Aldís segir Jón Baldvin hafa misnotað stöðu sína sem sendiherra

Dóttir Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar segir hann hafa nýtt bréfs­efni sendi­ráðs Íslands í Washington þegar hann óskaði eftir því að hún yrði nauð­ung­ar­vi­stuð á geð­deild.

Jón Baldvin Hallibalsson
Jón Baldvin Halli­bals­son Mynd: Skjáskot/RÚV

Aldís Schram, dóttir Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, segir föður sinn hafa nýtt bréfs­efni sendi­ráðs Íslands í Washington þegar hann óskaði eftir því að hún yrði nauð­ung­ar­vi­stuð á geð­deild. Með því hafi hann mis­notað stöðu sína sem sendi­herra til þess að reka per­sónu­leg erindi. Frá þessu greinir Aldís í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun.

Jón Baldvin var utan­rík­is­ráð­herra árin 1988 til 1995 og sendi­herra í Banda­ríkj­unum 1998 til 2002 og í Finn­landi 2002 til 2005. Fjórar konur greindu nýverið frá meintri kyn­ferð­is­legri áreitni Jóns Baldvins í Stund­inni. Elstu sög­urnar eru frá sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar en sú nýjasta frá því síð­asta sumar. Þá hefur fjöldi kvenna gengið í #metoo hóp á Facebook þar sem frek­ari sögur af kyn­ferð­is­brotum hans og ósæmi­legri hátt­semi hafa komið fram.

Aldís seg­ist hafa gengið á föður sinn árið 1992 vegna kyn­ferð­is­brota eftir að gömul skóla­systir hennar hafði sagt Aldísi frá því að hún hefði vaknað við að Jón Baldvin væri að áreita hana kyn­ferð­is­lega. Aldís telur að sá fundur hafi orðið til þess að hún var í fyrsta sinn nauð­ung­ar­vi­stuð á geð­deild.

Gat hringt í lögregluna til að handtaka hana

Aldís segir að eftir þetta hafi hann getað hringt í lög­reglu hvenær sem er til að hand­taka hana. „Umsvifa­laust er ég í járnum farið með mig upp á geð­deild, ég fæ ekki við­tal og það er skraut­legt að lesa þessar yfir­lýs­ingar geð­lækna. Það er um ein­hverjar ímynd­anir mínar og rang­hug­myndir sem ég er með þegar ég er reið út í föður minn,“ segir hún.

Hún segir enn fremur að Jón Baldvin hafi getað sem ráð­herra og síðar sendi­herra sent bréf til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins til þess að hún yrði nauð­ung­ar­vi­stuð.

Hún talar jafn­framt um atvik sem átti sér stað árið 1998 en þá hafi lög­regla brotið sér leið inn á heim­ili hennar ásamt lækni og ætt­ingja hennar, að því er virð­ist að nauð­synja­lausu, enda yfir­gáfu læknir og lög­regla hús­næðið sam­kvæmt sömu lög­reglu­skýrslu. „En viti menn, sem ég vissi ekki fyrr en ég las lög­reglu­gögn, að aðferð þessi kall­ast aðstoð við erlent sendi­ráð, sam­kvæmt lög­reglu­gögnum,“ segir Aldís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár