Vefritið ÚR VÖR: Áskriftarsöfnun sem tryggir útgáfuna

Safnað á Karolina Fund fyrir áfram­hald­andi starf­semi vefrits sem fjallar um menn­ingu, listir, nýsköpun og frum­kvöðla­starf á lands­byggð­inni.

Vefrit­inu ÚR VÖR var ýtt úr vör þann 15. mars árið 2019 og fagn­aði því nýlega eins árs afmæli. Í vefrit­inu er fjallað um listir, menn­ingu, nýsköpun og frum­kvöðla­starf á lands­byggð­inni og hafa birst þegar þetta er skrifað yfir 160 greinar í þessum mála­flokkum. Þessa dag­ana rær vefritið líf­róðri og búið að setja á fót áskrift­ar­söfnun fyrir vefritið til að tryggja útgáf­una.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Það eru hjónin Aron Ingi Guð­munds­son og Julie Gasiglia sem standa að baki vefrit­inu, en Aron Ingi er rit­stjóri og Julie hönn­uður. „Hug­myndin að verk­efn­inu vakn­aði kvikn­aði er við bjuggum á Pat­reks­firði og settum á fót menn­ing­ar­mið­stöð­ina Húsið-Creative Space þar í bæ. Okkur fannst fjöl­miðlaum­fjöllun á Íslandi of höf­uð­borg­ar­miðuð og fannst að það vant­aði umfjöllun um það magn­aða starf sem fram fer á lands­byggð­inni hring­inn í kringum landið. Stað­bundnir miðlar fjalla vissu­lega um hitt og þetta sem á sér stað á svæð­inu, en okkur fannst vanta ein­hvern vett­vang sem fjall­aði á einum stað um mál­efni allan hring­inn í kringum landið, að höf­uð­borg­inni und­an­skil­inni. Ég (Aron Ingi) hef starfað í gegnum tíð­ina sem blaða­maður, m.a. fyrir Frétta­blaðið og sem lausa­penni og eftir að hafa velt hug­mynd­inni fyrir okkur þá leit­uðum við að bak­hjörlum og settum m.a. á fót söfnun á Karolina Fund til að ná að ýta verk­efn­inu úr vör og það tókst sem betur fer! “

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Reglu­lega birt­ist vel unnið og ítar­legt efni og er vefritið svo­kall­aður rólegur fjöl­mið­ill, þar sem fólk getur tekið sér góðan tíma í að lesa efnið. Ekki er því um frétta­vef að ræða og því eru ekki æsifréttir á boðstólum, heldur jákvæðar og upp­byggj­andi umfjall­anir sem geta veitt fólki inn­blástur og verið sam­ein­ing­ar­vett­vangur sem eflir og styrkir lands­byggð­ina. Yfir­skriftin er „Litlir staðir, stórar hug­myndir“ en við viljum sýna hvernig fólk lifir lífi sínu á litlu stöð­unum sem skipta svo miklu máli.

[adspot]Erfiðara hefur reynst að fá inn aug­lýs­inga­tekjur en við gerðum ráð fyrir og því höfum við núna farið af stað með áskrift­ar­söfnun fyrir vefritið. Hægt er að velja um nokkrar áskrift­ar­leiðir og er hægt að ger­ast áskrif­andi frá rúm­lega 1.000 krónum á mán­uði, sem er gjöf en ekki gjald, en slíkur stuðn­ingur myndi muna miklu fyrir vefritið.

Allir sem maður heyrir í varð­andi verk­efnið, hvort sem það eru við­mæl­endur eða aðrir eru sam­mála um mik­il­vægi þessa mið­ils. Það gefur okkur vind í seglin sem er mik­il­vægt því við viljum halda áfram. En það er eins með þetta og svo margt annað að það kostar pen­inga að halda þessu úti. Við viljum halda áfram og bæta í ef eitt­hvað er. Við höfum áhuga á að bæta við enskum hluta í vefritið og byrja einnig með hlað­varps­þætti, auk þess myndum við vilja láta fylgja hljóð­skrá með hverri grein, svo fólk geti átt þess kost að hlusta á efnið.

Þetta yrðu spenn­andi nýj­ungar og með því að fá fólk í lið með okkur til að styðja við verk­efnið, fá les­endur til að fjár­magna vefritið, þá er þetta verk­efni orðið verk­efni okkar allra!“

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár