­ur­greiðslur, sem fara að uppi­stöðu til erlendra fram­leið­enda sem ákveða að vinna verk­efni sín á Íslandi, að hækka úr 1.453 millj­ónum króna í ár í 1.724 millj­ónir króna á næsta ári.

Á árunum 2021 og 2022 voru 412 millj­ónir króna, á hvoru ári um sig, settar inn í Kvik­mynda­sjóð auka­lega við það sem áður hafði verið ákveðið. Auk þess var 98 milljón króna við­bót­ar­fram­lag veitt til Kvik­mynda­mið­stöðvar vegna sér­staks tíma­bund­ins fjár­fest­ing­ar­átaks rík­is­stjórn­ar­innar til að sporna við nið­ur­sveiflu í efna­hags­líf­inu í kjöl­far heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar.

Samkvæmt fjár­laga­frum­varpi næsta árs verða þessar við­bót­ar­greiðslur ekki lengur í boði þar sem rík­is­stjórnin er að vinna gegn þenslu og verð­bólgu í hag­kerf­inu. Þess vegna verður fram­lag rík­is­sjóðs í Kvik­mynda­sjóð dregið saman um næstum 30 pró­sent milli ára og fram­lög til Kvik­mynda­mið­stöðvar um rúman fjórð­ung.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

listir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár