Þrír af fjórum hlynntir dánaraðstoð

Könnun sýnir að Íslend­ingar styðja helst hol­lensku leið­ina þar sem læknir veitir ban­vænt lyf beint í æð. Andstaða vegna trú­ar­skoð­ana mælist lítil.

Þrír af fjórum hlynntir dánaraðstoð
Heil­brigð­is­mál Stuðn­ingur við dán­ar­að­stoð eykst að mati Lífs­virð­ingar, sem lét fram­kvæma könn­un­ina. Mynd: Kristinn Magnússon

Stuðn­ingur Íslend­inga við dán­ar­að­stoð hefur auk­ist und­an­farin ár. Mælist hann nú 77,7 pró­sent í könnun sem Maskína fram­kvæmdi fyrir Lífs­virð­ingu, félag um dán­ar­að­stoð. Í könnun sem Siðmennt gerði árið 2015 mæld­ist stuðn­ing­ur­inn 74,5 pró­sent.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Lífs­virð­ingu. 77,7 pró­sent sögð­ust „mjög hlynnt“ eða „fremur hlynnt“ sam­kvæmt könn­un­inni. Einungis 6,8 pró­sent svar­enda völdu mögu­leik­ann „mjög and­víg“ eða „fremur and­víg“ við spurn­ing­unni. Þá svör­uðu 15,4 pró­sent „í með­al­lagi“.

Þeir sem sögð­ust and­vígir dán­ar­að­stoð voru spurðir um ástæðu þess. Flestir þeirra töldu að hætta væri á mis­notkun. Þá taldi stór hluti að dán­ar­að­stoð væri and­stæð sið­ferð­is­legum og fag­legum skyldum lækna og aðrir að líkn­andi með­ferð, eins og nú er í boði, nægi til að draga úr þján­ingu. Loks sagði stór hluti að dán­ar­and­stoð væri and­stæð þeirra sið­ferð­is­gildum, en fáir sögð­ust and­vígir af trú­ar­legum ástæðum.

Loks voru svar­endur spurðir hvaða aðferð Íslend­ingar ættu að taka upp ef dán­ar­að­stoð yrði leyfð. Almennt er not­ast við þrjár teg­undir aðstoðar. Nær helm­ingi hugn­að­ist best sú aðferð sem notuð er í Hollandi, Belgíu, Lúx­um­borg og Kólumbíu og felur í sér að læknir gefur ban­vænt lyf beint í æð. Er hún oft nefnd „hol­lenska leiðin“.

Öðrum hugn­að­ist best sú aðferð sem notuð er í Sviss þar sem ein­stak­ling­ur­inn inn­byrðir sjálfur ban­væna blöndu sem læknir hefur skrifað upp á. Minnstan stuðn­ing hlau aðferð sem kennd hefur verið við Oregon ríki í Banda­ríkj­unum þar sem ein­stak­ling­ur­inn leysir út ban­væna lyfja­blöndu sem læknir hefur skrifað upp á.

Þá ber að taka fram að spurn­ing Lífs­verð­ingar í ár var önnur en sú sem Siðmennt spurði árið 2015. Var hún þessi: „Ertu hlynnt(ur) eða and­víg(ur) því að ein­stak­lingur geti fengið aðstoð við að binda enda á líf sitt (dán­ar­að­stoð) ef hann er hald­inn sjúk­dómi eða ástandi sem hann upp­lifir óbæri­legt og metið hefur verið ólækn­andi?“

Siðmennt spurði hins vegar: „Ertu hlynntur eða and­vígur því að ein­stak­lingur geti fengið aðstoð við að binda enda á líf sitt ef hann er hald­inn ólækn­andi sjúk­dómi (líkn­andi dauði)?

„Það er mjög ánægju­legt að sjá afger­andi stuðn­ing Íslend­inga við dán­ar­að­stoð og má velta því fyrir sér hvenær Alþingi muni taka til­lit til afstöðu kjós­enda,“ segir Ingrid Kuhlman, for­maður Lífs­virð­ingar. „Stjórn Lífs­virð­ingar telur að um sé að ræða stigs­breyt­ingu í spurn­ing­unum en ekki eðl­is­munur en sam­an­burður nið­ur­stöðu mun koma betur í ljós við næstu könnun sem fram­kvæmd verður. Árið 2015 var ekki búið að stofna Lífs­virð­ingu og hug­taka­notkun því ekki í sam­ræmi við það sem félagið styðst við í dag. Með því að orða spurn­ing­una upp á nýtt er verið að ná fram skoðun Íslend­inga á sjúk­dómi eða ástandi sem ein­stak­lingur telur óbæri­legt og metið hefur verið ólækn­andi. Það er í sam­ræmi við áherslur sam­taka um dán­ar­að­stoð um allan heim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár