Leggur til að Lárus og Jón Gunnar hljóti heiðurslaun listamanna

Þrátt fyrir að ein­ungis 25 manns geti notið heið­urs­launa lista­manna á hverjum tíma hefur þing­maður Pírata lagt fram til­lögu á Alþingi um að for­svars­menn Banka­sýslu rík­is­ins bæt­ist við sem 26. og 27. maður á lista.

Lárus Blöndal stjórnarformaður og Jón Gunnar Jónsson forstjóri Bankasýslu ríkisins.
Lárus Blöndal stjórn­ar­for­maður og Jón Gunnar Jónsson for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins. Mynd: RÚV

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata hefur lagt til breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­lögin á Alþingi, þar sem lagt er til að Lárus Blöndal og Jón Gunnar Jónsson, stjórn­ar­for­maður og for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins, bæt­ist við á lista þeirra sem hljóta heið­urs­laun lista­manna.

Ætla má að Björn Leví vísi þarna til þess sem fram kom í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um söl­una á hlut rík­is­ins í Íslands­banka, en þar sagði að í úttekt­ar­vinnu stofn­un­ar­innar hefði komið ítrekað fram af hálfu full­trúa Banka­sýslu rík­is­ins og fjár­mála­ráð­gjafa stofn­un­ar­innar að úrvinnsla sölu­ferlis eftir til­boðs­fyr­ir­komu­lagi væri frekar í ætt við list en vís­indi.

[adspot]

Ólíklegt má telja að til­laga Björns Levís hafi verið sett fram af mik­illi alvöru, og ef til vill mætti telja hana til gjörn­ings­listar, enda geta sam­kvæmt lögum þeir einir notið heið­urs­launa „sem hafa varið starfsævi sinni eða veru­legum hluta hennar til list­starfa eða skarað fram úr við list­sköpun sína eða ef störf þeirra að listum hafa skilað miklum árangri á Íslandi eða á alþjóða­vett­vangi“.

Að auki er lagt til að þeir Lárus og Jón Gunnar bæt­ist við sem 26. og 27. maður á lista, en lög kveða á um að ein­ungis megi veita 25 manns að hámarki heið­urs­laun lista­manna á hverju ári.

Hildur, Kristín, Manfreð og Þórhildur bætast við

Fjögur ný bæt­ast á list­ann á næsta ári, sam­kvæmt til­lögu alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, en á árunum 2021 og 2022 lét­ust fjögur úr hópi þeirra lista­manna sem nutu heið­urs­launa, þau Jón Sig­ur­björns­son og Vilborg Dag­bjarts­dóttir á árinu 2021 og Guðrún Helga­dóttir og Þuríður Páls­dóttir árið 2022.

Alls­herjar- og mennta­mála­nefnd gerði til­lögu um að þau Hildur Hákon­ar­dóttir, Kristín Þor­kels­dóttir, Manfreð Vil­hjálms­son og Þór­hildur Þor­leifs­dóttir bætt­ust á list­ann í ár.

Þau sem njóta munu heiðurslauna listamanna yrðu því eftirfarandi:

  1. Bubbi Morthens
  2. Erró
  3. Friðrik Þór Frið­riks­son
  4. Guð­bergur Bergsson
  5. Guðrún Ásmunds­dóttir
  6. Gunnar Þórð­ar­son
  7. Hannes Pét­urs­son
  8. Hildur Hákon­ar­dóttir
  9. Hreinn Frið­finns­son
  10. Jón Ásgeirs­son
  11. Jón Nordal
  12. Jónas Ingi­mund­ar­son
  13. Krist­björg Kjeld
  14. Kristín Jóhann­es­dóttir
  15. Kristín Þor­kels­dóttir
  16. Magnús Pálsson
  17. Manfreð Vil­hjálms­son
  18. Matthías Johann­es­sen
  19. Megas
  20. Steina Vasulka
  21. Vigdís Gríms­dóttir
  22. Þorbjörg Hösk­ulds­dóttir
  23. Þor­gerður Ing­ólfs­dóttir
  24. Þór­hildur Þor­leifs­dóttir
  25. Þráinn Ber­tels­son
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

listir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár