Mun gefa skýrslu um dánaraðstoð

Mikill stuðn­ingur er við lög­leið­ingu dán­ar­að­stoðar í könn­unum. Svandís Svav­ars­dóttir mun flytja Alþingi skýrslu um málið.

Mun gefa skýrslu um dánaraðstoð
Svandís Svav­ars­dóttir Heil­brigð­is­ráð­herra mun flytja skýrslu um málið. Mynd: Pressphoto / Geiri

Þingmenn úr Sjálf­stæð­is­flokki, Viðreisn, Vinstri grænum, Pírötum og Sam­fylk­ingu hafa óskað eftir því að Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra flytji Alþingi skýrslu um dán­ar­að­stoð. Beiðnin var sam­þykkt með atkvæða­greiðslu í dag.

Flutn­ings­menn vís­uðu í nýja könnun Lífs­virð­ingar, félags um dán­ar­að­stoð, sem sýnir yfir­gnæf­andi stuðn­ing almenn­ings við að dán­ar­að­stoð verði heim­iluð með lögum. „Dán­ar­að­stoð er þýð­ing á gríska orð­inu evþanasía (góður dauði/að deyja með reisn) sem merkir að binda enda á líf af ásetn­ingi til þess að leysa við­kom­andi undan óbæri­legum sárs­auka eða þján­ingum,“ segir í til­lög­unni. „Flutn­ings­menn þess­arar til­lögu telja að for­senda þess að umræðan geti þroskast og verið mál­efna­leg sé að fyrir liggi upp­lýs­ingar um stöðu þess­ara mála í öðrum löndum, svo og upp­lýs­ingar um afstöðu heil­brigð­is­starfs­fólks.“

Í skýrsl­unni verður fjallað um upp­lýs­ingar um dán­ar­að­stoð og þróun lag­ara­mma um hana þar sem hún er leyfð og tíðni, ástæður og skil­yrði dán­ar­að­stoðar þar sem hún er leyfð. Þá verður einnig fjallað um reynslu ann­arra landa af dán­ar­að­stoð og opin­bera umræðu og mögu­legar laga­breyt­ingar í þeim löndum þar sem hún er ekki leyfð, einkum Norð­ur­löndum, Þýska­landi og Kanada. Loks verður fjallað um hvort tækt sé að gera við­horfskönnun meðal heil­brigð­is­starfs­manna um afstöðu þeirra til dán­ar­að­stoðar, ann­ars vegar hvort starfs­menn telji dán­ar­að­stoð vera rétt­læt­an­lega í ákveðnum til­fellum og hins vegar hvort þeir væru til­búnir að verða við slíkri ósk að upp­fylltum skil­yrðum og að því gefnu að það sam­ræmd­ist íslenskum lögum.

Frum­varpið var flutt af þing­mönn­unum Bryndísi Har­alds­dóttur, Hönnu Katrínu Frið­riks­son, Jóni Stein­dóri Valdi­mars­syni, Kolbeini Ótt­ars­syni Proppé, Birni Leví Gunn­ars­syni, Guðjóni S. Brjáns­syni, Hildi Sverr­is­dóttur, Páli Magn­ús­syni og Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár